Í innhólfinu mínu í morgun var tölvubréf sem bauð mér góðan daginn með því að staðhæfa: "You have been nominated for a Bachelor's Degree!"
Ég spurði mig hversvegna ég hefði eytt þremur árum í háskóla í að vinna mér inn þessa gráðu, þegar menn virðast vera tilnefndir upp úr þurru.
Að öðru leyti hef ég tekið eftir því að ég á það til að gera fraudulent samninga við sjálfan mig á morgnanna sem ég svík svo meðvitað aðeins nokkru síðar. Yfirleitt ganga þessir samningar út á það að ef ég, Arnaldur Grétarsson, sé tilbúinn að drullast á lappir og koma mér í boðlegt ásigkomulag, þá sé ég, Arnaldur Grétarsson, tilbúinn að bjóða mér stuttan lúr fram að brottför til vinnu. Alltaf skal þessi samningur svikinn, enda er maður kannski ekki mikið fyrir það að detta í einhvern lúr þegar maður er loksins kominn í gang. Það er bara erfiðara fyrir alla.

Vá hvað þú ert dipló Arnaldur. Þetta er svo sannarlega bilateral negotiation sem er í gangi þarna, ólíkt þegar menn tala við WTO og IMF.
Mínir samningar við sjálfan mig eru hins vegar mjög unilateral og coercive. Þeir einkennast af því að lúrþeginn Sveinbjörn brjóti á öllum skilyrðum samningsins og sigri síðan þegar málinu er stefnt fyrir rétt...
Kannast við stöðu þína Sveinbjörn, nema auðvitað þegar maður var í MH og fékk punkta. Þar sem ég er ríkisstarfsmaður þá get ég komist upp með það að lúra yfir mig nær endalaust. Reyndar geri ég það ekki og alls ekki núna þar sem ég er í næturvinnu og er vaknaður löngu áður en ég á að mæta í vinnu.
The password to post a comment is:
(Steinn)