14.1.2009 | Bindiskylda

tiemess

Ég hef orðið var við það hjá sumum vinum mínum að þeir virðast hafa eitthvað á móti bindum. Er það hálf-staðfest kenning mín, að þetta hafi í raun meira að gera með þá staðreynd að margir karlmenn á mínum aldri hafa ekki hugmynd um það hvernig maður bindur bindishnút.

Mér datt því í hug að pósta hérna link á síðu með ágætis leiðbeiningum fyrir flesta algengustu bindishnútana. Þarna er hægt að sjá átta algenga hnúta eins og hálf-Windsor og einfaldan, auk þverslaufuhnútsins. Einnig eru vídjó, með pásum ef þetta vefst fyrir mönnum.

Það fer reyndar dálítið í taugarnar á mér við þessa síðu að menn séu að differentiate-a milli Cross-Knot og Half-Windsor, sem er í grófum dráttum sami hnúturinn. Slíkt er bara fallið til þess að rugla menn.

Enn fremur finnst mér gæinn ekki alveg nógu pró, þegar kemur að lokastigi hnútsins, þegar þarf að troða breiða endanum í gegnum síðustu loop-una. Persónulega advocate-a ég spids-inn fyrst, og varlegan gegnumdrátt meðan maður heldur hnútnum laust saman með vísi- og þumalfingri. Þessi gaur treður þessu bara einhvernveginn í gegn. Enda lendir hann í massa veseni með að gera hnútinn lögulegan og fallegan á eftir.

Annars fannst mér frekar merkilegt að Sævar Karl er með bindishnýtingar-flash tutorial á síðunni sinni, nema bara að þetta er Prince Albert-hnútur sem, fyrir utan það að vera frekar óalgengur, er bara ekki fallegur hnútur finnst mér.

Sævar Karl fær þó props fyrir að vera með nice skyrtu-straujunar tutorial, og leiða mig þannig í allan sannleikann um það afhverju skyrturnar mínar hafa alltaf komið út svona illa straujaðar, þegar ég hef verið að bisa við þetta sjálfur.

Að lokum vil ég hvetja menn til að byrja smátt. T.d. á einföldum (sem heitir á útlensku Small Knot), og reyna sig seinna áfram með örlítið flóknari hnúta eins og hálf-Windsor. Það sem er etv. erfiðast er að finna rétta jafnvægið strax í upphafi, með hversu langt hvor endinn á að hanga langt niður, en það er breytilegt eftir bindum og verður kannski best ljóst þegar menn fara að læra á bindin sín. Svo er bara spurning um að binda og binda og binda þar til þetta er farið að líta sómasamlega út hjá mönnum.

halfwindsorold
Fann skann af gömlu leiðbeiningunum sem ég lærði að binda hnút eftir.
Meiraðsegja Half Windsor, sem er uppáhalds hnúturinn minn

6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Nanna at 14.1.2009

Nanna

Frábær færsla. Vonandi verður þetta til þess að Sveinbjörn fari að drattast til að ganga með bindi.

[ Reply ]

Sindri at 14.1.2009

Sindri

Ég nota alltaf double windsor. Hann er bestur.

[ Reply ]

Arnaldur at 15.1.2009

Arnaldur

Windsorinn er náttúrulega helvíti flottur ef hann tekst vel til. Mér finnst bara alltaf svo mikið maus að ná honum réttum, og svo fer það í taugarnar á mér hvað það fer mikið af bindinu í hnútinn.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 15.1.2009

Sveinbjörn

Ég geri ráð fyrir því að "sumir vinir" eigi við mig.

[ Reply ]

Arnaldur at 15.1.2009

Arnaldur

Sumir vinir á aðallega við þig, en líka við suma aðra.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 15.1.2009

Sveinbjörn

I regret nothing, I tell you. Nothing!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment