Ég fór í gegnum kvikmyndasafnið mitt og komst að því að það vantaði frekar fookings margar góðar myndir.
Ef að fólk er með eitthvað svona shit í láni hjá mér, þá má það endilega hafa samband og skila. Annars veit ég hvar þið eigið heima!
Sjálfur er ég með 3 DVD myndir, eina bók og einn geisladisk í láni sem ég mun vinna í að koma til réttra aðila á allra næstu dögum.
Smá ábending til fólks: Það er frekar safe hugmynd að hafa hluti sem maður er með í láni á sérstökum stað í vistarverum sínum. Þannig man maður alltaf hvað er hvað og hvar hvað er.
Hef ég ekki heyrt þetta áður?
Ég er með Angel Heart og Deliverance á vísum stað. Reyni að muna eftir þeim við tækifæri.
Hmmmmm, gætirðu nokkuð sagt hvaða myndir þetta eru? Gæti alveg vel verið að ég sé með e-ð í láni frá þér þó ég muni ekki annað en að hafa skilað öllu aftur :)
Ég er með:
Black Books (The complete series)
Manstrokewoman (1 og 2)
Father Ted (1,2,3)
Ég er búin að horfa á allt og skila þeim við tækifæri:)
The password to post a comment is:
(Hildur)