Results for 2008-12

24.12.2008 | Gleðileg Jól á línuna 2008

benderrobosanta8

Gleðileg Jól!

Happy Christmas!

God Jul!

Joyeux Noël!

Fröhliche Weihnachten!

Felix Navidad!

メリークリスマス!

Nollaig chridheil!

Срећни празници!

كل سنة وانت طيّب

Happy Other!*

...og megi leiðir okkar liggja saman á ný á fersku ári.



*Hannukah and Kwanzaa and whatever else floats your boat.


4 comments
(Valgerður bjarnar)



23.12.2008 | AMX?

Frjálshyggjukverúlantinn og "hlekkja-peddler-inn" Friðbjörn Orri hefur ásamt öðrum opnað nýja fréttagátt sem heitir AMX og er sjálftitluð "fremsti fréttaskýringavefur landsins".

Á heiti síðunnar veit ég ekki nánari deili en vissulega hljómar þetta einna helst eins og misheppnað American Express cybersquat.

Aðal markmið miðilsins, virðist manni vera, að tíunda með pedantic nákvæmni ferðamáta auðjöfra og svo gagnrýni á Evrópusambandið.

Eitt aðalsmerki AMX fljótt á litið, virðist þó vera gamalkunnugt trix sem að lengi hefur svosem viðgengist á Íslandi, en öðlaðist ákveðinn alræmdan stimpil þegar það var bent á óhóflega notkun þess á fox-fréttastofunni.

Trixið felst í því að koma með nafnlausar ábendingar og benda á einhvern óskilgreindan og óstaðfestan "almannaróm," máli sínu til stuðnings. Nú þykir þeim kumpánum ábyggilega ekki leiðum að líkjast þegar ég spyrði þá við ómaga þann sem runnin er undan Rupert Murdoch, en það breytir því ekki að þetta er bara lélegt.

Í alvöru talað, hvernig er hægt að koma með svona staðhæfingar? Þetta stenst ekki skoðun.

"Innan Samfylkingarinnar gætir vaxandi óróa meðal þeirra, sem sætta sig ekki við einstefnu Ingibjargar Sólrúnar í Evrópumálum og þykir hún hafa samræðustjórnmál og lýðræðislegar leikreglur að engu"


Annars er ég nokkuð hrifinn af útliti vefsins og ýmsum lausnum þar í.


5 comments
(Árni)



22.12.2008 | Bill Murray Appreciation Society

wumurray2
"Bill Groundhog-Day, Ghostbustin'-Ass Murray!"

2 comments
(Arnaldur)



18.12.2008 | Currency Generator 419

Hey, ég er með geðveika hugmynd hvernig Íslendingar geta orðið sér úti um gjaldeyristekjur, núna fyrst við erum orðin þriðja heims ríki.

Hvernig væri að færa sér í nyt gamalgróna og vel þekkta aðferð bræðra okkar í Nígeríu og plata grunlausa Vesturlandabúa til þess að millifæra peninga á okkur með tölvupósts-fjöldasendingum og hirða svo allt af þeim?

Við gætum jafnvel ábyggilega orðið betri í þessu ef eitthvað er, miðað við tölvueign- og kunnáttu landsmanna. Ekkert fax vesen hjá Íslendingunum og svo kunnum við miklu betur ensku og eigum jakkaföt.

Hér er lítið dæmi sem ég setti saman til gamans.


REQUEST FOR URGENT BUSINESS RELATIONSHIP

FIRST, I MUST SOLICIT YOUR STRICTEST CONFIDENCE IN THIS TRANSACTION. THIS IS BY VIRTUE OF ITS NATURE AS BEING UTTERLY CONFIDENTIAL AND 'TOP SECRET'. I AM SURE AND HAVE CONFIDENCE OF YOUR ABILITY AND RELIABILITY TO PROSECUTE A TRANSACTION OF THIS GREAT MAGNITUDE INVOLVING A PENDING TRANSACTION REQUIRING MAXIIMUM CONFIDENCE.

WE ARE TOP OFFICIAL OF THE GOVERNMENT ASSET REVIEW PANEL WHO ARE INTERESTED IN IMPORATION OF GOODS INTO OUR COUNTRY WITH FUNDS WHICH ARE PRESENTLY TRAPPED IN ICELAND. IN ORDER TO COMMENCE THIS BUSINESS WE SOLICIT YOUR ASSISTANCE TO ENABLE US TRANSFER INTO YOUR ACCOUNT THE SAID TRAPPED FUNDS.

THE SOURCE OF THIS FUND IS AS FOLLOWS; DURING THE FINANCE MELTDOWN HERE IN ICELAND, THE GOVERNMENT OFFICIALS SET UP RETURN COMMITTEES AND FROZE ASSETS WHICH WERE GROSSLY UNDER-INVOICED IN VARIOUS BANKING INSTITUTIONS. THE PRESENT TOTALITARIAN GOVERNMENT SET UP AN ASSET REVIEW PANEL AND WE HAVE IDENTIFIED A LOT OF INFLATED ASSET FUNDS WHICH ARE PRESENTLY FLOATING IN THE CENTRAL BANK OF ICELAND READY FOR PAYMENT.

HOWEVER, BY VIRTUE OF OUR POSITION AS CIVIL SERVANTS AND MEMBERS OF THIS PANEL, WE CANNOT ACQUIRE THIS MONEY IN OUR NAMES. I HAVE THEREFORE, BEEN DELEGATED AS A MATTER OF TRUST BY MY COLLEAGUES OF THE PANEL TO LOOK FOR AN OVERSEAS PARTNER INTO WHOSE ACCOUNT WE WOULD TRANSFER THE SUM OF US$21,320,000.00(TWENTY ONE MILLION, THREE HUNDRED AND TWENTY THOUSAND U.S DOLLARS). HENCE WE ARE WRITING YOU THIS LETTER. WE HAVE AGREED TO SHARE THE MONEY THUS; 1. 20% FOR THE ACCOUNT OWNER 2. 70% FOR US (THE OFFICIALS) 3. 10% TO BE USED IN SETTLING TAXATION AND ALL LOCAL AND FOREIGN EXPENSES. IT IS FROM THE 70% THAT WE WISH TO COMMENCE THE IMPORTATION BUSINESS.

PLEASE,NOTE THAT THIS TRANSACTION IS 100% SAFE AND WE HOPE TO COMMENCE THE TRANSFER LATEST SEVEN (7) BANKING DAYS FROM THE DATE OF THE RECEIPT OF THE FOLLOWING INFORMATIOM BY TEL/FAX; 354-5554454, YOUR COMPANY'S SIGNED, AND STAMPED LETTERHEAD PAPER THE ABOVE INFORMATION WILL ENABLE US WRITE LETTERS OF CLAIM AND JOB DESCRIPTION RESPECTIVELY. THIS WAY WE WILL USE YOUR COMPANY'S NAME TO APPLY FOR PAYMENT AND RE-AWARD THE CONTRACT IN YOUR COMPANY'S NAME.

WE ARE LOOKING FORWARD TO DOING THIS BUSINESS WITH YOU AND SOLICIT YOUR CONFIDENTIALITY IN THIS TRANSATION. PLEASE ACKNOWLEDGE THE RECEIPT OF THIS LETTER USING THE ABOVE TEL/FAX NUMBERS. I WILL SEND YOU DETAILED INFORMATION OF THIS PENDING PROJECT WHEN I HAVE HEARD FROM YOU.

YOURS FAITHFULLY,

DR ARNMUNDUR GUDBRANDSSON

NOTE; PLEASE QUOTE THIS REFERENCE NUMBER (VE/S/09/2008) IN ALL YOUR RESPONSES.

Æi, já nei. Alveg rétt. Gaurarnir í Landsbankanum og Kaupþing voru víst búnir að bösta þetta múv í Bretland og Hollandi.


4 comments
(Sveinbjörn)



17.12.2008 | Did you remember to bring a rubber?

Ég hélt að svona gerðist bara í útlöndum.

Í raun finnst mér þetta setja okkur á kort með alvöru löndum þar sem svona skrýtnir og óviðfelldnir hlutir gerast.

Nú ætla ég ekki einu sinni að reyna að gera mér það upp hvernig það er að vera með píku, en ég verð að segja að mér þykir þetta hið undarlegasta mál. Er ekki dálítið skrýtið og jafnvel fyndið, án þess að það sé gert eitthvað lítið úr því hversu ljótur (bolta)leikur þetta er, að ganga um með 6cm bolta í leggöngunum og taka ekki eftir því?


1 comments
(Sveinbjörn)



11.12.2008 | Fatta þetta ekki, ennþá meira...

WTF!?!

Besta bloggfærsla í heimi?.

"Tími frálshyggjunar er ekki lokið líkt og fall kommúnismann og Berlínamúrinn,vegna þess að þetta er ekkert annað heldur enn hugmyndafræði.Ánn frálshyggjunar myndi efnahagsástandið enga veiginn ganga upp og við verðum að minnka útgjöld í skattakerfinu og einkavæða bankana og fjármálastofnana enn koma upp skýr fjármálalög."

[sic]


5 comments
(Einar Orn)



11.12.2008 | Co-operatives

Steinn Linnet gerði mér grein fyrir þó nokkru síðan að til væru fyrirbæri sem kallast "co-operatives" eða... ehhh... "sam-vinnings"?

Fyrir þá sem hafa ekki áttað sig á þessu, þá eru co-ops fyrirbæri þar sem fólk úr samfélaginu tekur höndum saman til að kaupa ferska matvöru og aðra neysluvöru, beint frá birgjum, eða bændum. Í raun eru þetta eins og smávaxin kaupfélög.

Þetta tryggir fólkinu ódýrari matvöru sem er gjarnan ferskari, og kemur oftast beint úr næsta nágrenni. Neytendurnir hafa þá líka betri stjórn á því hvaðan varan kemur og eru í betri aðstöðu til að velja þá framleiðendur sem þeim hugnast.

Þetta þykir mér últra blelluð hugmynd og væri til í að sjá þetta í reynd hér á landi.

Hér er stutt grein sem fjallar um co-ops í Bretlandi.

Margar útfærslur eru til á þessu fyrirbæri. Co-opin sem fjallað er um í greininni eru flest fremur smá, með félaga frá nokkrum tugum og upp í einhver hundruð. Í Bandaríkjunum, einkum New York, eru til frekar stór co-op, þar sem fólk jafnvel vinnur sjálfboðavinnu í einhverjar klst á viku sem sitt framlag.

Hugmyndin er ekki sú að koma út í gróða, heldur að taka út miðju-manninn og fá þannig út hagstæðara vöruverð, auk þess að hafa betri stjórn á því hvaðan varan kemur.

Allt miðast þetta að því að vera ekki ofurseldur einu Bónus-sjoppunni í póstnúmerinu.

Nú hef ég tekið eftir því, til dæmis á moggablogginu, að fólki gremst að versla við Bónus, en telur sig ekki standa frammi fyrir neinum raunhæfum valkosti um annað, sem hlýtur að lýsa óeðlilegu samkeppnisumhverfi í það minnsta.

Því segi ég co-op á línuna, og slátrum þessum Bónus-grís í eitt skipti fyrir öll.


9 comments
(Doddi)



10.12.2008 | The Lake Restrict-ed

lakedistrictarial

Djöfulli eru menn eitthvað últra blell-geðveikir á því.

The Lake District í Cumbria, er klárlega með fallegri stöðum sem ég hef komið til í Evrópu. Staðurinn hefur verið inspírasjón fyrir ýmis þau stærstu ljóðskáld sem ensk tunga hefur af sér getið, s.s. Wordsworth, Hawthorne, Keats, Tennyson og Sir Walter Scott. Ef hægt væri að finna einhverskonar platónska frummynd af enskri sveitarómantík, þá væri Lake District málið.



Hvernig dettur mönnum svo í hug að best sé farið með svæðið?

Jú, dumpa high-level kjarnorkuúrgangi þar!

Er ekki í lagi með fólk?

Djövulli er New Labour eitthvað ekki málið þessa dagana.




8.12.2008 | Hvar ertu í hausnum?

-"Leimmér að tala!"
-"Hvar ertu, í hausnum, þú veist, skiluru!?!"

-Heyrt í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt Sunnudags 7. des.


1 comments
(siggi)



7.12.2008 | Mottukraftar

"A man without a mustache is... rather like a woman with one."

-Nick Cave


1 comments
(Óforskammaði Plánetudrengurinn)



4.12.2008 | Fatta þetta ekki

Jóhann Hallgrímsson, Tölvunnarfræðingur[sic] í Háskólanum í Reykjavík, skrifar áleitna hugleiðingu um bætur í formi skattaívilnana til þeirra sem misstu fjármuni í peningamarkaðssjóðum bankanna, undir yfirskriftinni "Fatta þetta ekki".

Eftirfarandi er bein tilvitnun:

"...það ætti ekki að koma neinu[sic] meðaskynsömum[sic] mönnum að[sic] óvart að þegar hlutabref[sic] falla þá minkar[sic] í sjóðunum.

ég[sic] veit að þetta er óvinsælt að segja en þetta fólk hefur vara[sic] tapað penunum[sic] og hefur enga málbót[sic]."

Nei Jóhann, ég fatta þetta heldur ekki.

af hverju eiga hlutabrefakallar að fá málbót að meðan meðajóninn horfir að minkandi kaupmátt og á vara nein penuna!


6 comments
(Arnaldur)



4.12.2008 | I'll be Baack!

davidbunny1

Aumingja Davíð segir að enginn hafi hlustað á sig þegar hann ætlaði að redda málunum.

Mússí, mússí, múúú.

Davíð er pirraður og segir að þetta sé allt fjölmiðlafrumvarpinu að kenna.

Oooo, æjæj.

Já, hann var bara svo veikur að hann gat ekki þröngvað frumvarpinu í gegn eins og hann hefði annars gert.

Skamm Óli! Sjáðu hvað þú ert búinn að gera!

Aðspurður, segir Davíð að hann ætli aldrei að hætta. Hann muni ennfremur líta til náttúrulækningaraðferða til þess að verða ódauðlegur, svo hann geti verið viðloðandi íslensku ríkisstjórnina þangað til heimurinn ferst. Og ef að við segjum honum að hætta þessari vitleysu, þá muni hann bara koma til baka eins og Arnold Schwarzenegger í Terminator.

Davíð segir sjálfur upp á dönsku: "Jeg er kun 6o år og atter helt rask, så jeg har tænkt mig at sidde endnu nogle år og derefter træde tillbage lige så frivilligt, som jeg gjorde som statsminister. Hvis jeg tvinges væk, stiller sagen sig anderledes. Så vil jeg vende tilbage til politik, lyder det med et hvast blik i øjnene."


Það er svo bara spurning hvenær hann heldur Kool-aid partýið?



davidbunnybig1
Davíð getur haldið endalaust áfram með Daviduracell batteríunum

5 comments
(Sveinbjörn)



3.12.2008 | Modern Art's Faithful New Lackey

1930felixthecat

Hmmm...

Er Mark Leckey eitthvað...? Æi. Ég veit ekki.

Krem-kallinn er þó allavega stundum soldið blellaður.




Ég sver það. Nú þarf að fara að ræsa Le Dada Nouveaux.




2.12.2008 | The Ghost of John Maynard Keynes


3 comments
(Sigurgeir Þór)



2.12.2008 | Heimurinn er undir útrás

Ég pikkaði þetta nú upp af síðunni hans Egils Helgasonar, en þar er dælt inn svo miklu efni frá degi til dags að erfitt er að henda reiður á þessa hluti hjá honum. (Er Egill einn af þessum óreiðumönnum sem maður heyrir svo mikið um?)

Þess vegna ákvað ég bara að pósta þessu hérna.

Um er að ræða yndislega glærusýningu eftir Svöfu Grönfeldt frá því fyrir um ári. Þar kemur greinilega fram að "okkar tími er kominn" og að Íslendingar séu svo frábærir af því að þeir séu svo duglegir að vinna. Hún bara gleymir að minnast á hvað við vorum dugleg að taka lán.

Gjörið svo vel: Heimurinn er undir útrás!

Ég elska líka hvað þetta er hip og kúl og höfðar til mín sem ungs fólks. Vúúúúú!


6 comments
(Eiki)



2.12.2008 | The Gayest Story Ever Told

gaybible

Hommalingar í Nýju-Mexíkó hafa tekið sig til og útbúið nýja samkynhneigða útgáfu af Biblíunni.

Fordómaþjakaðir og kreddufullir "sannkristnir" menn þar í landi hafa tekið uppátækið óstinnt upp (pun intended) og finnst það glatað.

Persónulega er það nú mín skoðun að Biblían er eiginlega nú þegar með samkynhneigðari bókum sem að fyrirfinnast og þarf því eiginlega ekkert frekari overt samkynhneigðunar með.

Sömuleiðis þykir mér fróðlegt að vita hvernig maður "gay-ar upp" Biblíuna, sem er í grófum dráttum (pun intended) endalaus bók um fólk sem dælir út afkvæmum á industrial-level-i, milli þess sem það finnur út úr siðferðislegum vandamálum á sýrutrippi. Það samræmist kanski ekki svo vel "the gay lifestyle" samkvæmt mínum skilningi, en hey; Biblían er líka full af kraftaverkum.

Ég verð þó að segja að ég hafði gaman að "úber-sexy-Lesbo-action" peppinu sem var vísað til í greininni.

Ég vil þó leiðrétta einn misskilning í greininni. Þar er staðhæft að til séu 116 biblíuútgáfur, en ég hef góða ástæðu til að telja að ekki hafi verið tekin með í þann reikning miklivægusta og blellaðasta útgáfan til þessa. Útgáfan okkar Árna...


Hin ALVÖRU Biblía 21. aldarinnar.

Being Christian has never been this gay!


6 comments
(Sveinbjörn)



1.12.2008 | Til hamingju Ísland!

Þá eru komin 90 ár frá fullveldi. Nú er tíminn til að vera góður við sjálfan sig og náungann.

skjaldarmerki

Annars er það mikil synd hvað 1. des hefur misst gildi sitt á liðnum áratug(um). Ég man þá tíð að 1. des var ekki bara fullveldisdagur, heldur líka fullgildur frídagur.

Sama hvað má nú segja um partíljónið hann Óla Grís, þá verð ég að vera sammála honum þegar hann segist vilja hefja 1. des aftur til fyrri vegsemdar og virðingar.

Til að halda upp á daginn hef ég hugsað mér að trítla niður í háskóla eftir hádegi og hlusta á nokkur vel valin erindi og umfjallanir og taka þátt í hátíðarhöldunum á þessum eina stað sem ennþá virðir þennan merka dag viðlits.

Til hamingju með daginn.


1 comments
(Sveinbjörn)