26.1.2009 | Afturhaldskommatittir

Nú er það langt í frá að ég sé fullkomnlega sáttur í öllum atriðum við stefnu Vinstri Grænna eða alla þá sem þar eru innanborðs. Þó er það nú svo að ég hef lengi vel rennt flokkinn hýru auga með tilliti til ýmissa góðra mála sem þau hafa haft fram að færa, og nokkurra sköruglegra andlita innan flokksins sem ég tel að væru traustsins verð.

Mér finnst samt þessi þingsályktunartillaga sem þau lögðu fram alveg mögnuð, og ég trúi því varla að hún sé frá 2005. Ef þetta lýsir ekki framsýni og getu til úrlausna, þá veit ég ekki hvað.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment