Gísli Marteinn segir Samfylkinguna vera drasl, með ónýta flokksforystu, í pistli á síðunni sinni. Reyndar gengur hann lengra og segir Samfylkinguna ekki vera til, heldur sé Samfylkingin margir flokkar, ef ég skil hann rétt.
Persónulega þykja mér þessar yfirlýsingar Gísla Marteins vera með ólíkindum. Það þarf nú ekki að líta langt aftur til að minnast þeirra óheilinda og þeirrar yfirgengilegu eiginhagsmunavörslu sem Sjálfstæðisflokkur, með Gísla Martein innanborðs, gerðist sek um fyrir einhverjum mánuðum síðan í borginni. Ekki fór þar fyrir flokksforrystunni og þess hlýtur að vera minnst þegar menn fóru í flæmingi út um bakdyr á eigin flokksvígi. Þá er ágætt að hafa bakvið eyrað að ekki ræddi þar um efnahagsleg framtíðarafdrif heillar þjóðar, en mun heldur misheppnaða og trúðslega tilraun til að ræna almenning eigum þeirra.
Nú get ég svo sem ekki sagst vera sérdeilis hrifinn af Samfylkingunni eftir dapurlegt tímabil síðustu mánuða. En þar sem Gísli Marteinn sér veikleika í viðbrögðum við ákalli almennings um skipti á stjórnarheimilinu, get ég ekki séð sem annað en vísi að lýðræðislegum þankagang og vinnubrögðum.
Ég held að Sjálfstæðismenn mættu nú alveg líta í eigin barm, átta sig á því að þeirra hlutverk er þjónusta við borgarana, og að það er hægt að skipta um skoðun endrum og eins, ef maður getur stillt sig og hætt trylltum spillingardans í kringum flokksalda gullkálfa.
Annars er ég hrifinn af hausnum á síðunni hans Gísla. Það er eitthvað trippy við þessi fljótandi ský. Ætli maður læri svona í Edinborg?
gísli er bara lýsandi dæmi um fólk sem sér raunveruleikan endalaust útfrá sínum flokka-gleraugum, sama hvaða flokk fólk tengist er það óþolandi og leiðir til þess að enginn möguleiki er á að tala saman í alvörunni á merkingabæran hátt um það sem er að gerast.
En já, þetta animation er rosa trippy og soldið fyndið, sérstaklega bláu línurnar í byrjun. Er hann að læra á flash á bretlandseyjum?
Hehehe. Mjög góð greining. Það er líka annað sem mér finnst einstaklega skemmtilegt við þennan header og það er að myndin virðist vera tekin nokkurnvegin á þeim stað þar sem rafmagnskassinn í hljómskálagarðinum með stencil-num af Gísla Martein er.
Sjá mynd:
http://www.arnaldur.org/images/gillistudent.jpg
The password to post a comment is:
(Arnaldur)