Results for 2009-01

31.1.2009 | Drink and facebook

Það er frekar mikið faul að vera fullur á netinu. Sérstaklega þegar maður fer að transa samfélagsvefi eins og facebook.

Viltu koma í slag!?!


4 comments
(Arnaldur)



31.1.2009 | Hér er stjórnun, um stjórnun...

stjornunmynd2
Klassi. Stjórnun verður mynduð.



30.1.2009 | Európopp á föstudegi

Ég er búinn að vera mjög conflicted yfir því hvort að það sé góð hugmynd að ganga í EU. Í raun er ég nú ekki búinn að mynda mér endanlega skoðun á því og sveiflast dálítið á milli í þeim efnum.

Fundamentally er ég frekar hrifinn af þessari ríkjasambands-pælingu, og get séð margt gott koma út úr því, en eins og stendur geta flestir verið sammála um að EU er ennþá frekar gallað og óljóst með stöðu svona freakishly skringilegs aðildarlands eins og Íslands.

Eitt er allavega víst að ég held að það sé þörf á fullri nærgætni nú um mundir og að menn megi ekki taka EU upp á arma sína sem einhverju bjargræði eins og að um hin einu sönnu trúarbrögð séu um að ræða.

Ég er þess þó fullviss að á einhverju stigi málsins munum við ganga til liðs við EU og og þá verði það gert með sómasamlegum hætti. Greinar sem þessar hvetja mig ennfremur til dáða og sannfæringar um það að EU geti orðið fyrirtaks lausn í fyllingu tímans, ef menn eru til í að ganga heilir til verks.

Ekki gengur að líta ákaft til þeirra þátta sem kæmu til skerðingar, eins og verið hefur hér og víðar til lengri tíma, því að samningar fela alltaf í sér afsöl og ávinning. (Og er það nú almennt mál manna að í sögulegu samhengi hafi Íslendingar verið gjarnir að ganga til samninga með háleit markmið um einhliða ávinning, eins og heimurinn skuldi okkur eitthvað.)

Það er mín skoðun að það hljóti allavega að vera í lagi að taka stöðuna, gera úttekt á því hvernig við kæmum út úr þessu, og svo kalt mat sem er ekki byggt á tilfinningarökum í eina eða aðra áttina um hvort þetta sé góð eða slæm hugmynd. Ef vel reynist gætu allir grætt á aðild, annars ekki. Gleymum því heldur ekki að EU er í stöðugri endurskoðun og endurmótun og kannski gætum við fundið okkur þar stað, fyrr en seinna.

Ég held að lokum að það sé algerlega orðið ljóst mál að við getum ekki staðið hér ein, 300.000 á móti heiminum. Nú þegar heimurinn er að brotna upp í 3-4 stórar valdablokkir, er lítið ráðrúm fyrir lítinn smákónga-kofa í bakgarðinum. Hann verður rifinn á einhverju stigi málsins. Ekki nema mögulega ef í honum leynist olíu-sletta (sem gæti reyndar líka orkað í báðar áttir).


Þessu algerlega ótengt, þá er allvega gott að vita að sumir eru ekki algerlega siðlausir.


3 comments
(Sveinbjörn)



30.1.2009 | Að reisa pýramída

nyserecession1

Mig langaði til að benda á þetta fáránlega sniðuga yfirlit yfir það hvernig stendur á þessari fjármálakreppu.

Kemur í ljós að þetta var allt bara eitt stórt pýramída-scam og allir lánuðu sjálfum sér 8 sinnum meiri pening en þeir héldu að þeir ættu, og var til í heiminum.




29.1.2009 | Í férrtum e þeta hlest

mblfrettabull
Póstmódernískur fréttaflutningur í boði Morgunblaðsins

9 comments
(Grímur)



28.1.2009 | No Garden Party

Shit hvað ég er ánægður með Mezzo. Meiri dugur í þeim en fyrrverandi ríkisstjórninni.




28.1.2009 | Dr. Phil. í íslenskum byltingum

Vá. Gísli Marteinn fer alveg á kostum þessa dagana. Ætli það sé einhver ládeyða í Edinborg?

Í grein sinni Bylting fyrir byrjendur, (sem ég geri ráð fyrir að sé nafn á kúrs sem hann sækir enda virðist hann sérfróður um byltingar) gefur Gísli lítið fyrir aðgerðir almennings undanfarna daga.

Samkvæmt Gísla byltingarsérfræðingi var einvörðungu um mannsöfnuð að ræða (sem skiptir náttúrlega engu máli) og í raun var þetta ekki einu sinni mannsöfnuður, þar sem þetta voru allt Vinstri-Grænir (sem eru ekki menn, heldur bjánar sem vita ekkert um byltingar).

Gísli Marteinn, sem virðist vera búinn að þróa með sér sjötta skilningarvitið sem gerir honum kleyft að meta byltingar að gæðum, bendir hinsvegar á að Fréttablaðið í slóttugu samstarfi við taugaveiklaða Samfylkingu hafi velt ríkisstjórninni úr sessi. Gísli heldur áfram og bendir á að þetta sé allt helvítis kjaftæði enda sýni 800 manna úrtök Fréttablaðsins, hinn eini sanni mælikvarði á vilja fólksins, fram á allt annað en það sem einhverjir mótmælendur hafa að segja um málið.

Hver ætli sé qualitatíva críterían hjá Gísla, til að það megi kalla eitthvað byltingu? Hvað ætli margir þurfi að deyja í byltingunni hans Gísla? Ætli Flauels-byltingin í Tékkóslóvakíu hafi nokkuð verið bylting í augum Gísla? Hvaðan fékk Gísli þetta ægilega skilgreiningarvald?

Nú ætla ég ekki að gerast svo hátíðlegur að reyna að skilgreina það sem gerðist í síðustu viku nákvæmlega. En í mínum hugarheim má alveg kalla það byltingu, þegar beinar aðgerðir borgaranna bera árangur og kröfum þeirra er mætt. Það þarf ekki einu sinni að vera grátbroslegt í mínum hug. Að ég tali nú ekki um ef sitjandi valdhöfum er bylt úr stólum sínum. Um þetta eru nú held ég líka flestir utanaðkomandi fjölmiðlar mér sammála.

Að lokum kann ég því illa að vera spyrtur við einhvern pólitískan f(l)okk, sem ég á ekki endilega neina samleið með, þótt ég lýsi í verki yfir óánægju minni með fávita.


3 comments
(Steinn)



26.1.2009 | Horfandi á flís með bjálka í augum

gilliogvilli

Gísli Marteinn segir Samfylkinguna vera drasl, með ónýta flokksforystu, í pistli á síðunni sinni. Reyndar gengur hann lengra og segir Samfylkinguna ekki vera til, heldur sé Samfylkingin margir flokkar, ef ég skil hann rétt.

Persónulega þykja mér þessar yfirlýsingar Gísla Marteins vera með ólíkindum. Það þarf nú ekki að líta langt aftur til að minnast þeirra óheilinda og þeirrar yfirgengilegu eiginhagsmunavörslu sem Sjálfstæðisflokkur, með Gísla Martein innanborðs, gerðist sek um fyrir einhverjum mánuðum síðan í borginni. Ekki fór þar fyrir flokksforrystunni og þess hlýtur að vera minnst þegar menn fóru í flæmingi út um bakdyr á eigin flokksvígi. Þá er ágætt að hafa bakvið eyrað að ekki ræddi þar um efnahagsleg framtíðarafdrif heillar þjóðar, en mun heldur misheppnaða og trúðslega tilraun til að ræna almenning eigum þeirra.

Nú get ég svo sem ekki sagst vera sérdeilis hrifinn af Samfylkingunni eftir dapurlegt tímabil síðustu mánuða. En þar sem Gísli Marteinn sér veikleika í viðbrögðum við ákalli almennings um skipti á stjórnarheimilinu, get ég ekki séð sem annað en vísi að lýðræðislegum þankagang og vinnubrögðum.

Ég held að Sjálfstæðismenn mættu nú alveg líta í eigin barm, átta sig á því að þeirra hlutverk er þjónusta við borgarana, og að það er hægt að skipta um skoðun endrum og eins, ef maður getur stillt sig og hætt trylltum spillingardans í kringum flokksalda gullkálfa.

Annars er ég hrifinn af hausnum á síðunni hans Gísla. Það er eitthvað trippy við þessi fljótandi ský. Ætli maður læri svona í Edinborg?


3 comments
(Arnaldur)



26.1.2009 | Afturhaldskommatittir

Nú er það langt í frá að ég sé fullkomnlega sáttur í öllum atriðum við stefnu Vinstri Grænna eða alla þá sem þar eru innanborðs. Þó er það nú svo að ég hef lengi vel rennt flokkinn hýru auga með tilliti til ýmissa góðra mála sem þau hafa haft fram að færa, og nokkurra sköruglegra andlita innan flokksins sem ég tel að væru traustsins verð.

Mér finnst samt þessi þingsályktunartillaga sem þau lögðu fram alveg mögnuð, og ég trúi því varla að hún sé frá 2005. Ef þetta lýsir ekki framsýni og getu til úrlausna, þá veit ég ekki hvað.




26.1.2009 | Maður sér bara rautt

Djövulli er ég ánægður með Guðmund. Þetta er eins og talað út úr mínum munni.




24.1.2009 | Koddí partí!

Ég held að þetta sé steiktasta vídjó sem ég hef séð lengi.

Svo finnst mér þessi kínverska auglýsing líka frábær.




22.1.2009 | Nei þýðir Já...

Ef maður skrifar inn URL-ið www.nei.is þá lendir maður á www.ja.is


4 comments
(Eiki)



22.1.2009 | Drasl

Þetta er náttúrulega mesta skíta grein sem ég hef lesið. Einhverjir "vísindamenn" sem halda því fram að fleiri Bretar en Bandaríkjamenn hafi farist með Titanic vegna þess hversu kurteisir Bretarnir voru.

Persónulega held ég að stór þáttur í því að fleiri Bretar hafi farist, sé að þeir hafi að öllum líkindum verið fleiri um borð, og fleiri fátækir Bretar um borð, á öðru og þriðja farrými.

Dæmið er ekki flókið. Skipið var á leið frá Bretlandi. Þeir Bandaríkjamenn sem hafa verið á skipinu hafa því verið í "round-trip" og það er mjög ólíklegt að þú splurge-ir á þig "round-trip" Bretlands árið 1912 án þess að þú sért nokkuð vel settur. Þ.a.l. er rökrétt að álykta að það séu fleiri Bretar um borð.

Aftur á móti hafa annað og þriðja farrými væntanlega verið full af fátæku Bresku fólki sem hefur ætlað sér að immigrate-a til Bandaríkjanna. Auk þess hefur crew-ið væntanlega meira og minna verið breskt.

Ég vil því breyta þessari frétt á þá leið að hún lesist: "Fátækir Bretar sukku með Titanic"

Svo mega þessir blaðamenn alveg fara að chilla á því að éta upp skíta popp-rannsóknir hráar.


4 comments
(Arnaldur)



21.1.2009 | Man stroke woman

Las þessa afskaplega skemmtilegu grein um "man/woman shortages", sem mér fannst fáránlega athyglisverð.

Gaur raise-ar mjög astute punkta þarna.

Jæja drengir, þá fer þetta virkilega að kicka inn eftir c.a. 2 ár.


2 comments
(Arnaldur)



20.1.2009 | Bílalager

xhonda 9536

Mönnum gengur víst eitthvað hálf illa að losa sig við nýja sem notaða bíla þessa dagana. Svo mikið svo víst, að framleiðendur eru farnir að halda að sér höndum og draga úr framleiðslu.

Ég hef nú sjálfur séð bílaportið niðri á Sundahöfn stappfullt af bílum, en það kamst nú hvergi nærri með tærnar þar sem þessar myndir hafa hælana.




20.1.2009 | Búúúúúúúúúúú

sprondraslsafari

Þetta finnst mér vera KJAFTÆÐI!!!


4 comments
(Arnaldur)



20.1.2009 | Tvær setningar

Í dag safnast saman mannfjöldi við þinghúsin í Bandaríkjunum og á Íslandi. Tilefnin eru með mörgu lík, en þó svo suddalega ólík.




20.1.2009 | The Dream Team

Ég fann myndaalbúm með allskonar myndum af MJ sem einhverjir fans voru búnir að setja saman á facebook. Ég missti mig í einhverjum fortíðarljóma og mundi hvað ég hafði óbilandi áhuga á NBA-deildinni og öllu sem við kom hinum ofurmannlega Michael Jordan.

sportsillustratedallstars1992
They don't make'em like they used to!



19.1.2009 | ...og indie-meterinn sprakk

Vá. Ég hef aldrei séð jafn extreme samansafn af hopelessly indie fólki.

Indie á krakki.

Þá verð ég nú að segja að ég hef töluvert meira gaman að þessu galleríi.




16.1.2009 | Commentarii de Bello Gallico

goscinnyuderzo1967

Fann þessa frétt, um útgáfuréttardeilur í tengslum við uppáhalds teiknimyndasögurnar mínar, Asterix, á mbl.is.

Ég ákvað nú að kynna mér deiluna aðeins betur, fannst fréttin hálf undarleg á mbl.is, og komst þá að því að þessi deila er búin að standa yfir fyrir opnum tjöldum í rúman mánuð.

Fréttin á mbl, finnst mér heldur draga upp mynd af frekri stelpu sem er leiðinleg við aldraðan föður sinn og vill ekki leyfa honum að sýsla með sköpunarverk sitt.

Þessi grein sem Sylvie Uderzo skrifar í Le Monde dagblaðið, finnst mér þó draga upp nokkuð aðra mynd. Fyrir utan það hvað ég er ótrúlega montinn af sjálfum mér fyrir að hafa getað staglast í gegnum þetta á menntaskólafrönskunni minni, þá finnst mér nú birtast ákveðið viðhorf þarna sem ég get ekki verið annað en sammála.

asterixobelix12

Þess utan sé ég ekki ástæðu til að draga staðhæfingar hennar um að þetta gangi þvert á við fyrri óskir föður hennar í efa. Sjálfur man ég eftir að hafa lesið viðtöl við Uderzo á sínum tíma, í tengslum við kvikmynirnar um Asterix, þar sem hann virtist ekkert alltof sáttur og sagði að það þyrfti að passa vel uppá Asterix osfrv. án þess að hann vildi segja of mikið um málið. Ef ég man rétt þá finnst mér eins og að hlutdeild Goscinny í Asterix hafi líka skipt hann miklu máli.

Mér finnst Sylvie Uderzo alveg koma með valid punkt í þessari grein um að það væri frekar skrýtið og slullað ef menn færu að framleiða nýjar Tinnabækur. Enn fremur má nú benda á nærtækara dæmi, en ekki veit ég til þess að menn hafi lagst út í það að gefa út Lukku Láka eftir andlát Goscinny.

Mér finnst að ævistörf þessara manna eigi að fá að hvíla í friði, þótt menn vilji etv. eitthvað gera lítið úr því að hér er um teiknimyndasögur að ræða. Einhvern vegin efa ég að menn væru áfjáðir í að gera framhald af Sjálfstæðu fólki eða eitthvað þaðan af skrýtnara. (Ég geri mér samt vel grein fyrir því að það eru til svoleiðis bækur, eins og t.d. Bond library-ið.)

spirou

Á hinn bóginn eru til dæmi um vel heppnaða titla sem margir hafa komið að, t.d. Svalur og Valur. Þá eiga menn sér uppáhalds höfunda og teiknara. Þó finnst mér tvennu ólíku saman að jafna þar. Svalur og Valur, á það sammerkt með mörgum slíkum titlum, að vera commissioned verk, sem Dupuis-útgáfan bað sérstaklega um, þó svo að Franquin hafi búið til/þróað karakterana. (Enda sést að Franquin átti Sval og Val síður en svo. Hugmyndin að Sval var ekki hans, og hann fékk ekki að taka þá með frá Dupuis þegar hann gekk út. Einungis Viggó og Gormur fylgdu honum eftir. Takið eftir að Gormur kemur aldrei fram í bókunum sem eru skrifaðar eftir að Franquin hættir, nema sem tilvísun.)

Sama máli gegnir um meirihluta mainstream amerískra teiknimyndasagna sem eru gefin út á viku fresti yfir fleiri áratugi (þó að þau komi nánast aldrei út á réttum tíma). Þau eru aldrei ætluð sem einstök verk einstakra manna, og eiga meira skylt með einhverju eins og sjónvarpsþáttum.

Persónulega verð ég að taka afstöðu með Sylvie í þessu máli öllu saman. Asterix sem, ekki er í það minnsta teiknaður af Uderzo, (látum það liggja milli hluta hvort Goscinny eða Uderzo skrifa,) er ekki Asterix fyrir mér.

Úff, sorry með mig, þetta er orðið mun lengra en ég ætlaði. Þetta eru bara mínar ær og kýr.




16.1.2009 | Misunderestimate me once... you can't understand me!

Hahahhaha... Best í heimi!




16.1.2009 | Daft Punk Obama eitthvað...

Er þetta eitthvað? Ég veit það ekki...

Fíla samt Kubrick-ana á diskótekinu.




16.1.2009 | Number six meets his fate

Prisoner grab1

Patrick McGoohan dáinn. Megi hann hvíla í friði blessaður.


"I am not a number — I am a free man!"


4 comments
(Hugi)



15.1.2009 | Salat minibar

Spurning hvort maður fer ekki að skoða Íslam sem raunverulegan alternatív við þessu guðsvolaða guðleysi?

Múslimarnir kunna þetta. Ekki aðeins eru þeir með fullt af allskonar mismunandi salati, heldur fylgir líka með ókeypis minibar.

(P.S. Takið eftir grínistanum sem hefur editerað Salat-færsluna.

Önnur málsgrein:
"Prayer is performed five times a day: at dawn (fajr), noon (dhuhr), in the afternoon (asr), at sunset (maghrib) and nightfall (isha'a). It is obligatory for all Muslims once they have reached puberty, unlike Ludovik.")


5 comments
(Sveinbjörn)



15.1.2009 | Gælufíll

Getum við vinsamlegast farið að einbeita okkur að því sem virkilega skiptir máli og drifið í að klóna þessa dverg-fíla?

Mikið væri ég til í að eiga lítinn fíl sem gæludýr.

naldomedsmafil

3 comments
(Sveinbjörn)



14.1.2009 | Bindiskylda

tiemess

Ég hef orðið var við það hjá sumum vinum mínum að þeir virðast hafa eitthvað á móti bindum. Er það hálf-staðfest kenning mín, að þetta hafi í raun meira að gera með þá staðreynd að margir karlmenn á mínum aldri hafa ekki hugmynd um það hvernig maður bindur bindishnút.

Mér datt því í hug að pósta hérna link á síðu með ágætis leiðbeiningum fyrir flesta algengustu bindishnútana. Þarna er hægt að sjá átta algenga hnúta eins og hálf-Windsor og einfaldan, auk þverslaufuhnútsins. Einnig eru vídjó, með pásum ef þetta vefst fyrir mönnum.

Það fer reyndar dálítið í taugarnar á mér við þessa síðu að menn séu að differentiate-a milli Cross-Knot og Half-Windsor, sem er í grófum dráttum sami hnúturinn. Slíkt er bara fallið til þess að rugla menn.

Enn fremur finnst mér gæinn ekki alveg nógu pró, þegar kemur að lokastigi hnútsins, þegar þarf að troða breiða endanum í gegnum síðustu loop-una. Persónulega advocate-a ég spids-inn fyrst, og varlegan gegnumdrátt meðan maður heldur hnútnum laust saman með vísi- og þumalfingri. Þessi gaur treður þessu bara einhvernveginn í gegn. Enda lendir hann í massa veseni með að gera hnútinn lögulegan og fallegan á eftir.

Annars fannst mér frekar merkilegt að Sævar Karl er með bindishnýtingar-flash tutorial á síðunni sinni, nema bara að þetta er Prince Albert-hnútur sem, fyrir utan það að vera frekar óalgengur, er bara ekki fallegur hnútur finnst mér.

Sævar Karl fær þó props fyrir að vera með nice skyrtu-straujunar tutorial, og leiða mig þannig í allan sannleikann um það afhverju skyrturnar mínar hafa alltaf komið út svona illa straujaðar, þegar ég hef verið að bisa við þetta sjálfur.

Að lokum vil ég hvetja menn til að byrja smátt. T.d. á einföldum (sem heitir á útlensku Small Knot), og reyna sig seinna áfram með örlítið flóknari hnúta eins og hálf-Windsor. Það sem er etv. erfiðast er að finna rétta jafnvægið strax í upphafi, með hversu langt hvor endinn á að hanga langt niður, en það er breytilegt eftir bindum og verður kannski best ljóst þegar menn fara að læra á bindin sín. Svo er bara spurning um að binda og binda og binda þar til þetta er farið að líta sómasamlega út hjá mönnum.

halfwindsorold
Fann skann af gömlu leiðbeiningunum sem ég lærði að binda hnút eftir.
Meiraðsegja Half Windsor, sem er uppáhalds hnúturinn minn

6 comments
(Arnaldur)



14.1.2009 | Ljóð með rými

Ég hef nú alltaf fagnað því þegar menn styðjast við formið, eða í það minnsta fara varlega í alla tilraunastarfsemi.

Nú er ég undanfarið búinn að lesa ákall, frá þó nokkrum einstaklingum á ýmsum stöðum, eftir ljóðum með rými. (T.d. hér.)

Það er kannski öllu flóknara mál.




13.1.2009 | Stórasta þjóð í Evrópu

Morgunblaðið slær ný met í rangfærslum og lélegri blaðamennsku. Ég nenni ekki að fara sérstaklega í það, en hérumbil hver einasta staðhæfing í þessari frétt, er annaðhvort röng, óljós eða í besta falli tvíræð.

Uppáhaldið mitt er samt örugglega staðhæfingin:
"Alls voru íbúar Frakklands um nýliðin áramót 64,3 milljónir, í öðru sæti á eftir Þýskalandi en Þjóðverjar eru 366.500 fleiri en Frakkar en frjósemin á síðasta ári var hins vegar minni hjá Þjóðverjum en Frökkum."

Ég get séð hvar ruglingurinn liggur, en það er nú reyndar bara vegna þess að ég var að vinna skýrslu um þetta um daginn. Það verður nebblega líka að passa voða mikið uppá hvaðan tölurnar manns koma, hvaða svæði maður er að díla við nákvæmlega, og síðan hvenær tölurnar manns eru.




13.1.2009 | To the Hamas

Annaðhvort er Ingi Örn Hafsteinsson mögulega mesti upprennandi snillingur Íslands, eða þá að hann er eitthvað allt annað. Ég treysti mér ekki alveg til að dæma, en eitt er víst að ljóðið hans To the Hamas er hrein geðveiki.

Lets go to the hamas
lets make war with bananas
i`ll shout you and you`ll shout me
and the winner get`s to live in peace
let`s go to the Hamas
with yellow gun`s bananas




13.1.2009 | 14.528 SMS

Ég verð pirraður ef ég þarf að senda meira en 2-3 SMS consecutively.




13.1.2009 | Úje!

pink floyd 770119
Wish I was there



12.1.2009 | Stjórnarráðiðu

stjornarradidu
Fagmannurlegin blaðarmannska

4 comments
(Hugi)



10.1.2009 | BaR2D2

Bar2D21

Ég held að það væri pínku töff að eiga svona græju. Myndi alveg stela senunni í partíum. Verð samt að segja að eins mikið og ég dáist að hugmyndinni og að gaurinn skuli actually hafa nennt að smíða bot-inn, þá er útfærslan pínku sjoppuleg. Sérstaklega neonljósin sem eru full mikið Ibiza fyrir minn smekk.

Ég held að það sé klárlega málið að smíða nýja útgáfu sem lítur meira út eins og orginal R2D2-inn, þó svo að maður verði að fórna einhverju functionaliteti.


r2d2tinyimg

Þá er maður kominn með verkefni fyrir næstu árin.


6 comments
(Sindri)



9.1.2009 | Átak

Arnaldur is temporarily down for maintenance. Please try again later.
We apologize for the inconvenience.


3 comments
(Sveinbjörn)



8.1.2009 | Lógó mánaðarins

velthorsmall

Héreftir framvegis hef ég hugsað mér að taka sérstaklega fyrir lógó, eða aðrar hönnunarlausnir sem mér fellur í geð, svona cirka einu sinni í mánuði.

Lógó mánaðarins er þetta smekklega merki Þórs ehf, vélaverksmiðju í Vestmannaeyjum.

Lógóið er stílhreint, en á sama tíma nokkuð lýsandi fyrir starfsemi fyrirtækisins. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunnar að ef það er hægt að lýsa því sem lógóið stendur fyrir á einhvern hátt, þá eigi að gera það í lógóinu. Arbitrary form hafa aldrei gert það fyrir mig og leturgerðir hljóta að teljast síðasta úrræði, þótt mörg slík lógó séu ágætlega heppnuð.

Annað sem mér finnst takast vel í þessu lógói, er einfaldleikinn. Mér hefur gjarnan fundist að effektíft lógó ætti að vera nógu einfalt til að 6 ára barn gæti eipað það sæmilega vel. Þannig lógó festast í hugum fólks. Það er að segja, ef að fyrirtækið á sér ekki þeim mun eldri sögu og lógó.


6 comments
(Arnaldur)



8.1.2009 | Yngra en árum taki

Ég æli ef ég heyri eða sé orðtakið: "Þetta er þyngra en tárum taki" mikið meira.


4 comments
(Árni)



6.1.2009 | Introduction to the World

Rakst á þessa viðkynningu við heiminn á CIA World Factbook. Mér finnst þetta alveg hlægilega dramatískt og get bara heyrt þetta eins og þetta sé lesið af Trailer-guy/Twilight Zone röddinni við John Williams soundtrack.

Background

Globally, the 20th century was marked by: (a) two devastating world wars; (b) the Great Depression of the 1930s; (c) the end of vast colonial empires; (d) rapid advances in science and technology, from the first airplane flight at Kitty Hawk, North Carolina (US) to the landing on the moon; (e) the Cold War between the Western alliance and the Warsaw Pact nations; (f) a sharp rise in living standards in North America, Europe, and Japan; (g) increased concerns about the environment, including loss of forests, shortages of energy and water, the decline in biological diversity, and air pollution; (h) the onset of the AIDS epidemic; and (i) the ultimate emergence of the US as the only world superpower. The planet's population continues to explode: from 1 billion in 1820, to 2 billion in 1930, 3 billion in 1960, 4 billion in 1974, 5 billion in 1988, and 6 billion in 2000. For the 21st century, the continued exponential growth in science and technology raises both hopes (e.g., advances in medicine) and fears (e.g., development of even more lethal weapons of war).


Ég veit nú um 1,3 milljarða Kínverja búna kjarnavopnum sem gætu haft eitthvað að athuga við staðhæfingu (i).




6.1.2009 | 2009

Gleðilegt ár 2009


2001spodmon
Long overdue...

4 comments
(Arnaldur)