Búúúúúú!!! Ekki töff! Mér finnst að allir ættu að þurfa að taka samræmt próf, þó ekki sé nema til að upplifa fylleríið eftir síðasta prófið.
Andri Gísla að fara hamförum í Kringlunni o.s.frv.
Ekki það að þessi samræmdu próf voru orðin hálfgert djók undir lokin.
Sammála. Reyndar legg ég til lausn við þessum vanda -- hvað með að *breyta* samræmdu prófunum í eina stóra drykkjukeppni? Enginn sem getur ekki downað kippu án þess að gubba kemst ekki áfram í menntakerfinu. Það ætti að undirbúa greyin fyrir menntaskólaárin?
vááá... ég held samt að við félagarnir höfum slegið í gegn í anti "töffara" skap og gefið skít í Kringlu hamfarirnar. Hvað var það sem við gerðum annars, manstu það? :) Mig rámar allavegana í einhverja strætóferð....
Bíddu nú við já. Þegar þú segir það. Ég man allavega að ég sá bara myndir af Andra Gísla í fréttum Sjónvarpsins, en var ekki á staðnum.
Getur verið að við höfum böstað quasi-fyllerí á körfuboltavellinum og síðan eitthvað hangs þangað til bærinn tók við um kvöldið?
Mig allavega rámar í tekvíla flösku, fyllerí í Alþingisgarðinum og eitthvað faul við að reyna að komast inn á Tetriz.
Gott ef að stöðumælirinn góði kom ekki til þetta kvöld?
Haha, Ég var inni á Tetriz þetta kvöld!
Furðulegur staður, sem nemendur úr Hagaskóla höfðu einhvern veginn náð að taka á leigu. Held Kristín Helga hafi staðið fyrir því.
Þetta var a night to remember. Robbi Chronic var að DJ-a og áður hafði ég drukkið nokkrar flöskur af Prins Christian í heimahúsi á Nesinu og fann þar með á mér í fyrsta skipti á ævinni.
Mér leið svona eins og Martin Prince í Simpsons þegar hann fékk að hanga með Bart og lærði að vera svalur.
Gott ef þetta var ekki 23. apríl 1997. Passar það?
The password to post a comment is:
(Arnaldur)