28.1.2009 | Dr. Phil. í íslenskum byltingum

Vá. Gísli Marteinn fer alveg á kostum þessa dagana. Ætli það sé einhver ládeyða í Edinborg?

Í grein sinni Bylting fyrir byrjendur, (sem ég geri ráð fyrir að sé nafn á kúrs sem hann sækir enda virðist hann sérfróður um byltingar) gefur Gísli lítið fyrir aðgerðir almennings undanfarna daga.

Samkvæmt Gísla byltingarsérfræðingi var einvörðungu um mannsöfnuð að ræða (sem skiptir náttúrlega engu máli) og í raun var þetta ekki einu sinni mannsöfnuður, þar sem þetta voru allt Vinstri-Grænir (sem eru ekki menn, heldur bjánar sem vita ekkert um byltingar).

Gísli Marteinn, sem virðist vera búinn að þróa með sér sjötta skilningarvitið sem gerir honum kleyft að meta byltingar að gæðum, bendir hinsvegar á að Fréttablaðið í slóttugu samstarfi við taugaveiklaða Samfylkingu hafi velt ríkisstjórninni úr sessi. Gísli heldur áfram og bendir á að þetta sé allt helvítis kjaftæði enda sýni 800 manna úrtök Fréttablaðsins, hinn eini sanni mælikvarði á vilja fólksins, fram á allt annað en það sem einhverjir mótmælendur hafa að segja um málið.

Hver ætli sé qualitatíva críterían hjá Gísla, til að það megi kalla eitthvað byltingu? Hvað ætli margir þurfi að deyja í byltingunni hans Gísla? Ætli Flauels-byltingin í Tékkóslóvakíu hafi nokkuð verið bylting í augum Gísla? Hvaðan fékk Gísli þetta ægilega skilgreiningarvald?

Nú ætla ég ekki að gerast svo hátíðlegur að reyna að skilgreina það sem gerðist í síðustu viku nákvæmlega. En í mínum hugarheim má alveg kalla það byltingu, þegar beinar aðgerðir borgaranna bera árangur og kröfum þeirra er mætt. Það þarf ekki einu sinni að vera grátbroslegt í mínum hug. Að ég tali nú ekki um ef sitjandi valdhöfum er bylt úr stólum sínum. Um þetta eru nú held ég líka flestir utanaðkomandi fjölmiðlar mér sammála.

Að lokum kann ég því illa að vera spyrtur við einhvern pólitískan f(l)okk, sem ég á ekki endilega neina samleið með, þótt ég lýsi í verki yfir óánægju minni með fávita.


3 comments
(Steinn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Kalli at 28.1.2009

Unknown User

ég ætlaði einmitt að detta hér inn með frekari gísla pælingar, hér er góð úttekt á þessum byltingarpælingum hans:
http://eyjan.is/freedomfries/index.php/archives/966">http://eyjan.is/freedomfries/index.php/archives/966

[ Reply ]

Arnaldur at 28.1.2009

Arnaldur

Já, andskotinn. Þessi grein er eiginlega miklu betri og ítarlegri.

Ágætt líka hjá þessum gæja að benda á hversu undarlegt það er hvernig Gísli gerir þarna allskonar fólki upp skoðanir eftir eigin höfði.

[ Reply ]

Steinn at 30.1.2009

Steinn

"Útrásarpenni Baugs númer 1". Ætli það sé gamla Íhaldshetjan Hallgrímur Helgason? Hallgrímur skrifaðu "bestu bók allra tíma" að mati Gísla Marteins í viðtal við Hallgrím í Kastljósinu hér forðum.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment