13.1.2009 | Stórasta þjóð í Evrópu

Morgunblaðið slær ný met í rangfærslum og lélegri blaðamennsku. Ég nenni ekki að fara sérstaklega í það, en hérumbil hver einasta staðhæfing í þessari frétt, er annaðhvort röng, óljós eða í besta falli tvíræð.

Uppáhaldið mitt er samt örugglega staðhæfingin:
"Alls voru íbúar Frakklands um nýliðin áramót 64,3 milljónir, í öðru sæti á eftir Þýskalandi en Þjóðverjar eru 366.500 fleiri en Frakkar en frjósemin á síðasta ári var hins vegar minni hjá Þjóðverjum en Frökkum."

Ég get séð hvar ruglingurinn liggur, en það er nú reyndar bara vegna þess að ég var að vinna skýrslu um þetta um daginn. Það verður nebblega líka að passa voða mikið uppá hvaðan tölurnar manns koma, hvaða svæði maður er að díla við nákvæmlega, og síðan hvenær tölurnar manns eru.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment