Ég sá þessa frétt um daginn og ætlaði alltaf að minnast eitthvað á þetta. Einhverntíma í byrjun mánaðarins mættu nokkrir félagsmenn úr VR fyrir utan skrifstofur félagsins til að mótmæla setu Gunnars Páls Pálssonar sem formanns. Enda er það mjög skiljanlegt, þar sem maðurinn er siðlaus dóni.
Sem þessir félagsmenn stóðu þarna og mótmæltu, var annar einstaklingur líka mættur á svæðið og stóð fyrir eigin mótmælum. Þessi einstaklingur var með ákaflega háleitt baráttumál á heilanum og tók sér stöðu með heimatilbúinn bréfmiða til að undirstrika reiðina innra með sér.
Hvaða misrétti var svo drengurinn að mótmæla? Jú, hann var að mótmæla LÉLEGUM MÓTMÆLUM.
WTF!?!?
Well fuck you too, buddy!
Ef til vill hefur drengurinn ekki fattað risastóra kaldhæðnis-drullupollinn sem hann steig sjálfviljugur í. Án vafa verður að teljast að þótt mótmæli VR manna hafi ekki látið mikið yfir sér, þá voru þau allvega rekin áfram á einhverri hugsjón og skiluðu einhverjum árangri. Hinn hugmyndafræðilega gjaldþrota drengur hinsvegar, sat þarna bara eins og kúkur með bréfmiða, og mótmælti í raun eigin veru á svæðinu, þar sem hann var klárlega að reka mjög léleg mótmæli.

En þetta hefur svosem verið viðkvæðið á Íslandi um árabil. Ef menn leyfa sér að stíga fram fyrir skjöldu og benda á þessa endalausu spillingu, þetta sifaspells riðaða pólitíska landslag eða almennt misrétti, þá eru þeir bara lélegir.
Ég held nú samt innilega að þegar fer að kreppa að þessum litla dreng muni hann átta sig á því hvað hann var mikill bjáni. Eða hvað veit ég svosem.
Almennt virðist nú vera að eiga sér stað einhver vitundarvakning í þjóðfélaginu. Um 6-7 þús. manns mættu á mótmæli á Austurvelli í gær, og það var gaman að sjá þar samankomið fólk af öllum stigum þjóðfélagsins.
Ég ætla nú ekkert að hafa of mörg orð um þennan ágæta mótmælafund, þótt ég hafi ýmsar skoðanir á því sem þar fór fram. Persónulega er mér nú nokkuð sama um þetta eggjakast þótt að mér þætti vænna um það ef menn tækju sig til og grýttu frekar Seðló, eða viðskiptabankana. Eða kannski helst Stjórnarráðið, því að það er aftur orðið fangelsi, nema í þetta skipti heldur það þjóðinni sem stendur fyrir utan í gíslingu.
Annars finnst mér þetta mótmælaskilti sem Sigurgeir benti á, summa upp öllum mínum hugmyndum um ástandið. Mig langar í svona skilti.
Hahaha, mjög fyndin færsla, dawg.
Megasar-pun-ið í titlinum er ekki svo slæmt heldur.
Þetta var unintended pun hjá honum. Naldó er haldinn spastísku caps-lock syndrome. It can happen any time! :O
Aðalsteinn the Counter-Revolutionary.
Þú ert bolsjevískur, þykir mér, og sýnir loksins þína sönnu liti!
Bolsjeviki? Ef hann er eitthvað þá er hann mellow, moderate mensjeviki.
Annars gef ég honum ekki einusinni svo mikið kredit. Mér þykir með þessu sýnt að Alli er lumpenproletariati sem stendur á hliðar línunni og tekur svo afstöðu með kapítalinu. Svona er þrælslundin sterk í honum Aðalsteini, hann kyssir á refsivöndinn og býður fram allar kinnar á líkama sínum.
Þú veist að þú átt ekki eftir að koma vel út úr þessari byltingu Alli. Ekki með þessu hugarfari...
Þessi greining þín er rétt, Arnaldur. Hann Aðalstienn er skítugur, fyrirlitlegur lumpenproletarian, og það sem meira er, hann breiðir úr aftari kinnum sínum fyrir kapítalinu.
Ég held að hann sé á málum hjá auðvaldinu með það fyrir stafni að subverta mótmælum.
Ehh... ég hélt að gaurinn sem situr hokinn á kolli einhversstaðar upp við kringlu með illlæsilegt spjald sem á stendur "burt með léleg mótmæli" hefði defínerað íróníuna hérna... þín viðbót, Arnaldur, var algerlega umfröm.
Já, ég er alveg til í að vera kallaður lumpenproletariat, skárra en að vera kampavíns-kommi eins og þið Sveinbjörn!
Aðalsteinn, hvað eru léleg mótmæli? Kannski er best að spyrja, hvað eru góð mótmæli?
Það er von þú spyrjir, Steinn, á tímum þegar flestir virðast sammála um að markmið mótmæla sé bara að koma því á framfæri að maður sé ósáttur. Ekki að knýja fram einhverjar viðbrögð. Þannig virðist fólki finnast það vera að gera mikið gagn með því að skrifa nafnið sitt á einhverja síðu á netinu. Það vil ég meina að sé dæmi um léleg mótmæli. En það eru ekki einu mótmælin sem eru léleg.
Annað dæmi um léleg mótmæli sem ég mætti á (Guð einn veit af hverju): Það voru Palestínumótmæli á Austurvelli, Sveinn Rúnar stóð á sviðinu og talaði í bilað hljóðkerfi en það skipti litlu máli því fáir voru að hlusta. Stefán Pálsson og Kolbrún Halldórsdóttir stóðu til að mynda út í jaðri mannfjöldans mestan tíman og áttu í hversdagslegu spjalli.
Ég held að dæmi um mjög góð mótmæli séu til dæmis mótmæli blökkumanna í Bandaríkjunum í kringum 1960. Þar tókst blökkumönnum með samhentu og þaulskipulögðu átaki að beina augum heimsins að ástandi mála í ákveðnum fylkjum og sömuleiðis að láta yfirvöld í þeim sömu fylkjum líta út eins og hálfvita.
En ég vil taka það fram að ég er bara að svara þessum spurningum þínum, Steinn. Ég vil ekkert gera lítið úr þeim mótmælum sem fara fram þessa dagana. Held samt að úr þeim væri hægt að gera eitthvað mun áhrifaríkara úr þeim ef menn hefðu góðar hugmyndir og vilja til skipulags.
Ég er ekki sammála því að svona mótmæli þurfi endilega að vera alveg friðsamleg og fara í einu og öllu að lögum og reglum.
Klárlega þá þyrfti að bera eld að Alþingishúsinu. Það væru mótmæli.
Svona mótmæla Franskir stúdentar:
http://www.youtube.com/watch?v=NuZtErl1AJY
Hvort þetta flokkast sem mjög góð eða mjög slæm mótmæli, veit ég ekki.
Ég myndi riota við Bad, eða Smooth Criminal með MJ, ekki spurning.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)