8.1.2009 | Lógó mánaðarins

velthorsmall

Héreftir framvegis hef ég hugsað mér að taka sérstaklega fyrir lógó, eða aðrar hönnunarlausnir sem mér fellur í geð, svona cirka einu sinni í mánuði.

Lógó mánaðarins er þetta smekklega merki Þórs ehf, vélaverksmiðju í Vestmannaeyjum.

Lógóið er stílhreint, en á sama tíma nokkuð lýsandi fyrir starfsemi fyrirtækisins. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunnar að ef það er hægt að lýsa því sem lógóið stendur fyrir á einhvern hátt, þá eigi að gera það í lógóinu. Arbitrary form hafa aldrei gert það fyrir mig og leturgerðir hljóta að teljast síðasta úrræði, þótt mörg slík lógó séu ágætlega heppnuð.

Annað sem mér finnst takast vel í þessu lógói, er einfaldleikinn. Mér hefur gjarnan fundist að effektíft lógó ætti að vera nógu einfalt til að 6 ára barn gæti eipað það sæmilega vel. Þannig lógó festast í hugum fólks. Það er að segja, ef að fyrirtækið á sér ekki þeim mun eldri sögu og lógó.


6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Grímur at 9.1.2009

Grímur

Tja... Mér sýnist nú maðurinn vera með klumbufót. Nema þetta sé einhverskonar Hefestosartilvísun?

[ Reply ]

Arnaldur at 9.1.2009

Arnaldur

Ég veit ekki mér finnst þetta vel heppnað. Maður að berja hamar við steðja, væntanlega smíðandi einn af þessum loðnu börkum eða álhnjám.

[ Reply ]

Grímur at 9.1.2009

Grímur

Hverjir eru annars með þessa loðnu barka sem nefndir eru á heimasíðunni þeirra?

[ Reply ]

Arnaldur at 9.1.2009

Arnaldur

Það er reyndar rétt. Þessi vöruheiti eru æðisleg.

[ Reply ]

Hugi at 13.1.2009

Hugi

Úff.... Ég horfi á þetta lógó og sé bara stórum stöfum fyrir neðan "Gelding sf. - snöggt og örugglega".

[ Reply ]

Arnaldur at 13.1.2009

Arnaldur

Hvurslags er þetta? Ég geri þá ráð fyrir að það fari líka hrollur um eistnalyppurnar þegar þú gengur framhjá manni með loftpressu?


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment