Alltaf virðist þessi umræða skjóta upp kollinum nokkuð reglulega, og einmitt oftast á þessum tíma ársins einhverra hluta vegna.
Persónulega á ég erfitt með að taka undir þetta. Fyrir þau okkar sem muna hvernig þetta var fram til '99 þá held ég að ég geti alveg staðhæft að það var brjáluð riot-sena í gangi niðri í bæ um hverja helgi frá kl. 03:30.
Ennfremur get ég ekki sagt að ég hafi tekið eftir mörgum börum eða klúbbum í Þingholtunum. Trúið mér. Ég væri ótrúlega ánægður með þá þróun mála.
Ef ég skil Stefán rétt, þá minnist lögreglan 10. áratugarins með söknuði, og vildi óska að hún gæti tekist á við full-blown riot í eina klst. milli kl. 03:30 og 04:30, í stað þess að þurfa að eiga við einn og einn vitleysing hér og þar á tímabilinu 03:00-07:00. Mér finnst það ömurleg pæling, sem ef til vill lýsir frekar fjársvelti og lélegum móral frekar en einhverju öðru.
Þess utan, sé ég ekki að það sé í verkahring lögreglunnar að fara með löggjafarvaldið, eða standa að því að búa til svona regluverk fyrir okkur.
Mín skoðun er sú að það mætti alveg auka fjárveitingar til lögreglunnar og borga þessu ágæta fólki sómasamlega fyrir að passa upp á okkur um helgar og fjölga í þeirra röðum svo þau séu betur í stakk búin til að takast á við starfið sem bíður þeirra. Aftur á móti neita ég að hverfa aftur til 10. áratugarins með tilheyrandi vitleysu, þó að það sé kreppa.
Að öðru leyti er ég reyndar alveg sammála að það mætti gera einhverjar tilraunir með að dreifa skemmtanalífinu. Reyndar ekki með því að fækka stöðum, heldur mynda litla kjarna annarsstaðar. Það er fátt skemmtilegra í útlöndum en að geta valið sér skemmtileg hverfi eftir því hvernig maður er stemmdur. Það er bara töff.P.S. Að lokum væri ég mikið til í að sjá einhverjar sönnur á því að ofbeldisverkum hefði fjölgað til muna á þessu tímabili. Allar tölur og vitnisburðir sem ég hef annars heyrt virðast benda til hins öfuga.
Sami helvítis púrítanisminn alltaf. Búúúú!
Ég held að menn túlki "Þingholtin" sem húsnæðið við hliðina á Ölstofunni. E-r spoilsports eru búnir að vera að væla endalaust yfir hávaða -- væntanlega sama fólkið og er á fylgjandi reykingabanninu...
Mér þætti líka gaman að sjá hvernig þeir ætla að einangra áhrifin af breytingu opnunartíma skemmtistaða á ofbeldistíðni, frá öðrum breytingum sem hafa átt sér stað í samfélaginu á sama tímabili, á tölur yfir ofbeldisverk.
"Stefán bendir á nokkur atriði sem höfðu áhrif á að markmiðin með breyttum opnunartíma 1999 og 2001 náðust ekki að öllu leyti. Þar skipti máli fjölgun skemmtistaða á vissum svæðum í miðborginni og meiri nálægð þeirra við íbúðahverfi en áður. Þá varð breyting á eðli margra veitingastaða á svæðinu. Þeir þróuðust úr hefðbundnum veitingastöðum og kaffihúsum í skemmtistaði sem opnir eru fram undir morgun."
Ég geri fastlega ráð fyrir því að eitt af helstu markmiðunum hafi verið að draga úr ofbeldi og riot ástandinu, fækka eftirpartíum, dreifa álagi á lögregluna og ýmist fleira. Allt tókst nema að fækka stöðum, geri ráð fyrir, þar sem það að fækka skemmtistöðum, gera nálægð þeirra við íbúðarhverfi og koma í veg fyrir að kaffihús hafi opið langt fram á nótt. Ég efast um að þetta hafi nokkru sinni verið hluti af áætlun þeirra.
Já, svona "social engineering" pælingar eru frekar glataðar. Mér finnst alltaf jafn merkilegt hvað ráðamenn eru sannfærðir um að þeir geti vísindalega stjórnað og mótað hegðun fólks -- að lög og reglur geti fjarlægt ákveðnar hliðar mannseðlisins.
Það er klárt mál að hellingur af fólki á alltaf eftir að vera fullt, og það á eftir að vera á köflum ofbelidisfullt og hávaðasamt. Markmiðið ætti ekki að vera að reyna að "binda enda á þetta once and for all" heldur að skipuleggja hlutina þannig að þeir geti átt sér stað á afmörkuðu svæði og með löggæslu við hendina sem ræður við hlutina þegar þeir fara úr böndunum. Ég fæ ekki annað séð en að svo sé málum háttað í dag.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)