5.2.2009 | 6 lítrar af Bollinger

Skv. þessum mjög undarlega verðlista á heimasíðu Goldfinger (sem er í óþekkta gjaldmiðlinum ikr), þá er hægt að fá 6 lítra af kampavíni á 192.000 ikr.

Fyrir utan það hvað það er hæpið að maður finni sig í þeirri aðstöðu að fá allt í einu craving í 8 flöskur af kampavíni, þá er þetta frekar hátt mark-up.

Að vísu fylgir 30 mínútna einkadans (sem alla jafnan virðist kosta 25.000 ikr), þannig að þetta er kannski ekkert svo slæmur díll.

Það er samt vert að benda á það, fyrir þá sem að eru tvístígandi, að það er vel hægt að fá 8 flöskur af Bollinger í ríkinu á 40.000 kall, og þá er hægt að slá ansi hreint vel um sig á barnum og ganga í augun á kvenpeningnum fyrir þessar 150.000 ikr sem eru eftir (ef þetta eru íslenskar krónur sem um ræðir þeas.).


2 comments
(Arnaldur)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 6.2.2009

Halldór Eldjárn

Ertu að taka eftir crazy eyes á gellunni þarna? :D

[ Reply ]

Arnaldur at 6.2.2009

Arnaldur

Ahahahahha, já. Magnað.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment