Þetta er náttúrulega mesta skíta grein sem ég hef lesið. Einhverjir "vísindamenn" sem halda því fram að fleiri Bretar en Bandaríkjamenn hafi farist með Titanic vegna þess hversu kurteisir Bretarnir voru.
Persónulega held ég að stór þáttur í því að fleiri Bretar hafi farist, sé að þeir hafi að öllum líkindum verið fleiri um borð, og fleiri fátækir Bretar um borð, á öðru og þriðja farrými.
Dæmið er ekki flókið. Skipið var á leið frá Bretlandi. Þeir Bandaríkjamenn sem hafa verið á skipinu hafa því verið í "round-trip" og það er mjög ólíklegt að þú splurge-ir á þig "round-trip" Bretlands árið 1912 án þess að þú sért nokkuð vel settur. Þ.a.l. er rökrétt að álykta að það séu fleiri Bretar um borð.
Aftur á móti hafa annað og þriðja farrými væntanlega verið full af fátæku Bresku fólki sem hefur ætlað sér að immigrate-a til Bandaríkjanna. Auk þess hefur crew-ið væntanlega meira og minna verið breskt.
Ég vil því breyta þessari frétt á þá leið að hún lesist: "Fátækir Bretar sukku með Titanic"
Svo mega þessir blaðamenn alveg fara að chilla á því að éta upp skíta popp-rannsóknir hráar.
Hvernig skyldi maður fá styrk fyrir svona bógus-rannsóknum? Ég er nokkuð viss um að þessir "vísindamenn" eyddu peningnum í helað fyllerí í Karíbahafinu og sömdu niðurstöðurnar þunnir á fyrsta farrými á leiðinni heim.
Arnaldur, þetta er plan. Við þurfum að redda okkur svona.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)