4.11.2008 | Automobilespotting

Ég veit ekki hvort mig er að misminna eða dreyma það, en mig minnir að ég hafi einhverntíman tekið þátt í lélegasta road-trip "leik" í heimi.

Sem barn minnir mig að ég hafi einhverntíman leikið þennan "leik". "Leikurinn" fór þannig fram að ég og félagi minn í aftursætinu fengum tvö spjöld, ekki ólík bingóspjöldum. Á spjöldunum voru gluggar og í stað talna voru vörumerki hinna ýmsu bifreiðaframleiðenda í gluggunum.

"Leikurinn" gekk svo út á það að þegar maður sá bíl af tiltekinni tegund mátti maður loka glugganum. Sá sem var fyrstur til að loka öllum gluggum vann "leikinn".

Mjög augljóst, mjög glatað element í þessum "leik" er að barn sem hefur óbilandi áhuga á bílum (eins og þessi vinur minn) hefur umtalsverða yfirburði, og auli eins og ég, sem hafði, og hef eiginlega ekki, neinn áhuga á bílum, stendur mjög höllum fæti.

Það er óþarft að taka það fram að ég vann aldrei í þessum "leik", en ég vil reyndar kenna því um að ég sat yfirleitt hægramegin í aftursætinu og hafði því ekki jafn góða yfirsýn yfir bílana úr mótstæðri átt. (Kannski var þessi vinur minn búinn að átta sig á því að vinstra baksætið hafði töluverða yfirburði. Annaðhvort það eða þá að foreldrar hans voru að fixa "leikinn" með því að skipa mér í sæti hægramegin).

Man einhver annar eftir þessum glataða "leik"/auglýsingu?


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 4.11.2008

Halldór Eldjárn

Hahaha kannast ekki við þennan leik en þetta gluggasystem er að fá mig til að hlæja! :D

[ Reply ]

Hildur at 5.11.2008

Hildur

Ég hef aldrei heyrt um þennan leik:) hahahaha

[ Reply ]

Árni at 6.11.2008

Árni

Hef ekki heyrt um þennan leik en hann hljómar alveg frekar advanced scheisse fyrir lítil börn í aftursætinu.

[ Reply ]

hrafnhildur at 11.11.2008

Unknown User

ég man mjög vel eftir þessu!!

spjaldið var gult og plastið sem maður renndi yfir lógóin var rautt. í miðjunni var svona plastgluggi sem maður notaði til að aftékka/núllstilla alla gluggana

frændur mínir tveir áttu svona, ég spilaði stundum við þá á leiðinni í tívolíið í hveragerði/sumarbústað/sædýrasafnið. ég vann aldrei því
a) ég þekkti bara saab
b) bræðurnir voru aldir upp á spindilkúlum, boddípörtum og glussa.

þannig að ég reyndi hvað sem er til að koma í veg fyrir leikinn. vinsæll bílaleikur í stað bílbingósins var matlock leikurinn, sem gekk í aðalatriðum út á að tala bullensku og skiptast á að leika matlock, svarta aðstoðarmanninn og rauðhærða saksóknarann.

good times was had by all.

[ Reply ]

Arnaldur at 11.11.2008

Arnaldur

Vá. Þetta lýsir svo mikið og vel minni eigin raunasögu. Annars er gaman að heyra að mig hafi ekki verið að dreyma þetta.

Mig minnti reyndar að spjöldin hefðu verið græn en annars er þetta spot on.

Synd að Matlock-leikurinn komst aldrei á borðið hjá okkur félögunum. Hann hefði ábyggliega gert þessar ferðir mun bærilegri.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment