10.2.2009 | Um Seðlabanka, sjálfstæði og flokk

sedloislandicus

Jón Sigurðsson, fyrrum iðnaðarráðherra, formaður Framsóknarflokks og Seðlabankastjóri, kom fram í Speglinum í gær og gaf álit sitt á fyrirhuguðum skipulagsbreytingum við Seðlabanka Íslands.

Erindi Jóns var svosem í marga staði ágætt og get ég hæglega tekið undir margt af því sem hann hafði út á einstaka ágalla á löggjöfinni að setja.

Engu að síður virtist megnið af viðtalinu einhvernvegin fara í það að reyna af veikum mætti að verja núverandi fyrirkomulag, sem Jón sjálfur einmitt átti þátt í því að móta.

Jón segir þetta reyndar alltaf verða álitamál, hvernig maður vill haga fyrirkomulaginu í seðlabanka, en í raun sé ekkert að núverandi skipulagi og telur upp fjölmörg dæmi máli sínu til stuðnings.

Málið er bara að öll dæmin sem hann telur upp, og kallar eftir "danska-módelinu" eru einfölduð í máli hans og látin falla að því sem hann er að reyna að koma á framfæri.

Jú, vissulega eru þrír bankastjórar í Danska seðlabankanum, en einungis einn þeirra er þar samkvæmt konunglegri skipun (hinir eru valdir af faglegu bankaráði). Vissulega eru fleiri en einn seðlabankastjóri í bandaríska seðlabankanum ef þú ákveður allt í einu að telja með ákveðna bankaráðsmenn og útibússtjórana frá þessum tólf fylkjum sem eru með útibú. Hæpnast er kannski að leyfa sér að bera saman strúktúrinn í evrópska seðlabankanum og þeim íslenska.

Það er hægt að fara í leik með tölur um hversu margir bankastjórar eru hér og þar, en þegar allt kemur til alls þá er það sem megin máli skiptir hvernig ráðið er í stöðurnar svo að stofnunin geti sinnt hlutverki sínu á sjálfstæðan hátt.

Sjálfstæðismenn fara nú mikinn um að beiðnir um afsagnir í aðdraganda skipulagsbreytinga séu aðför að pólitísku sjálfstæði bankans, sem aldrei hefur þó verið til staðar. Sést þetta best á "turn-over-rate-inu" á seðlabankastjórum hér, sem gjarnan er notað sem áþreifanlegur mælikvarði á eiginlegt sjálfstæði seðlabanka.

Ennfremur hefur mótvægið við bankastjórn, bankaráðið löngum verið skipað flokksgæðingum eins og sést glögglega ef rýnt er í það hverjir þar hafa átt sæti í gegnum tíðina.

Án þess þó að nenna að hafa um þetta fleiri orð, þá verð ég að segja að ef það var einhverntíman tími til að stokka þessu upp og reyna að koma á sjálfstæði stofnunarinnar, þá er sá tími fyllilega upp runninn.

Og það ættu meira að segja raunsannir Sjálfstæðismenn að geta tekið undir.


Og bara svo það sé algerlega á hreinu, þá hafa Davíð Oddsson, bankastjórnin og bankaráð SÍ, gerst sek um afglöp í starfi á margvíslegan hátt. Ég myndi segja að staða efnahagsmála í dag bæru því augljóst vitni.

Mér þykir það stórmannlegt af Ingimundi að fórna sér svona, því það er ljóst að hann hefur eftir því sem ég best veit gefið sig allan í starf bankans. Hann er maður að meiri.

Veit einhver nákvæmlega í hverju Jóhannes Norðdal var með doktorsgráðu í? Hann útskrifaðist allavega úr LSE.


1 comments
(Steinn)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 10.2.2009

Steinn

Vel mælt. Ég hlustaði á hamsturinn í Speglinum í gær og undraðist að hann fór að reyna að tína til hagsögumenntun sem og ýmsar rekstrarfræðigreinar. Ekki veit ég til þess að það að reka fyrirtæki, jafnvel stórt hafi eitthvað með hagstjórn að gera! Menn eru hræddir um eftirlaunaembætti sín, svo er víst.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment