Ég er búinn að vera mjög conflicted yfir því hvort að það sé góð hugmynd að ganga í EU. Í raun er ég nú ekki búinn að mynda mér endanlega skoðun á því og sveiflast dálítið á milli í þeim efnum.
Fundamentally er ég frekar hrifinn af þessari ríkjasambands-pælingu, og get séð margt gott koma út úr því, en eins og stendur geta flestir verið sammála um að EU er ennþá frekar gallað og óljóst með stöðu svona freakishly skringilegs aðildarlands eins og Íslands.
Eitt er allavega víst að ég held að það sé þörf á fullri nærgætni nú um mundir og að menn megi ekki taka EU upp á arma sína sem einhverju bjargræði eins og að um hin einu sönnu trúarbrögð séu um að ræða.
Ég er þess þó fullviss að á einhverju stigi málsins munum við ganga til liðs við EU og og þá verði það gert með sómasamlegum hætti. Greinar sem þessar hvetja mig ennfremur til dáða og sannfæringar um það að EU geti orðið fyrirtaks lausn í fyllingu tímans, ef menn eru til í að ganga heilir til verks.
Ekki gengur að líta ákaft til þeirra þátta sem kæmu til skerðingar, eins og verið hefur hér og víðar til lengri tíma, því að samningar fela alltaf í sér afsöl og ávinning. (Og er það nú almennt mál manna að í sögulegu samhengi hafi Íslendingar verið gjarnir að ganga til samninga með háleit markmið um einhliða ávinning, eins og heimurinn skuldi okkur eitthvað.)
Það er mín skoðun að það hljóti allavega að vera í lagi að taka stöðuna, gera úttekt á því hvernig við kæmum út úr þessu, og svo kalt mat sem er ekki byggt á tilfinningarökum í eina eða aðra áttina um hvort þetta sé góð eða slæm hugmynd. Ef vel reynist gætu allir grætt á aðild, annars ekki. Gleymum því heldur ekki að EU er í stöðugri endurskoðun og endurmótun og kannski gætum við fundið okkur þar stað, fyrr en seinna.
Ég held að lokum að það sé algerlega orðið ljóst mál að við getum ekki staðið hér ein, 300.000 á móti heiminum. Nú þegar heimurinn er að brotna upp í 3-4 stórar valdablokkir, er lítið ráðrúm fyrir lítinn smákónga-kofa í bakgarðinum. Hann verður rifinn á einhverju stigi málsins. Ekki nema mögulega ef í honum leynist olíu-sletta (sem gæti reyndar líka orkað í báðar áttir).
Þessu algerlega ótengt, þá er allvega gott að vita að sumir eru ekki algerlega siðlausir.
"With India and China as rising powerhouses in the East, it is more important than ever for to stick together."
Búúú og niður með ESB, segi ég nú bara.
http://www.sveinbjorn.org/news/2008-05-19-16-56-10">http://www.sveinbjorn.org/news/2008-05-19-16-56-10
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)