Results for 2009-02

27.2.2009 | Framtakssemi

41 færsla í einum mánuði. Og það stysta mánuði ársins.

Þetta er náttúrulega met.


9 comments
(Árni)



27.2.2009 | Fréttir fyrri tíma

Úr Lesbók Morgunblaðsins 31.01.1943

Kona ein í Bandaríkjunum sótti um skilnað við mann sinn af ofur einkennilegum — en skiljanlegum ástæðum.

Hinn ástkæri eiginmaður hennar hafði neytt hana til að jeta sápu, og kleip hana svo og kitlaði stanslaust meðan hún var að því!

Hún fjekk skilnaðinn!


Þetta er nú meiri vitleysan.


10 comments
(Aðalsteinn)



27.2.2009 | WTF!?!

Ok, ég varð að pósta þessu. Þessi frétt sprengdi algerlega wierdness-meterinn hjá mér, fyrir utan það hvað þetta er sordid gæi.

Hvað er í gangi? Í alvörunni talað, ég gæti ekki látið mér detta svona sýru í hug... þó ég væri á sýru.

Life truly is strager than really, really, bad fiction

Líka ótrúlegasta quote líka sem ég hef séð:

"Please warn officers that when he is arrested he might be radio­active. This is not a joke."


2 comments
(Arnaldur)



27.2.2009 | Kimura vs. Gracie

Smá hérna fyrir Steinana mína og auðvitað Sindra.

Allir þessir sturluðu stjónmálamenn minntu mig á legendary bardagann milli Kimura og Gracie í São Paulo 1951.

kimuraflags1

Það er náttúrulega klárt mál að Masahiko Kimura hefur verið einn mest formidable júdó-kappi á sínum tíma. Á sama tíma var Helio Gracie frekar erfiður gæi, og svakalega þrjóskur.

Því miður eru ekki til neinar almennilegar upptökur af þessum ósköpum en þó fann ég hérna eina lélega 2 mín klippu af bardaganum, og þar er hægt að sjá Kimura rústa þessu og kasta Gracie um eins og tusku í tvær af þessum tólf mínútum.

Bardaginn sjálfur entist í rúmar 12 mínútur, sem er rugl að hugsa til, enda fyrirkomulagið töluvert frábrugðið hefðbundnu Judo setupi. Viðureignin endaði með því að Kimura braut hendina á Gracie með lás, sem Gracie hafnaði að bregðast við.

Gracie neitaði að gefast upp, jafnvel þótt hendin á honum væri í mauki, og hornið hans stöðvaði því bardagan. Kimura var þó aðeins dæmdur tæknilegur sigur. (Reglur bardagans kváðu skýrt á um uppgjöf annars aðilans.)

Brasilíska pressan upphóf Gracie sem móralskan sigurvegara kvöldsins fyrir það að hafa ekki gefist upp. Þetta er jafnframt viðmót sem maður heyrir oft hjá Jiu-Jitsu gaurum eða UFC-áhangendum, sem mér finnst alltaf hálf undarlegt.

Hversu marga olnboga þarf maður eiginlega að mölva áður en maður getur á óyggjandi hátt verið kallaður sigurvegari í bardaga?

Nú finnst mér svo sem skiljanlegt að menn mæri svona staðfestu sem slíka, en kommon, það er ekkert töff við að beygja inn á mótstæða akgrein á Reykjanesbrautinni.

Klárt mál að þetta hefur samt verið kick-ass bardagi.


Svo er hérna smá bónus. Nokkur Kodokan-júdó brögð, as demonstrated by Masahiko Kimura. Mjög smooth shit og líka frekar gaman að sjá ýmislegt nýstárlegt þarna.


10 comments
(Arnaldur)



27.2.2009 | Ultimate Legislative Championship!

Einhverjir muna etv. eftir hugmyndinni að Street Diplomacy sem ég var mjög hrifinn af. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að allar stjórnmálaumræður ættu að fara svona fram.

Apparently, þá eru samt svona stjórnmálahættir stundaðir víðsvegar um heiminn eins og einföld youtube leit sýnir glögglega fram á. (Stjórnmálaskóli sjálfstæðisflokksins ætti að hafa þetta í huga ef þeir vilja vera competitive.)

Klárlega hlýtur þessi kóreski stjórnmálamaður samt að fara með sigur af hólmi, ekki bara í þessari tilteknu viðureign, en bara almennt.

Now that's what I call political debate, Tomoe Nage-style!

Íslenskir stjórnmálamenn mættu taka sér þetta til fyrirmyndar.


9 comments
(Arnaldur)



26.2.2009 | Hamhleypa

Stundum þegar fólk ákveður að vafasamur fróðleikur úr heimildamyndum, heimfærður á vafasamar staðreyndir annars staðar frá, í bland við eigin kreddur, séu sannar...

Þá fer ég að hlæja. (Allavega inni í mér.)


8 comments
(Arnaldur)



26.2.2009 | Fimmtudags erfitt...

-Á maður???

-Nei...

-Já, frekar glatað...

-Samt...

-Já, það verður eiginlega...

Var hann Driving Miss Daisy?


1 comments
(Hildur)



25.2.2009 | The Wrestler

mrwrestler
Awsome dude!

Ég hefði nú eiginlega viljað sjá Mickey Rourke taka óskarinn. Sérstaklega eftir að hafa séð þennan hræðilega, hræðilega trailer fyrir Milk, sem var ekki að gera neitt fyrir mig. But what the hell do they know anyway?


8 comments
(Sindri)



21.2.2009 | Einræðisherra eða bóhem...?

German postman hitler128

Ég held að þegar allt kemur til alls, þá hafi Adolf notið sín mun betur sem leiðtogi Þriðja Ríkisins, heldur en í einhverjum vonlausum eltingarleik við misplaced draum sinn um að verða bóhem.

Samt er nú einhver barnslegur sjarmi við þennan þýska póstmann sem hann hefur skapað hér á blaði.


1 comments
(Sveinbjorn)



21.2.2009 | Foghorn

Ég er ekki frá því að mér finnist þoka, og 8-10°C hiti vera bestu veðurskilyrði sem ég veit um, eins og var smá snertur af í gær.




21.2.2009 | Kjartan er hvað?


3 comments
(Sveinbjörn)



21.2.2009 | Á tali með Loga Beiðs

logibeids
Er Logi launsonur Hemma Gunn?

Ég bíð bara eftir Elsu Luund Kirkegård...




20.2.2009 | Járn-saumakonurnar - part 2

Fyrr í þessum mánuði skrifaði ég um Járn-uppana á Seltjarnarnesi sem að eru alltaf að tala um allskonar hluti.

Mig langar að gefnu tilefni til að benda á að í því sama trúnó-samtali og ég geri að umfjöllunarefni mínu í fyrri færslu, heyrði ég að þetta væri að fara að gerast. Reyndar tímasettu járn-saumakonurnar þetta á innan við tveimur vikum, en rauntíminn varð mánuður.

Crazy shit maður! Svakalega er maður með alla puttana á öllum púlsum samfélagsins.


1 comments
(Hildur)



20.2.2009 | Buuuuhuuuuhuuuu!!! no.2




20.2.2009 | I am cornholio!

Vá, ég byrjaði að skrifa um það hvað það væri fucked að núna er að koma í ljós að maís-eldsneyti er að drepa alla í heiminum. En ég ákvað að það væri ekki nógu áhugavert, var bara allur í döðlum yfir þessu.

Dálítið blellað samt. Fyrst tökum við matinn frá þriðja heiminum og breytum honum í bensín svo við getum keyrt einvherja hybrid bíla eða farið í flug með Virgin Airlines og látið okkur líða vel yfir því hvað við erum umhverfisvæn. Svo kemur í ljós að lífræna bensínið drepur okkur öll úr astma og hjartaáföllum...

Æi... þið getið bara lesið þetta sjálf ef ykkur er ekki skít sama!


2 comments
(Arnaldur)



20.2.2009 | Auðkennislykill einhver?

Jæja, þá getur maður hætt að nota heimabankann og farið að rölta sér út í bókabúð í staðinn fyrir að nota amazon.

Einhver gaur sem kallar sig Marlinspike er apparently búinn að sýna fram á það að internetið er frekar mikið shit, og það er fáránlega auðvelt að stela því sem maður vill.

Sjá mjög athyglisverða grein um málið hér.

---
Viðbót: Ég vissi að ég kannaðist við nafnið Marlinspike. Marlinspike Hall er að sjálfsögðu enska nafnið á óðalssetri Kolbeins Kafteins í Tinnabókunum. Ég man nú samt ekki hvað þeir vildu kalla það á íslensku.




19.2.2009 | Demetri Martin's Important Things

Sigurgeir benti mér nýlega á eitthvað það fyndnasta dæmi sem ég hef séð. Megi hann hafa miklar þakkir fyrir.

demetrimartinhummerologysmall

Demetri Martin er últra fyndinn gæi með allskonar þungavigtar shit undir beltinu. T.a.m. skrifaði hann fyrir Late Night with Conan O'Brian, var með puttana í Flight of the Concords og var eitthvað viðriðinn Daily Show með Jon Stewart.

Núna er maðurinn kominn með sitt eigið prógram, sem er eitt það mest skondnasta sem ég hef séð í langan tíma.

Sjá mjög fyndið hér.

Smella á til að sjá stóra mynd og lesa fyndna, fyndna skiltið...




16.2.2009 | The most wanted/unwanted music

Það var nú reyndar í gegnum hann Halldór sem ég datt inn á snilldina sem The Most Unwanted Music er. Þannig að "Mad Props" til Halldórs.

Mæli líka með The Most Wanted Music sem athyglisverðum contrast (jafnvel betra/verra en hitt.)

Fáránlega góð pæling.

Minnir reyndar að ég hefi séð svipaða grein um einhverja listfræðinga sem gerðu rannsókn á því hvað fólki fannst vera list, til þess að gera hið "pan-ultimate" listaverk. Ef ég man rétt átti það verk að vera á stærð við meðal þurrkara, og includera fjöll, vatn og dýr.

Ef einhver hefur nánari upplýsingar, má láta mig fá link.


3 comments
(Arnaldur H.)



16.2.2009 | Paranoid android

Frekar magnað og á sama tíma creepy vídjó með japönsku androidi.

Á sama tíma og mér finnast allar svona Nexus VI pælingar mjög awesome, þá er eitthvað mjög brenglað við að sjá þennan líflausa róbot haga sér svona semi-eðlilega.


Also, mjög skondið að lesa athugasemdirnar við vídjóið. Apparently þá er það eina sem kemst að hjá mönnum að ríða róbotinum. Stundum missi ég alveg trúna á fólki. Einnig; segjum sem svo að þig langi svona voðalega mikið að ríða róbotinum... Meikar það endilega sense að vera að deila því með öðrum á youtube?

Smá viðbót: Ég vona að þetta vídjó sé raunverulegt, en nánari eftirgrennslan leiddi í ljós þó nokkur mjög glötuð "fake" A.I. vídjó, þar sem að dudes voru að þykjast vera búnir að þróa einhverskonar gervigreind, en það var mjög augljóst að róbotarnir voru pre-programmed.




16.2.2009 | Pi and e

Ég ætla ekki að þykjast skilja undirliggjandi samfélagsádeilinguna hérna, en þetta fékk mig allavega til að flissa mjög mikið bara út á það hvað þetta er steikt.

Pi and e on a blind date.


Verð eiginlega líka að benda á þennan ágæta skets frá sama liði.


2 comments
(Arnaldur)



12.2.2009 | Return flight from RZA to GZA

Djövulli væri ég til í að fá flugvöll nefndan eftir mér eins og RZA.

Hérna er líka GZA flugvöllurinn.

GZA - RZA er klárlega leggur sem maður þarf einhverntíman að fljúga ef maður er tilbúinn að viðurkenna að Wu-Tang er Forever.

Ætli þeir viti af þessu?


8 comments
(Arnaldur)



12.2.2009 | Rickylicious

Mér dettur bara Ricky í hug þegar ég les þetta.




12.2.2009 | Chomsky on Obama on Israel-Palestine

Noam Chomsky skrifaði mjög athyglisverða grein í janúar sl. um þá stöðu sem Barak Obama virðist vera að taka sér gagnvart vandamálunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Það má svo sem segja að mikið til er Chomsky að taka saman þekkt sannindi, en greiningin hans á sérlegri afstöðu Obama er mjög vel fram sett og athyglisverð. Ennfremur þykir mér Chomsky bara setja málin fram á frekar aðgengilegan hátt í þessari grein, og hvet ég því fólk til að renna yfir þetta.

(Þetta er nú ekki nema 3-4 bls. - kommon fólk - sýna smá áhuga hérna.)

Obama on Israel-Palestine

Noam Chomsky
chomsky.info, January 24, 2009

Barack Obama is recognized to be a person of acute intelligence, a legal scholar, careful with his choice of words. He deserves to be taken seriously -- both what he says, and what he omits. Particularly significant is his first substantive statement on foreign affairs, on January 22, at the State Department, when introducing George Mitchell to serve as his special envoy for Middle East peace...

Nálgast má greinina í heild sinni hérna


2 comments
(Arnaldur)



12.2.2009 | RZA's Movie

Ég verð að viðurkenna að mig langar frekar mikið að sjá bíómyndina hans.

Aukinheldur væri ég mikið til í að geta búið til mína eigin mynd...




10.2.2009 | Járn-saumakonurnar

Eins og sumstaðar hefur komið fram, hef ég tekið upp á því að byrja daginn í líkamsræktarstöð á Seltjarnarnesi undanfarinn mánuð.

Á líkamsræktarstöðinni kemur saman ýmiskonar fólk, en einkum eru það járn-uppar sem eru áberandi svo snemma á morgnanna. Þessir járn-uppar eiga það sameiginlegt að gleðjast mikið yfir uppanum í sjálfum sér og það eina sem þeir ræða eru vísitölur, peninga og mismunandi sjampó og rakakrem.

Á ákveðnu tímabili eftir sturtu, þegar þeir eru að klæða sig í föt, kemur samt alltaf slúður-trúnó móment og þá verða járn-upparnir líkari ölvuðum skólastelpum í saumaklúbb.

Oft má heyra útundan sér ansi athyglisverð skúbb á þessi stigi og fannst mér því magnað að sjá þessa frétt í dag, tveimur og hálfri viku eftir að ég heyrði hana í búningsklefanum á Seltjarnarnesi.


2 comments
(Arnaldur)



10.2.2009 | Sjálfstæðis "skóli" Stjórnmálaflokksins

Geðveikt! Ég ætla að fara í meðferð á heilaþvottastöð Sjálfstæðisflokksins.

Na-na-na-na-na-na-na-nah... LEADER!!!


6 comments
(Sveinbjörn)



10.2.2009 | Gömul úttekt

Ég er hugmyndafræðilega mjög ósammála þessum manni í flestu, en finnst samt þessi greining hans á umhverfinu aðdáunarverð, fyrir þann tíma sem greinin er skrifuð.

Reyndar mjög athyglisvert að maðurinn virðist telja að rót vandans sé fyrst og fremst sú að starfsmenn Seðlabankans og FME séu ekki að fá nógu svimandi há laun, en ekki að pólitísk skammtímasjónarmið séu undirstaðan í rekstri þessara stofnanna.

Athugasemdirnar eru líka skemmtilegar.




10.2.2009 | Um Seðlabanka, sjálfstæði og flokk

sedloislandicus

Jón Sigurðsson, fyrrum iðnaðarráðherra, formaður Framsóknarflokks og Seðlabankastjóri, kom fram í Speglinum í gær og gaf álit sitt á fyrirhuguðum skipulagsbreytingum við Seðlabanka Íslands.

Erindi Jóns var svosem í marga staði ágætt og get ég hæglega tekið undir margt af því sem hann hafði út á einstaka ágalla á löggjöfinni að setja.

Engu að síður virtist megnið af viðtalinu einhvernvegin fara í það að reyna af veikum mætti að verja núverandi fyrirkomulag, sem Jón sjálfur einmitt átti þátt í því að móta.

Jón segir þetta reyndar alltaf verða álitamál, hvernig maður vill haga fyrirkomulaginu í seðlabanka, en í raun sé ekkert að núverandi skipulagi og telur upp fjölmörg dæmi máli sínu til stuðnings.

Málið er bara að öll dæmin sem hann telur upp, og kallar eftir "danska-módelinu" eru einfölduð í máli hans og látin falla að því sem hann er að reyna að koma á framfæri.

Jú, vissulega eru þrír bankastjórar í Danska seðlabankanum, en einungis einn þeirra er þar samkvæmt konunglegri skipun (hinir eru valdir af faglegu bankaráði). Vissulega eru fleiri en einn seðlabankastjóri í bandaríska seðlabankanum ef þú ákveður allt í einu að telja með ákveðna bankaráðsmenn og útibússtjórana frá þessum tólf fylkjum sem eru með útibú. Hæpnast er kannski að leyfa sér að bera saman strúktúrinn í evrópska seðlabankanum og þeim íslenska.

Það er hægt að fara í leik með tölur um hversu margir bankastjórar eru hér og þar, en þegar allt kemur til alls þá er það sem megin máli skiptir hvernig ráðið er í stöðurnar svo að stofnunin geti sinnt hlutverki sínu á sjálfstæðan hátt.

Sjálfstæðismenn fara nú mikinn um að beiðnir um afsagnir í aðdraganda skipulagsbreytinga séu aðför að pólitísku sjálfstæði bankans, sem aldrei hefur þó verið til staðar. Sést þetta best á "turn-over-rate-inu" á seðlabankastjórum hér, sem gjarnan er notað sem áþreifanlegur mælikvarði á eiginlegt sjálfstæði seðlabanka.

Ennfremur hefur mótvægið við bankastjórn, bankaráðið löngum verið skipað flokksgæðingum eins og sést glögglega ef rýnt er í það hverjir þar hafa átt sæti í gegnum tíðina.

Án þess þó að nenna að hafa um þetta fleiri orð, þá verð ég að segja að ef það var einhverntíman tími til að stokka þessu upp og reyna að koma á sjálfstæði stofnunarinnar, þá er sá tími fyllilega upp runninn.

Og það ættu meira að segja raunsannir Sjálfstæðismenn að geta tekið undir.


Og bara svo það sé algerlega á hreinu, þá hafa Davíð Oddsson, bankastjórnin og bankaráð SÍ, gerst sek um afglöp í starfi á margvíslegan hátt. Ég myndi segja að staða efnahagsmála í dag bæru því augljóst vitni.

Mér þykir það stórmannlegt af Ingimundi að fórna sér svona, því það er ljóst að hann hefur eftir því sem ég best veit gefið sig allan í starf bankans. Hann er maður að meiri.

Veit einhver nákvæmlega í hverju Jóhannes Norðdal var með doktorsgráðu í? Hann útskrifaðist allavega úr LSE.


1 comments
(Steinn)



9.2.2009 | Kreppan dregur úr gæðum

Ahahahha... Þetta er ótrúlega góð frétt um það hvað fréttamiðlar eru mikill kúkur. Geta íslenskir miðlar mögulega orðið lélegri en þeir eru nú þegar?




6.2.2009 | Street Fighter Youtube vídjó

Fólk... Ég veit það ekki...

Er þetta kúl?


4 comments
(Arnaldur)



6.2.2009 | Buuuuhuuuuhuuuu!!!

Kjartan er alger pussa.

Besides, það er ekki eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki gerst sekur um óhuggulegan pólitískan rétttrúnað og látið menn finna fyrir pólitískum skoðunum á eigin skinni í gegnum tíðina.

So put a fuckin' sock in it you muppet!

Djövulsins hræsnarar...


1 comments
(Sveinbjörn)



6.2.2009 | Daisy, Daisy...

Ég rakst á þetta um daginn og fannst þetta bara of merkilegt til þess að minnast ekki á það. Enda hef ég um langt skeið verið fullkomnlega obsessed með kvikmyndina 2001, og tek öllu svona minutia fagnandi.

(Reyndar pínku pirrandi að þetta byjar eiginlega ekki fyrr en á 1:00)

(Sveinbjörn, ég var eitthvað að bögglast við að reyna að uploada þessu og embedda þetta, en það var bara of mikið vesen og ég vissi ekkert hvað ég var að gera. So don't judge me!!!)


1 comments
(Sveinbjörn)



5.2.2009 | 6 lítrar af Bollinger

Skv. þessum mjög undarlega verðlista á heimasíðu Goldfinger (sem er í óþekkta gjaldmiðlinum ikr), þá er hægt að fá 6 lítra af kampavíni á 192.000 ikr.

Fyrir utan það hvað það er hæpið að maður finni sig í þeirri aðstöðu að fá allt í einu craving í 8 flöskur af kampavíni, þá er þetta frekar hátt mark-up.

Að vísu fylgir 30 mínútna einkadans (sem alla jafnan virðist kosta 25.000 ikr), þannig að þetta er kannski ekkert svo slæmur díll.

Það er samt vert að benda á það, fyrir þá sem að eru tvístígandi, að það er vel hægt að fá 8 flöskur af Bollinger í ríkinu á 40.000 kall, og þá er hægt að slá ansi hreint vel um sig á barnum og ganga í augun á kvenpeningnum fyrir þessar 150.000 ikr sem eru eftir (ef þetta eru íslenskar krónur sem um ræðir þeas.).


2 comments
(Arnaldur)



5.2.2009 | The Notorious Gunni B

Notorious GunniBposter2 kopavogsGuniB2
Dedicated to my main man Sigs

6 comments
(Eiki)



5.2.2009 | Goddamit man!

Mikið þykir mér það ótrúlega depressing að lesa um svona kjaftæði.

Virðist vera að sama hvar maður kemur niður, þar er alltaf unscrupulous fólk sem að kúkar á náungann.

Reyndar virðist gaurinn hafa verðið á leiðinni með þetta inn til Gaza, þannig að maður getur ekki gefið sér algerlega hvað málið er.

Ef að dude var að fara að kaupa vopn eða var eitthvað að fokka í íbúum Gaza, þá fær hann algera fordæmingu frá Arnaldi.

Ef að dude var bara eitthvað að klúðra málunum algerlega, en ætlaði ekki að fokka í neinum, þá er hann auli en sleppur með skamm, skamm á úlnliðinn.




5.2.2009 | Þetta finnst mér vera KJAFTÆÐI!!!

Búúúúúú!!! Ekki töff! Mér finnst að allir ættu að þurfa að taka samræmt próf, þó ekki sé nema til að upplifa fylleríið eftir síðasta prófið.

Andri Gísla að fara hamförum í Kringlunni o.s.frv.

Ekki það að þessi samræmdu próf voru orðin hálfgert djók undir lokin.


5 comments
(Arnaldur)



4.2.2009 | Smá kaldhæðni á miðvikudegi

Mbl.is birtir í dag þessa grein þar sem þeir greina frá því að Elísabet II Bretadrottning eigi kröfu í Kaupþing. Fréttin endar á eftirfarandi staðhæfingu:

"Því er málið höfuðverkur íslenska ríkisins, sem telst kaldhæðnislegt í ljósi atburða síðustu mánaða."

Hvað þýðir þetta?

Hvernig getur mbl.is staðhæft að eitthvað sé kaldhæðnislegt?

Afhverju vinna svona miklir spassar á fjölmiðlum landsins?


11 comments
(Eiki)



4.2.2009 | Til hamingju með hvalrekann

Djövulli finnst mér pathetic að heyra þessar auglýsingar frá Sjó- og farmannasambandinu; Akranesbæ; Kópavogsbæ og einhverjum fleirum flónum.

Svona heyri ég þessa auglýsingu:

"Við viljum þakka fyrrum Sjávar- og landbúnaðarráðherra fyrir gerræðisleg og ólýðræðisleg vinnubrögð. Ennfremur fyrir að fara langt út fyrir valdsvið sitt, og höfða til ótrúlega lítils hagsmunahóps á kostnað langtímahagsmuna landsmanna, í pólitískum sandkassaleik."

Ekki misskilja mig samt, mér þykir hvalur alveg jafn góður og öllum öðrum, en mér finnst þetta bara asnaleg framkvæmd.

Já... og frekar low af jafn ágætum dude og Einari K.


4 comments
(Sveinbjörn)



2.2.2009 | Dexter's OS

Dexteros1
Hvaða OS er Dexter eiginlega að nota? Og hvaða browser er þetta?
Hann er allavega að nota apple vél.

10 comments
(Arnaldur)



2.2.2009 | Tilkynning um tilkynningu

Eyjan tilkynnir að fréttastofa vísis hafi tilkynnt að Guðlaugur Þór muni tilkynna framboð á morgun.




2.2.2009 | What for...?

Mér finnst þetta vídjó vera fáránlega sniðugt og vel gert. Spot on...


1 comments
(Nanna)