2.12.2008 | The Gayest Story Ever Told

gaybible

Hommalingar í Nýju-Mexíkó hafa tekið sig til og útbúið nýja samkynhneigða útgáfu af Biblíunni.

Fordómaþjakaðir og kreddufullir "sannkristnir" menn þar í landi hafa tekið uppátækið óstinnt upp (pun intended) og finnst það glatað.

Persónulega er það nú mín skoðun að Biblían er eiginlega nú þegar með samkynhneigðari bókum sem að fyrirfinnast og þarf því eiginlega ekkert frekari overt samkynhneigðunar með.

Sömuleiðis þykir mér fróðlegt að vita hvernig maður "gay-ar upp" Biblíuna, sem er í grófum dráttum (pun intended) endalaus bók um fólk sem dælir út afkvæmum á industrial-level-i, milli þess sem það finnur út úr siðferðislegum vandamálum á sýrutrippi. Það samræmist kanski ekki svo vel "the gay lifestyle" samkvæmt mínum skilningi, en hey; Biblían er líka full af kraftaverkum.

Ég verð þó að segja að ég hafði gaman að "úber-sexy-Lesbo-action" peppinu sem var vísað til í greininni.

Ég vil þó leiðrétta einn misskilning í greininni. Þar er staðhæft að til séu 116 biblíuútgáfur, en ég hef góða ástæðu til að telja að ekki hafi verið tekin með í þann reikning miklivægusta og blellaðasta útgáfan til þessa. Útgáfan okkar Árna...


Hin ALVÖRU Biblía 21. aldarinnar.

Being Christian has never been this gay!


6 comments
(Sveinbjörn)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 2.12.2008

Halldór Eldjárn

Eigum við ekki bara í framtíðinni að g.r.f. að öll pun hjá þér séu intended? Sparar mikla skriffinsku :D

[ Reply ]

Arnaldur at 2.12.2008

Arnaldur

Jú. Gerum bara ráð fyrir því.

Ég vil samt bara innilega að fólk taki eftir þessum skemmtilegu pun-um. Þau láta mig líta út fyrir að vera svo skemmtilegur og sniðugur og gáfaður og klár og frábær.

[ Reply ]

Eiki at 2.12.2008

Eiki

Jólagjöfin í ár: arftaki Nintendo Wii...

Nintendo Pu!

[ Reply ]

Eiki at 2.12.2008

Eiki

Hvenær stendur svo til að gera gyðingvæna útgáfu af Mein Kampf?

Eða niðursetningsútgáfu af Íslendingasögunum?

Gott hjá þeim samt. Ekki getur biblían versnað mikið við þetta.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 3.12.2008

Sveinbjörn

Nei maður, þetta spice-ar hana bara upp. Reyndar verð ég að játa að ég hef alltaf haft helvíti gaman af "fire and brimstone" sögunum í Gamla Testamentinu -- þetta er fínasti litteratúr -- en Nýja Testamentið er alveg hrikalega, ólýsanlega tedious. Smá lesbó aksjón með Maríu Magdalenu hljómar nákvæmlega eins og eitthvað sem gæti gert þetta að meira spennandi lesningu.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 3.12.2008

Sveinbjörn

Annars vil ég taka það fram að þessi tillaga þín um Mein Kampf fer fyrir brjóstið á mér. Sú bók er nærri hjarta margra okkar og við viljum ekki sjá hana spillta af gyðingamafíunni sem stjórnar heiminum, og þ.a.l. þér.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment