Ég ætlaði að skrifa nákvæmlega þennan pistil um ræðu Davíðs í morgun, en Árni Snævarr var á undan mér að koma þessu í orð. Svekkelsi.
Þetta er góður pistill. Takk fyrir ábendinguna.
Annars hafði ég frekar mikið að gera í dag og komst lítið sem ekkert á netið til að skoða fréttir. Í þau skipti sem ég þó rétt kíkti á forsíðu ruv.is sá ég samtals 5 fréttir um það að embættismaður/stjórnmálamaður hefði lýst því yfir að hann hefði vitað allt og varað við eða ekkert vitað af því hann var ekki varaður við og gott ef í öllum tilvikum var ekki bent á einhvern annan - oft einn af hinum. Þessir aðilar voru:
Davíð Oddsson, seðlabankastjóri.
Geir Haarde, forsætisráðherra.
Jón Sigurðsson forstjóri fjármálaeftirlitsins.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra.
Árni Mathiesen fjármálaráðherra.
Meira helvíts bullið.
The password to post a comment is:
(Aðalsteinn)