Frjálshyggjukverúlantinn og "hlekkja-peddler-inn" Friðbjörn Orri hefur ásamt öðrum opnað nýja fréttagátt sem heitir AMX og er sjálftitluð "fremsti fréttaskýringavefur landsins".
Á heiti síðunnar veit ég ekki nánari deili en vissulega hljómar þetta einna helst eins og misheppnað American Express cybersquat.
Aðal markmið miðilsins, virðist manni vera, að tíunda með pedantic nákvæmni ferðamáta auðjöfra og svo gagnrýni á Evrópusambandið.
Eitt aðalsmerki AMX fljótt á litið, virðist þó vera gamalkunnugt trix sem að lengi hefur svosem viðgengist á Íslandi, en öðlaðist ákveðinn alræmdan stimpil þegar það var bent á óhóflega notkun þess á fox-fréttastofunni.
Trixið felst í því að koma með nafnlausar ábendingar og benda á einhvern óskilgreindan og óstaðfestan "almannaróm," máli sínu til stuðnings. Nú þykir þeim kumpánum ábyggilega ekki leiðum að líkjast þegar ég spyrði þá við ómaga þann sem runnin er undan Rupert Murdoch, en það breytir því ekki að þetta er bara lélegt.
Í alvöru talað, hvernig er hægt að koma með svona staðhæfingar? Þetta stenst ekki skoðun.
"Innan Samfylkingarinnar gætir vaxandi óróa meðal þeirra, sem sætta sig ekki við einstefnu Ingibjargar Sólrúnar í Evrópumálum og þykir hún hafa samræðustjórnmál og lýðræðislegar leikreglur að engu"
Annars er ég nokkuð hrifinn af útliti vefsins og ýmsum lausnum þar í.
(Árni)