21.11.2008 | Svanasöngur Útrásarmanna

Fram, fjáðir menn í þúsund bönkum,
sem finnið skortsölunnar tök!
Nú bárur helsis skella á blönkum,
boða velsæld ragnarök.
Brostnar Stoðir, burtu vér þjótum!
Bræður! Flýjum land í dag -
Vér bárumst á en brátt nú hljótum
að byggja örbirgt þjóðfélag.

þó að framtíð sé fallin,
gerir Geira blá hönd,
ásamt I-M-F að binda þau
í eilíf vistarbönd.


11 comments
(Arnaldur)




11 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sindri at 21.11.2008

Sindri

Hehe, hvaðan kemur þetta, þitt?

[ Reply ]

Arnaldur at 21.11.2008

Arnaldur

Að sjálfsögðu er þetta mitt.

Þetta var reyndar örlítið snúnara en ég hélt. Var búinn að sjóða þetta saman í kollinum en svo var þetta náttúrlega ofstuðlað og vitlaust þegar þetta komst á blað, þannig að ég þurfti að gera nokkrar breytingar.

[ Reply ]

Sindri at 21.11.2008

Sindri

Það leikur enginn vafi á því að hér sé risið nýtt stórskáld í íslenskum menningarheimi, Arnaldur Laufás. Heyr, heyr, húrra, húrra!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.11.2008

Sveinbjörn

Arnaldur Laufás væri ótrúlega samkynhneigt skáldanafn... einhver svona Prins Valiant stemmari yfir því...

[ Reply ]

Arnaldur at 24.11.2008

Arnaldur

Eigum við þá ekki að hafa þetta Arnald frá Laufási, fyrst þið viljið endilega spyrða mig við þetta slot.

[ Reply ]

Árni at 21.11.2008

Árni

Stórskáld.

[ Reply ]

Arnaldur at 21.11.2008

Arnaldur

Það er reyndar mjög athyglisvert hvað það er hægt að heimfæra þennan kveðskap upp á margar hugmyndafræðir með örlitlum breytingum.

Mér finnst samt best að bæði Geir og Stoðir koma fyrir í upprunalegu útgáfunni, og var ánægður með að geta haldið þeim.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 24.11.2008

Sveinbjörn

Þetta er brilljant hjá þér, ég gerðist svo djarfur að pósta þessu á vefsíðunni minni:

http://sveinbjorn.org/news/2008-11-24-04-13-48

[ Reply ]

funnytrue at 24.11.2008

Unknown User

Arnaldur Laufáss - Ljáðu mér evru

[ Reply ]

Árni at 25.11.2008

Árni

Ó hve létt er þitt klinkhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er snjór útá glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina evru,
eina evru sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert litla evran mín.

[ Reply ]

Arnaldur at 25.11.2008

Arnaldur

Minni Krónu

Firðar sokknir í skuldafen
sækja hér á landi í yen,
þyrstir í evru og þyrstir í pund,
þrautgóð eru á raunastund.
Djúp og blá
blíðum hjá
brosa dollurum hvarmaljós.
Norðurstranda stuðlaberg
stendur ei á gömlum merg.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment