27.2.2009 | Fréttir fyrri tíma

Úr Lesbók Morgunblaðsins 31.01.1943

Kona ein í Bandaríkjunum sótti um skilnað við mann sinn af ofur einkennilegum — en skiljanlegum ástæðum.

Hinn ástkæri eiginmaður hennar hafði neytt hana til að jeta sápu, og kleip hana svo og kitlaði stanslaust meðan hún var að því!

Hún fjekk skilnaðinn!


Þetta er nú meiri vitleysan.


10 comments
(Aðalsteinn)




10 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Hildur at 1.3.2009

Hildur

Vá hvað þetta er skrítið!! Og af hverju stendur "jeta" og "fjekk"?

[ Reply ]

Sveinbjörn at 2.3.2009

Sveinbjörn

Í gamla daga skrifuðu menn vist íslensku svona...

[ Reply ]

Eiki at 2.3.2009

Eiki

Orthographia (Rettritan)... er orden soddan hlæelegt skrjmsle hia flestum, eige sijdr enn stijlenn, at þeir sem vit á hafa, siá á hana sier til gamans, þeir sem fælast hana.

Þó sumum kannske þyke þetta lijtels verdt, þá er þess ásæmdarmeira ad kunna þad ei i sinu Mále, er madr offtast skal brúka, sem madr lætst kunna i odru framande, y'all.

-Jón Grunnvíkingur

[ Reply ]

Eiki at 2.3.2009

Eiki

öllu heldur:

"... þeir sem fælast hana eige."

[ Reply ]

Arnaldur at 2.3.2009

Arnaldur

Fáránlegt... y'all!

[ Reply ]

Aðalsteinn at 2.3.2009

Aðalsteinn

Þegar ég mun ráða verður é og í fellt út úr íslenska stafrófinu, já og ý.

[ Reply ]

Eiki at 3.3.2009

Eiki

Hvað svo?

Fella restina út og taka upp kyrillíska stafrófið?

Allir skyldaðir til að vera með loðhúfu?

Þið getið átt ykkur. Ég fæ mér bara nýtt stafróf. Með fjárhættuspili. Og portkonum.

Gott betur. Gleymið stafrófinu. Og fjárhættuspilinu.

[ Reply ]

Arnaldur at 3.3.2009

Arnaldur

Hey! If you don't like it, move to Russia!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 3.3.2009

Sveinbjörn

"Ég fæ mér bara nýtt stafróf. Með fjárhættuspili. Og portkonum"

Nei veistu, gleymum bara fjárhættuspilinu og portkonunum.

Do I see a Futurama reference here?

[ Reply ]

Aðalsteinn at 4.3.2009

Aðalsteinn

Nei, smá módifíkasjón.

ý verður í
y verður i
é verður je
u verður y
ú verður u

og bæði putyr og portkonyr!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment