28.11.2008 | Street Diplomacy

Steinn Linnet kom eitt sinn með blellaða hugmynd um Ultimate Fighting Championship mót þar sem þjóðhöfðingjar landa myndu mætast í búri og útkljá utanríkismál. Tillagan kom í kjölfarið á umræðu um það hvað Vladimir Pútín er hardcore gæji.

Undanfarið hefur verið þó nokkur tittlingur á sviði alþjóðapólitíkur. Íslendingar töldu sig jafnvel lenta í milliríkjadeilu við Breta, allir voru leiðinlegir við Íran og Norður-Kóreu, og leiðtogar hika ekki við að senda öðrum tóninn í núverandi kreppu árferði.

Því vil ég meina að fyrrnefnt mót sé löngu orðið tímabært. Eða í það minnsta tölvuleikur þess efnis.

Því tók ég mig til í dag og setti saman hugmyndir um það hvernig slíkur tölvleikur gæti litið út. Ég var reyndar full lengi að þessu þar sem ég var að dunda mér við ýmislegt annað, og varð fyrir sífelldum truflunum. Þannig vil ég nú afsaka hvað þetta er hroðvirknislega gert, en ég held að þið náið hugmyndinni.


streetfighter2
Medvedev og Merkel mætast á rússneskri herstöð

streetfighter3
Putín er ber að ofan á safari þegar hann rekst skyndilega á Gordo

streetfighter4
Geir freistar þess að berja lán út úr "rússneska birninum"

Persónulega myndi ég spila þennan leik þangað til það blæddi úr augunum á mér. Svo er þetta líka bara heilnæm skemmtun fyrir ungviðið þar sem það lærir eitt og annað um alþjóðapólitík og diplómasíu.

Nú vil ég freista þess að fá tillögur frá fólki um hvað leikurinn ætti að heita.

Einnig væri gaman ef fólk kæmi með tillögur að t.d.

  • Hvaða leiðtogar væru ómissandi í þessum leik.
  • Hvaða backdrop væri töff að bardagarnir ættu sér stað við. (T.d. Rauða Torgið)
  • Hvaða sérstöku "power-move" og hvaða "fighter nick-name" þeir væru með.

Einnig væri töff að fá tillögur um hvernig pólarísering væri í leiknum. Þ.e.a.s. í svona leikjum eru yfirleitt tvær fylkingar, góð og vond (þó þeir reyndar hiki ekki við að berja hvorn annan). T.d. Þróuð ríki vs. Þriðji heimurinn eða Einræðisríki vs. Lýðræði

Ræðið.


17 comments
(Doddi)




17 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Doddi at 28.11.2008

Doddi

Þessi færsla er awesome. Ég held að það væri mikilvægt að hafa sögulega leiðtoga þarna inni, eins og Hitler, Lenín og Napóleon B.

Annars las ég þessa setningu fyrst svona: Undanfarið hefur verið þó nokkur tittlingur á sviði alþjóðapólitíkur.

Jók skemmtanagildi færslunnar enn meira.

[ Reply ]

Arnaldur at 28.11.2008

Arnaldur

Þú ert bara svona dónakall. Durgur jafnvel. Heheheh.

[ Reply ]

Arnaldur at 29.11.2008

Arnaldur

Já. Það gæti verið svona follow up add-on leikur.

Street Diplomacy III - Ghost's of the past. Eða eitthvað svoleiðis.

[ Reply ]

Eiki at 29.11.2008

Eiki

Tók Bush Merkel ekki tvöföldu Vúlkan-gripi á sínum tíma?

Tillögur:
Baraka Bama.
Ralph Raiden (Nader).
John McPain.
Sarah Impalin'.
At-Geir H. Haardass.
Ingibjorg Soul-Ruin.
Hell-Door Ow-Scream-son.
Mahmoud I´m-a-fuck-you-up.

Lið:
Hvað með leynisamtök frjálshyggjumanna (Ósýnilega Höndin) á móti rest. Í stað þess að segja "We are Legion" segja þeir "I am eff."

[ Reply ]

Arnaldur at 29.11.2008

Arnaldur

Jú það er rétt. Eins og myndaleit að Merkel á google leiðir í ljós, þá réðst hann harkalega aftan að henni og og reyndi að bræða hana með Vúlkan-power gripi.

Ætli það gæti verið leynibragðið hans Bush? Ninja-massage-power-grip!

John McPain, Ingibjorg Soul-Ruin, og Hell-door Ow-scream-son, clearly take the cake! Hehehehe

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.12.2008

Sveinbjörn

Þetta fannst mér mjög sniðugt comment.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 29.11.2008

Sveinbjörn

Það er fyndið hversu óitillitssamur maðurinn er -- eftir að hafa verið í mörg ár á dialup tengingu þ.á setur hann inn þessar barbarískt uncompressed risamyndir...

[ Reply ]

Arnaldur at 29.11.2008

Arnaldur

Velkominn á 21. öldina. Take it like a man!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.12.2008

Sveinbjörn

Þú ert svona eins og gyðingarnir í Ísrael. They've been on the wrong end of the stick for centuries, and as soon as they get an army of their own, they turn out to be no better than their persecutors.

[ Reply ]

Gunni at 29.11.2008

Unknown User

Canaan Banana verður að vera með (fyrir þá sem ekki þekkja þann merka mann var hann eitt sinn forsætisráðherra Zimbabwe). Þar sem að hann var fangelsaður fyrir að nauðga lífverðinum sínum í rass ætti að vera auðvelt að finna (in)appropriate special move fyrir karlinn.

[ Reply ]

Arnaldur at 29.11.2008

Arnaldur

Ég heyri bara dimmu hrjúfu röddina í Scorpion úr Mortal Kombat þegar ég les þetta.

-"Get over here!!!"

[ Reply ]

Sindri at 29.11.2008

Sindri

Mig langar til að spila alla þessa tölvuleiki.

[ Reply ]

Steinn at 29.11.2008

Steinn

Vá hvað þetta er blellað cool!!!

Ég var að fá þá hugmynd að einn þessara leikja gæti verið þannig að stóru stjórnmálamenn heimsins væru endakallar, eins og var í fyrsta mortal combat. Putin væri að vitaskuld síðasti endakallinn.

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 29.11.2008

Unknown User

Ég myndi láta power moove, George W. Bush vera að geta kallað fram loftárás úr fjarlægð, með svona predator drones.

Power moove Putin væri að hann gæti látið eitra fyrir þér, áður en bardaginn hefst.

Power moove Castro væri að halda svo langa ræðu að andstæðingurinn drepst úr leiðindum.

Power moove Obama væri eitthvað svona break dance vindmyllu dæmi, svona fyrst hann er svartur.

Veit ekki með aðra.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.12.2008

Sveinbjörn

Já! Og power-move Geirs H. Haarde gæti verið að leggja fjárhag andstæðings síns í rúst.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 1.12.2008

Sveinbjörn

Og Guðni Ágústsson myndi henda rollum. Það er alveg klárt mál...

[ Reply ]

Doddi at 7.12.2008

Doddi

Svona super-sheep eins og í tölvuleiknum Worms.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment