20.11.2008 | Æ EMM EFF!

imfucks

Tekur einhver annar eftir því en ég hvað ráðamenn landsins þrátönnlast á "Æ-EMM-EFF"?

Afhverju ekki bara "I-EMM-EFF"? Ætli þetta sé eitt af skilyrðum sjóðsins; að leggja niður íslenska tungu?

Mörður Árnason hlýtur að gnísta tönnum yfir þessu öllu saman.


7 comments
(Sveinbjörn)




7 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sindri at 20.11.2008

Sindri

Já, ég hef tekið eftir þessu og þetta fer alveg svakalega í taugarnar á mér.

[ Reply ]

Steinn at 20.11.2008

Steinn

Sömuleiðis. Eitt að segja i-emm-eff, en æ-emm-eff er fyrir neðan allar hellur. Annars er ég sammála Haraldi Ólafssyn veðurfræðingi að þetta ætti auðvitað að vera AG eða AGS.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 20.11.2008

Sveinbjörn

Ætli IMF krefjist þess ekki að Íslendingar opni ekki bara fyrir erlendar vörur heldur einnig erlenda tungu. Skítasamtök sem hafa riðið ófáum löndum í rassgatið með frjálshyggjuaðgerðunum sem sjóðurinn pínir upp á 3ja heims lönd.

[ Reply ]

Sindri at 21.11.2008

Sindri

Ég held samt að eitt af markmiðunum með þessum frjálshyggjuaðferðum sem sjóðurinn neyðir upp á lönd þriðja heimsins, eins og þú orðar það, sé ekki endilega bara eitthvert evil plot díabólískra Chicago-hagfræðinga. Ég held einmitt að með því að einkavæða infrastrúktúrinn í þriðjaheimsríki þá séu fjárfestar mun líklegri til að fjárfesta í landinu og einkavæðingin tryggir þegnum landsins ákveðna starfsemi og þjónustu, sem annars myndi liggja niðri sökum skorts á fé, fé sem að öllum líkindum liggur inni á leynilegum bankareikningum í Sviss á nafni einræðisherrans...en já nei, IMF er auðvitað bara skítasamtök sem vilja koma auðlindum alls heimsins í hendur fáeinna útvaldra auðmanna.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.11.2008

Sveinbjörn

Ég er lítið gefinn fyrir samsæriskenningar, en í öllum sannindum þá er frjálshyggjan orðin svo mikil orþódoxía meðal hagfræðinga að ekkert samsæri þarf til þess að skýra einkavæðingakröfur IMF. Það íróníska er auðvitað það að þessir hagfræðingar líta gjörsamlega fram hjá því að öll ríkustu og þróuðustu lönd í heimi byggðu upp iðnað og infrastrúktúr sinn bak við verndarmúra. Fyrst þegar lókal hagkerfið var orðið samkeppnishæft við "stóru spilarana" var það opnað með góðum árangri...

[ Reply ]

Hildur at 21.11.2008

Hildur

Gaman að þú minnist á þetta, því þetta er búið að pirra mig dálítið lengi!

[ Reply ]

Hildur at 21.11.2008

Hildur

Gaman að þú minnist á þetta, því þetta er búið að pirra mig dálítið lengi!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment