Þá eru komin 90 ár frá fullveldi. Nú er tíminn til að vera góður við sjálfan sig og náungann.

Annars er það mikil synd hvað 1. des hefur misst gildi sitt á liðnum áratug(um). Ég man þá tíð að 1. des var ekki bara fullveldisdagur, heldur líka fullgildur frídagur.
Sama hvað má nú segja um partíljónið hann Óla Grís, þá verð ég að vera sammála honum þegar hann segist vilja hefja 1. des aftur til fyrri vegsemdar og virðingar.
Til að halda upp á daginn hef ég hugsað mér að trítla niður í háskóla eftir hádegi og hlusta á nokkur vel valin erindi og umfjallanir og taka þátt í hátíðarhöldunum á þessum eina stað sem ennþá virðir þennan merka dag viðlits.
Til hamingju með daginn.
Ég er nú löngu kominn á þá skoðun að það sé nú bara best að við undirritum nýjan sáttmála við Noregskonung og göngum honum aftur á hönd. So much for fullveldi...
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)