Steinn Linnet gerði mér grein fyrir þó nokkru síðan að til væru fyrirbæri sem kallast "co-operatives" eða... ehhh... "sam-vinnings"?
Fyrir þá sem hafa ekki áttað sig á þessu, þá eru co-ops fyrirbæri þar sem fólk úr samfélaginu tekur höndum saman til að kaupa ferska matvöru og aðra neysluvöru, beint frá birgjum, eða bændum. Í raun eru þetta eins og smávaxin kaupfélög.
Þetta tryggir fólkinu ódýrari matvöru sem er gjarnan ferskari, og kemur oftast beint úr næsta nágrenni. Neytendurnir hafa þá líka betri stjórn á því hvaðan varan kemur og eru í betri aðstöðu til að velja þá framleiðendur sem þeim hugnast.
Þetta þykir mér últra blelluð hugmynd og væri til í að sjá þetta í reynd hér á landi.
Hér er stutt grein sem fjallar um co-ops í Bretlandi.
Margar útfærslur eru til á þessu fyrirbæri. Co-opin sem fjallað er um í greininni eru flest fremur smá, með félaga frá nokkrum tugum og upp í einhver hundruð. Í Bandaríkjunum, einkum New York, eru til frekar stór co-op, þar sem fólk jafnvel vinnur sjálfboðavinnu í einhverjar klst á viku sem sitt framlag.
Hugmyndin er ekki sú að koma út í gróða, heldur að taka út miðju-manninn og fá þannig út hagstæðara vöruverð, auk þess að hafa betri stjórn á því hvaðan varan kemur.
Allt miðast þetta að því að vera ekki ofurseldur einu Bónus-sjoppunni í póstnúmerinu.
Nú hef ég tekið eftir því, til dæmis á moggablogginu, að fólki gremst að versla við Bónus, en telur sig ekki standa frammi fyrir neinum raunhæfum valkosti um annað, sem hlýtur að lýsa óeðlilegu samkeppnisumhverfi í það minnsta.
Því segi ég co-op á línuna, og slátrum þessum Bónus-grís í eitt skipti fyrir öll.
Þetta er auðvitað frábær hugmynd en eru það ekki oft sömu aðilar sem flytja inn og selja á Íslandi?
"Aðföng er stærsta og fullkomnasta birgða-og dreifingarstöð landsins. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir matvöruverslanir Haga." -adfong.is
Svipað með Eymundsson og Dreifingarmiðstöðina, ef þau fyrirtæki eru enn til, og vafalaust fleiri.
Ég held að tilgangurinn sé einmitt að sneiða hjá gaurum eins og Aðföngum. Fara þá beint til bændanna osfrv. Að sjálfsögðu vandast málin á landi sem er jafn háð innflutningi og Ísland en í mörgum tilvikum ætti allavega að vera hægt að fækka milliliðum eða losna í það minnsta við mark-upið hjá smásölum.
Ég er feitt að spamma þig.
The Nature of the Firm was a brief but highly influential essay in which Coase tries to explain why the economy is populated by a number of business firms, instead of consisting exclusively of a multitude of independent, self-employed people who contract with one another. Given that "production could be carried on without any organization at all", Coase asks, why and under what conditions should we expect firms to emerge?
Ég sé ekki betur en að hér sé fyrirtæki að fæðast!
Annað: Hugmyndin er ekki sú að koma út í gróða, heldur að taka út miðju-manninn og fá þannig út hagstæðara vöruverð.
Já ókei, auðvitað fæst enginn gróði með hagstæðara vöruverði. Getur alveg kallað þetta að taka út illan corporate-miðjumann. Fyrst og fremst er þetta góð hugmynd fyrir einstaklinga og heimili til að hagræða í rekstri.
En þetta er afbragðshugmynd. Ég skal vera með í þessu.
The password to post a comment is:
(Doddi)