9.3.2009 | Nýjasta tækni og vísindi

nyjastataekniogvisindi

Í gær minntist ég einhverra hluta vegna sjónvarpsþáttarins Nýjasta tækni og vísindi.

Í kjölfarið varð ég voðalega bitur og sár yfir því að þessum þætti hefði verið sturtað niður í klósettið.

Úr bernsku minni á ég unaðslegar minningar um að hafa setið frá mér numinn og fylgst með Sigurði H. Richter segja frá allskyns tækninýjungum utan úr heimi.

Sérstaklega var hátíð í bæ þegar það var extra langur þáttur um tæknihönnunarkeppni háskólanema.

Nú virðist vegur og virðing þessa þátta gleymd að mestu. Stuttleg google leit gefur manni lítið til kynna um að þátturinn hafi yfirleitt verið til, og ekki er viðlit að finna titil-myndina til dæmis.

Við þetta verð ég sorgmæddur og reiður, og ég vil fá Nýjustu tækni og vísindi í sjónvarpið á ný. Jafnvel að binda það í lög um RÚV. Og ég vil ekki T-World þema-ið (þó það hafi verið ágætt), heldur skulu menn bara sjá sóma sinn í að licence-a Computer Welt 2.

Ég geri engar harkalegar kröfur um að Sigurður H. eða Örnólfur stýri þættinum, en stjórnandinn verður klárlega að vera jafn... jafn... ehhh... sérfræðingslegur og þeir.


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Halldór Eldjárn at 9.3.2009

Halldór Eldjárn

Heyrðu, hann er ennþá með tæknihönnunarkeppnina. Ég á síðustu (2008) hérna til á tölvunni einhversstaðar, alveg magnað dót! Læt þig hafa við tækifæri.

[ Reply ]

Róbert Bræ Antonsson at 9.3.2009

Unknown User

Ég tek undir allt sem þú hefur hér sagt.

[ Reply ]

Grímur at 9.3.2009

Grímur

Í þættinum í kvöld verður fjallað um sýndarveruleika.

[ Reply ]

Steini at 10.3.2009

Steini

Ég vil sjá þættina útgefna á DVD. Einhversskonar "best of" safn.

[ Reply ]

Arnaldur at 10.3.2009

Arnaldur

Jeeesus hvað það er góð hugmynd. Þá gæti maður líka séð hvað hefði tekið við sér og hvað hefði lent ofan í skúffu á þessum tíma.

Fyrir utan hvað það hlýtur að vera awesome að sjá umfjöllun um t.d. geisladiska þegar þeir voru nýjir og framandi.

Verst að sjónvarpið virðist ekki vera fært um að publish-a framleiðsluna sína á sómasamlegan hátt. Algert drasl.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment