Ég pikkaði þetta nú upp af síðunni hans Egils Helgasonar, en þar er dælt inn svo miklu efni frá degi til dags að erfitt er að henda reiður á þessa hluti hjá honum. (Er Egill einn af þessum óreiðumönnum sem maður heyrir svo mikið um?)
Þess vegna ákvað ég bara að pósta þessu hérna.
Um er að ræða yndislega glærusýningu eftir Svöfu Grönfeldt frá því fyrir um ári. Þar kemur greinilega fram að "okkar tími er kominn" og að Íslendingar séu svo frábærir af því að þeir séu svo duglegir að vinna. Hún bara gleymir að minnast á hvað við vorum dugleg að taka lán.
Gjörið svo vel: Heimurinn er undir útrás!
Ég elska líka hvað þetta er hip og kúl og höfðar til mín sem ungs fólks. Vúúúúú!
Haha... Já, eins og segir á síðustu glærunni: Okkar tími kom. En svo fór hann snarlega aftur.
Þetta er það ógeðslegasta sem ég hef séð. Hvernig ætli framsagan sjálf hafi verið?
Sjaldan hefur einn fingur komist nær mínum púlsi.
Ég fæ sama hroll og þegar ég sá Beykigróf í fyrsta skipti (biker... grove!)
The password to post a comment is:
(Eiki)