Results for 2009-03

30.3.2009 | Morgun Grime

stryderman

Oft getur verið erfitt að koma sér í gang á mánudagsmorgni, eftir viðburðaríka helgi. Þetta virðist vera nokkuð universalt vandamál, og hefur alið af sér hræðilegar setningar á borð við "Does somebody have a case of the Mondays?"

Hér á landi er einnig stundum talað um svokallaða mánudagsveiki, sem getur varla talist annað en krónísk skrópsýki á háu stigi.

Sjálfur er ég ansi oft mjög illa haldin af einhverskonar ómanneskjulegri ofurþreytu á mánudögum og hef í gegnum tíðina lært að hata mánudaga sérstaklega út af lífinu.

Í morgun upplifði ég svo fullkominn viðbjóð á þeirri staðreynd að ég væri að vakna í vinnnu, allt þar til að ég skellti á eitur hörðu grime-i.

Alla leiðina í vinnuna pumpaði ég út eitruðu grime-i með Tinchy Stryder sem að vakti mig álíka og hlaðin byssa í andlitið.

Eina vandamálið er að núna sit ég hérna og mig langar bara að "shank-a" einhvern, eða ræna banka eða eitthvað...


5 comments
(Siggi)



27.3.2009 | Vansvefta

Oh Lordy! Mikið svakalega er ég þreyttur. Ég veit ekki hvort að þessi föstudagur er til þess að halda hann út. Mig grunar að þetta detti í dott.

Man einhver eftir laginu Insomnia með tónlistarmanninum Faithless? Þetta þótti ofboðslega fínn pappír hér fyrir einhverjum árum. Ætli honum gangi ennþá eitthvað hálf illa að festa svefn?

Annars er góður fílingur fyrir helgarbrölti. Í ljósi þess hef ég ákvarðað að klipping, kaffi og Háteigskjör séu það sem koma skal, og hef neglt þeim niður á opinbera dagskrá. Ég ætla ekki einusinni að minnast á hlutdeild mjólkurbúðarinnar.

Hver ætlar svo að leika við mig um helgina?


Viðbót:
Þegar ég las þessa setningu sem ég hef nú skáletrað í textanum áttaði ég mig á því að þetta er einmitt svona setning sem ég á eftir að lesa aftur eftir 2 ár og fá massívan aulahroll yfir. Aulaleg fyndni og almennt glatað shit. Við leyfum þessu að standa og tékkum á reflexunum eftir einhvern tíma.


6 comments
(Arnaldur)



26.3.2009 | Skuggadrengur

alfredflokiconspiracy

Mig langaði að vekja athygli á sýningu sem stendur yfir um þessar mundir í Listasafni Reykjavíkur. Ég ætlaði nú reyndar að vera búinn að minnast á þetta, en sýningin stendur yfir þar til 10. maí, þannig að ég held að það sé nú enginn skaði skeður svosem.

Sýningin Skuggadrengur - Heimur Alfreðs Flóka, er skipulögð af Sjón og er yfirlitssýning á verkum listamannsins Alfreðs Flóka. Alfreð Flóki var kannski fyrst og fremst teiknari sem lifði og hrærðist í heimi hins súrrealíska, en þvílíkur teiknari af guðsnáð var maðurinn. Sýningin er gott og yfirgripsmikið safn af penna og krítarteikningum eftir þennan snilling, og svo má líta ýmis önnur verk og dót sem tengjast lífi og störfum mannsins.

Einnig er vert að hafa í huga viðburði þá sem tengjast sýningunni en sjá má nánar um þá hér. Reyndar hef ég í öll skiptin svikið sjálfan mig um ferð á slíkan viðburð, en mér skilst á þeim sem sótt hafa, að þar sé einhver snilld á ferðinni. Í alvörunni talað, hver er á ferli kl. 15:00 á sunnudögum? Ókristilegri tími finnst nú vart. Ég held að það sé málið að sitja dálítið fyrir fimmtudeginum 7. maí.

Það eina sem fór í taugarnar á mér við sýninguna, er að einhver auli sem fór og lærði safnfræði í Hollandi ákvað í ljósi þess að sýingin heitir Skuggadrengur að draga lýsinguna niður í drasl. Nú eru myndir Flóka allar frekar dimmar og mikið af detaljum í gangi og það bara er ófyrirgefnalegt að vera með einhvern dimmer í gangi þarna inni. For real, ég hvet ykkur til að draga niður í birtunni á skjánum ykkar um svona 50% og reyna að fá eitthvað út úr teikningunni hér að ofan!

Búúúúú, hollenskir safnfræðingar!


2 comments
(Arnaldur)



26.3.2009 | Wild at Heart

wild at heart
This is a snakeskin jacket! And for me it's a symbol of my individuality,
and my belief... in personal freedom.

Af hverju þurfti Nicholas Cage að hætta að vera svona töff og verða svona mikill douchebag?


6 comments
(Arnaldur)



26.3.2009 | Kirkjan á eftir að eipa!

Hmmm... þetta er mjög líklegast too little too late.

Hann Árni benti mér á þetta og mér fannst þetta mjög skondið. Þessi frétt af mbl.is rennir enn frekar stoðum undir þá kenninguna mína að það séu 14 ára börn í afleysingum við blaðamennsku uppi í Hádegismóum. Athugið sérstaklega síðustu setninguna.

Ég ætlaði að vera löngu búinn að pósta þessu. En svona er bara helvítis lífið.

gullnahlidid
Hefur þú orðið mjög var við eip! hjá kirkjunni undanfarið?

7 comments
(Nanna)



18.3.2009 | Pathetique, op. no.3

Mér finnst það fyrirlitlegt hvað ég er latur að pósta hérna undanfarið. Þrír þumlar niður fyrir Arnald.


7 comments
(Arnaldur)



12.3.2009 | Bardaga uppvakningar

bardagarireykjavik

Við erum að tala um það, að það þarf náttúrlega klárlega að fara að endurvekja þessa gamalgrónu útihátíð.

Verst að nú er bílskúrinn góði bókaður eitthvað fram á sumar, og það má nú kannski bíða eftir aðeins betra veðri.

Ég er samt mjög fylgjandi því að flýta þessu og rjúfa tengslin við Verslunarmannahelgina.


5 comments
(Sveinbjörn)



12.3.2009 | Peanuts Noir

Frank Miller's Charlie Brown...

Þetta er awesome stuff!




12.3.2009 | Ahhh, Memory Lane...

Var að leita að gömlu pósti hérna á síðunni frá pre-title era-inu og neyddist því að lesa mikið af þessu gamla shitti. Þetta er alveg frekar skemmtilegt, margt af þessu. Það eina sem mætti ef til vill setja út á er hversu margir póstar eru um það hvað ég sér andlaus eða búinn að vera að vinna mikið. Klárlega ekki skemmtiefni.




12.3.2009 | Operation Iraqi Shoethrow

campusshoethrow

Mér finnst það eiginlega alveg fokkings glatað að gaurinn hafi fengið 3 ár.

Athyglisvert samt að velta því fyrir sér hvert hlutskipti hans verður í grjótinu. Ég vil vona og halda að hann verði treat-aður sem þjóðhetjan sem hann klárlega er.

Awesome shit til að hafa á rap-sheetinu sínu líka, hvernig ætli þetta komi fram á sakaskránni?

Viðbót: Rakst líka aftur á þennan, sem mér finnst frábær.




11.3.2009 | Lán í óláni

Ég fór í gegnum kvikmyndasafnið mitt og komst að því að það vantaði frekar fookings margar góðar myndir.

Ef að fólk er með eitthvað svona shit í láni hjá mér, þá má það endilega hafa samband og skila. Annars veit ég hvar þið eigið heima!

Sjálfur er ég með 3 DVD myndir, eina bók og einn geisladisk í láni sem ég mun vinna í að koma til réttra aðila á allra næstu dögum.

Smá ábending til fólks: Það er frekar safe hugmynd að hafa hluti sem maður er með í láni á sérstökum stað í vistarverum sínum. Þannig man maður alltaf hvað er hvað og hvar hvað er.


6 comments
(Hildur)



11.3.2009 | Sumar stundir eru betri en aðrar

Þetta er svakalegt. Djövulli er maður orðinn ólmur eftir sumri, grilli, bjór og bolum/stuttbuxum.

Vill einhver fara að gera eitthvað í þessu?


2 comments
(Arnaldur)



9.3.2009 | Nýjasta tækni og vísindi

nyjastataekniogvisindi

Í gær minntist ég einhverra hluta vegna sjónvarpsþáttarins Nýjasta tækni og vísindi.

Í kjölfarið varð ég voðalega bitur og sár yfir því að þessum þætti hefði verið sturtað niður í klósettið.

Úr bernsku minni á ég unaðslegar minningar um að hafa setið frá mér numinn og fylgst með Sigurði H. Richter segja frá allskyns tækninýjungum utan úr heimi.

Sérstaklega var hátíð í bæ þegar það var extra langur þáttur um tæknihönnunarkeppni háskólanema.

Nú virðist vegur og virðing þessa þátta gleymd að mestu. Stuttleg google leit gefur manni lítið til kynna um að þátturinn hafi yfirleitt verið til, og ekki er viðlit að finna titil-myndina til dæmis.

Við þetta verð ég sorgmæddur og reiður, og ég vil fá Nýjustu tækni og vísindi í sjónvarpið á ný. Jafnvel að binda það í lög um RÚV. Og ég vil ekki T-World þema-ið (þó það hafi verið ágætt), heldur skulu menn bara sjá sóma sinn í að licence-a Computer Welt 2.

Ég geri engar harkalegar kröfur um að Sigurður H. eða Örnólfur stýri þættinum, en stjórnandinn verður klárlega að vera jafn... jafn... ehhh... sérfræðingslegur og þeir.


5 comments
(Arnaldur)



8.3.2009 | Kóróna jakkaföt

Hvað get ég sagt? Hvað er þetta?


1 comments
(Eiki)



6.3.2009 | Aldrei aftur Hiroshima!

Ég var með frekar jákvæða nálgun á þessa fyrirsögn.

Eitthvað í líkingu við "Aldrei aftur, Hiroshima!"

Svo kom í ljós að það var ekki málið, og innihald fréttarinnar gerði mig frekar dapran.

Það vantar meiri ást og virðingu í þennan heim.




5.3.2009 | Tónleika(sjálfs)gagnrýni

pete rock 1

Á laugardaginn var ákvað ég að skella mér að sjá legendið Pete Rock spila.

Var reyndar semi pirraður að tónleikarnir voru færðir af Tunglinu (lesist Gauknum) yfir á one-o-one club (lesist Organ), en fannst samt frekar smooth að fá þetta tækifæri til að sjá hann, þannig að ég röflaði bara í meðalhófi mikið.

Áður en á tónleikana var haldið tékkaði ég með nokkrum góðum dudes í smá pre-emptive warm-up-party í Vesturbænum, sem var awesome! Var reyndar hálf seinn á ferðinni, og sá að glugginn var frekar knappur, þannig að ég fór að sturta í mig og drekka með báðum höndum. Sem er yfirleitt ekkert mjög góð hugmynd, og maður ætti að vita það eftir öll þessi ár.

Seint og um síðir kom reyndar gamall kunningi minn í heimsókn, hann Jack. Jack hefur alltaf eitthvert undravert lag á að fokka mér upp, og á sama hátt ætti ég að vera búinn að læra það... en ég endaði náttúrlega í sleik við Mr. D á endanum.

Herra Jack D., blandaðist frekar illa við allan ólgusjóinn af bjór sem var í maganum á mér og gott ef það kom ekki einhver hvítrússi líka í partíið rétt áður en við lögðum af stað.

Þegar ég kom loksins á staðinn var ég orðinn svo ringlaður, (líka búinn að borða lítið yfir daginn,) að ég gekk bara um á einhverjum auto-pilot og heilsaði fólki eins og ég væri aftur kominn á menntaskólaball.

(Enda er ég nokkuð viss um að ég sé bara 15 ára stundum)

jackdanielspost01

Að endingu rauk ég út, áður en Pete Rock byrjaði að spila, og hvarf í 3 tíma, þangað til ég fannst aftur ráfandi um Hafnarstrætið, fyrir utan Píanóbarinn (þetta mun alltaf bara vera Píanóbarinn fyrir mér, sama hvað þú dressar þetta upp).

Eina minningin sem ég hef frá þessum tíma er að hafa staðið týndur niðri á Ingólfstorgi að reyna að muna hvernig ég kæmist aftur á tónleikana. En, svo segja þeir víst að "ef þú munir eftir laugardagskvöldi, þá hafirðu ekki verið þar".

Það var hún Áróra sem fann mig í Hafnarstrætinu að lokum, skammaði mig og sendi mig beint á Prikið að hitta my dudes sem sumir hverjir virðast reyndar svo hafa hlotið keimlík örlög. (Maður spyr sig hvort að one-o-one sé að detta í einhvern roophie-gír?)

Ég vissi að ég átti ekki mikið breik í Prikið þegar hér var komið við sögu, en reyndi að gíra upp ebituna með Hlöllabát og bitafiski, enda hafði ég ákveðnum erindum að gegna þar. Ég veit reyndar ekki alveg hvaða lógík var á bakvið bitafiskinn, en ég held að ég hafi komist að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti mikið prótín á þessum punkti. (???) Öllu þessu úðaði ég í mig á c.a 4 mínútum og fór svo aftur af stað inn í tröllalandið, nú með illt í maganum.

bitafiskur1

Það fyrsta sem ég lendi í við lendingu á Prikinu er gamli góði hvítrússinn sem vildi endurvekja kynnin. Og svo eitthvað fleira. um 30 mínútum síðar situr einhver maður á hækjum sér og er að reyna að halda af veikum mætti í lífið. Það var engan vegin töff, svo hann fór bara heim að leggja sig.

Planið var samt að loka augunum rétt í eina klst og fara svo aftur út og halda áfram. Það stóðst ekki. Arnaldur sofnaði í úlpunni sinni uppi í rúmi og vaknaði ekki fyrr en kl. 11 daginn eftir, við mjög undarlegar kringumstæður.

Ég sá aldrei Pete Rock.

Samt keypti ég tvo frekar en einn miða á hann.

Glatað.

Þessvegna leið mér mjög vel þegar menn fóru að tala um að þetta hefðu mögulega verið lélegustu tónleikar áratugarins, og að það hefði meir að segja orðið rafmagnslaust. Pete Rock - Unplugged kalla gárungarnir þessa misheppnuðu tilraun til tónleikahalds.

Boðskapurinn með þessari hjartnæmu sögu er að sjálfsögðu sá, að ef að tónleikar eru að fara að vera lélegir, þá getur maður alveg eins bara tékkað út og farið að leita að sjálfum sér á Ingólfstorgi. Ég mæli persónulega með því. Það og að Jack D, er bara rosalega, rosalega vond hugmynd, eins og hann er elskulegur.

Jack D, is a false friend!


9 comments
(Sveinbjörn)



5.3.2009 | Stálstappa

Í ljósi þess hve ég hef brugðist tryggum lesendum mínum undanfarna viku, mun ég birta hér seinna í dag epíska, self-deprecating frásögn af atburðum síðustu helgar.

Eigum við að segja fyrir tjah... 15:00?


3 comments
(tryggur lesandi)