26.11.2008 | Stuðmenn

raiden

Það hefur verið töluvert mikið í umræðunni undanfarið hvort það sé fýsilegt að vopna lögreglumenn með rafbyssum.

Persónulega hef ég ekki haft neitt sérlega sterkar skoðanir á þessu, vegna þess að ég get bæði séð kosti þess og galla. Almennt séð er ég nú fremur mótfallin því að vopna stétt manna, sérstaklega í ljósi þess að hér er vopnuð sérsveit sem ætti að vera fær um að sinna alvarlegum útköllum. Þó verð ég að segja að mér hafa þótt þessar árásir á lögreglumenn undanfarið óásættanlegar og uggvænlegar.

Í alvöru talað. Þetta er liðið sem á að vera að gæta okkar. Ekki lemja þau!


Mjög svipuð umræða hefur verið uppi á teningnum í Bretlandi undanfarin misseri, en eins og margir vita þá ganga almennir lögregluþjónar þar í landi um óvopnaðir líkt og hér.

Röksemdin þar á bæ hefur verið í þá áttina, að menn vilji koma í veg fyrir vopnvæðingarkapphlaup, og þess utan séu vopnaðar sérsveitir til reiðu, sem séu vel í stakk búnar til þess að taka á vopnuðum glæpum.

Engu að síður hafa breskar lögreglusveitir verið að gera tilraunir með rafbyssur og stendur nú til að dreifa 10.000 slíkum milli breskra löggæslumanna.

Í þessari grein, er hinsvegar nokkuð áleitinn spurning reifuð sem mér þykir koma málinu við. Í stuttu máli fjallar greinin, (sem er afskaplega leiðinlega skrifuð en vel þess virði að renna yfir,) um það hversu fúsir lögreglumenn virðast hafa verið til að beita byssunum, sumstaðar við mjög óheppileg tækifæri. Sennilegast þar sem það er mjög ólíklegt að þær deyði fórnarlambið. Ennfremur, að strangara og nákvæmara regluverk þurfi ef til vill um notkun slíkra vopna.

Endanleg niðurstaða úr tilraunaverkefninu, eins og fyrr segir, var sú að yfirvöld ákváðu að skella rafbyssum á lögguna. Merkilegt er þó, skv. greininni, að menn innan lögreglunnar virðast skeptískir á þróun mála og hafa hugsað sér að fara varlega í slíka upptöku, til að tefla ekki trausti almennings í tvísýnu.


Ókunnugur ungur maður vatt sér að mér fyrir allnokkru og sagði mér frá því þegar hann hafði orðið fyrir stuði úr rafbyssu, og lýsti hann því sem einu því allra óþægilegasta sem hann hefði matt þola. Þar að auki hefði stuðið verið svo öflugt að hann missti stjórn á líkamanum og pissaði á sig.

Ég held að menn mættu fara ákaflega varlega í upptöku rafbyssa hér á landi, því eins leiðinlegt og mér þykir að segja það, á ég ekki erfitt með að sjá lögregluþjóna hér rafmagna menn niður við ómerkileg og ónauðsynleg tækifæri. Nóg er nú um dólgslætin í sumum án þess að bærinn fyllist af pissublautum fúlmennum.


12 comments
(Sveinbjörn)




12 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Grímur at 26.11.2008

Grímur

Tengillinn þinn er í lamasessi.
Athyglisverð grein, samt sem áður.

[ Reply ]

Arnaldur at 26.11.2008

Arnaldur

Úps. Tengill kominn í lag. Ég satt best að segja skil ekki almennilega hvað var að...

[ Reply ]

Sveinbjörn at 26.11.2008

Sveinbjörn

Æ, veistu, ég held að það sé afskaplega vond hugmynd að gefa þessum föntum í íslensku löggunni rafmagnsbyssur. Þeir eiga bara eftir að nota þetta indiscriminately á dónalega 15 ára krakka.

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 26.11.2008

Unknown User

Já málið er að löggan verður að vera með yfirhöndina, alltaf. Fólk á ekki að komast upp með að ráðast á löggu (nema löggan hafi gert eitthvað af sér).

Svo fannst mér líka fáránlegt að einhverjir skuli hneykslast á því að löggan hafi beitt gasi þegar hópur fólks reynda að brjóta sér leið inn á löggustöðina um daginn. Við hverju bjóst fólkið, kaffi og kleinum? Löggan verður að hafa svona hluti til að grípa í við ákveðnar aðstæður, gas, rafbyssur, byssur oþh.

Mér þætti allt í lagi að löggan væri með rafbyssur. Mér finnst það ætti að vera svona webcam á rafbyssunum sem taka upp 30 sek á undan því þegar byssan er notuð, til að sýna fram á að löggan sé ekki að nota þetta of mikið.

[ Reply ]

Arnaldur at 27.11.2008

Arnaldur

Já. Menn eru víst bara frekar hræddir við ofnotkun, sökum þess að það er ekki almennt litið á þetta sem banvæn vopn.

Ef ég skildi statistíkina í greininni rétt, þá var rafbyssunnum beitt í 93 skipti af þeim 661 skiptum sem þær voru gerðar út, og þar af var þeim beitt effectively í 81 skipti. (Misstu þeir marks í 12 skipti?)

Mér finnst nú persónulega 15% brúkshlutfall frekar hátt. Og þar að auki er ekkert minnst á kringumstæðurnar í skýrslunni.

Mér finnst þetta koma best fram í þessum sykursýkis-gæja sem þeir grilluðu. Sad... but funny!

Að lokum er frekar athyglisvert hvað karlmenn virðast mun oftar útsettir fyrir stuði í þessum tölum, eða í 93% tilvika. Kynbundið ofbeldi einhver???

[ Reply ]

Sveinbjörn at 27.11.2008

Sveinbjörn

Mér þykir líklegt að lögregluþjónar beiti þessum vopnum að mestu þegar þeir standa frammi fyrir "formidable adversary." Ef þú ert fílefldur 185sm hár lögregluþjónn í toppformi þá stendur þér varla mikil ógn af þorra kvenmanna...

[ Reply ]

Arnaldur at 27.11.2008

Arnaldur

Theoretískt væri hægt að implementa svona vídjóupptökudæmi á byssurnar. Ég veit að allar pro-fréttacamerur í dag eru með 2 mín relay þar sem þær geta tekið upp á standby continuously.

Mér skilst að það sé hugsað fyrir gaurana sem þurfa að hanga geðveikt lengi fyrir utan hús að bíða eftir að einhver ráðamaður komi út með blað í hendinni.

[ Reply ]

Eiki at 26.11.2008

Eiki

Þó það sé sennilega rétt að rafbyssur séu sjaldnast banvænar, þá er eins og mig minni að ég hafi lesið um dauðsföll af völdum svona græja nýverið.

Hvað ætli þurfi að drepa marga með svona vopni svo það teljist banvænt?

Svo mætti spyrja hvort pervisnir unglingar fá sama stuð og bjórmarineruð miðbæjarfinngálkn.

Þetta gefur frasanum "að veita lögreglu viðnám" alveg nýja merkingu, ef ohm eru höfð í huga.

[ Reply ]

Arnaldur at 27.11.2008

Arnaldur

Hehehe... ohmg.

En, já. Það er víst að fólk hefur dáið af svona stuði. Ætli þetta fari ekki mikð eftir líkamlegu ásigkomulagi fólks.

[ Reply ]

Steinn at 27.11.2008

Steinn

Ég sé ekkert að því að íslenska löggan fari að nota rafbyssur (alla veganna í tilraunaskyni). Þannig eru mál með vexti að lögreglan notar kylfur sínar mjög sjaldan þessa dagana sökum þess að þeir verða að geta sýnt fram á það að það hafi verið ýtrasta nauðsyn að nota hana. Ef þeir fá rafbyssur þá verða þeir að sýna enn betur fram á það að nauðsyn hafi verið til að nota byssuna.

Flest mál sem hafa komið upp hvað varðar dauðsföll (eftir því sem ég hef heyrt) eru í Bandaríkjunum, þar sem löggan hikar víst ekki að nota hana, ekki frekar en að þeir hiki við að skjóta úr alvöru byssum.

[ Reply ]

Arnaldur at 27.11.2008

Arnaldur

Þetta er reyndar mjög valid punktur. Ég er nokkuð viss um að aðhald með valdbeitingu sé nokkuð stringent hérna á Íslandi. Lögreglan hérna má ekki einu sinni taka hortugan gémlíng hálstaki í dag án þess að lenda í málaferlum og veseni.

Þar fyrir utan er Ísland orðið svo vídjóvélavætt samfélag að þeir yrðu nú fljótt böstaðir ef þeir væru mikið í einhverjum "maverick" gír (sem sjálfkrafa kemur að einhverju leyti á móti vídjóupptökuhugmyndum Sigurgeirs).

[ Reply ]

Sveinbjörn at 27.11.2008

Sveinbjörn

Aðhald með valdbeitingu stringent? Ég veit það nú ekki, þessi rotnu epli í löggunni virðast aldrei fá neitt annað en viðvaranir og "a little slap on the hand" þegar þeir fara yfir strikið, vídeóupptökur eður ei.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment