10.2.2009 | Járn-saumakonurnar

Eins og sumstaðar hefur komið fram, hef ég tekið upp á því að byrja daginn í líkamsræktarstöð á Seltjarnarnesi undanfarinn mánuð.

Á líkamsræktarstöðinni kemur saman ýmiskonar fólk, en einkum eru það járn-uppar sem eru áberandi svo snemma á morgnanna. Þessir járn-uppar eiga það sameiginlegt að gleðjast mikið yfir uppanum í sjálfum sér og það eina sem þeir ræða eru vísitölur, peninga og mismunandi sjampó og rakakrem.

Á ákveðnu tímabili eftir sturtu, þegar þeir eru að klæða sig í föt, kemur samt alltaf slúður-trúnó móment og þá verða járn-upparnir líkari ölvuðum skólastelpum í saumaklúbb.

Oft má heyra útundan sér ansi athyglisverð skúbb á þessi stigi og fannst mér því magnað að sjá þessa frétt í dag, tveimur og hálfri viku eftir að ég heyrði hana í búningsklefanum á Seltjarnarnesi.


2 comments
(Arnaldur)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 10.2.2009

Steinn

Arnaldur, þú ert svo duglegur að blogga! Ef maður gleymir sér í einn dag þá þarf maður að fara í archives til að finna tíndar færslur. Kannski ættirðu að hafa fleiri færslur á hverri síðu þannig að slugsar eins og ég nái að fylgjast með.

Reyndar hef ég enga afsökun, vinn á næturvöktum og hef nógan tíma til að hanga á netinu.

[ Reply ]

Arnaldur at 12.2.2009

Arnaldur

Thy will be done!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment