Mig langaði að vekja athygli á sýningu sem stendur yfir um þessar mundir í Listasafni Reykjavíkur. Ég ætlaði nú reyndar að vera búinn að minnast á þetta, en sýningin stendur yfir þar til 10. maí, þannig að ég held að það sé nú enginn skaði skeður svosem.
Sýningin Skuggadrengur - Heimur Alfreðs Flóka, er skipulögð af Sjón og er yfirlitssýning á verkum listamannsins Alfreðs Flóka. Alfreð Flóki var kannski fyrst og fremst teiknari sem lifði og hrærðist í heimi hins súrrealíska, en þvílíkur teiknari af guðsnáð var maðurinn. Sýningin er gott og yfirgripsmikið safn af penna og krítarteikningum eftir þennan snilling, og svo má líta ýmis önnur verk og dót sem tengjast lífi og störfum mannsins.
Einnig er vert að hafa í huga viðburði þá sem tengjast sýningunni en sjá má nánar um þá hér. Reyndar hef ég í öll skiptin svikið sjálfan mig um ferð á slíkan viðburð, en mér skilst á þeim sem sótt hafa, að þar sé einhver snilld á ferðinni. Í alvörunni talað, hver er á ferli kl. 15:00 á sunnudögum? Ókristilegri tími finnst nú vart. Ég held að það sé málið að sitja dálítið fyrir fimmtudeginum 7. maí.
Það eina sem fór í taugarnar á mér við sýninguna, er að einhver auli sem fór og lærði safnfræði í Hollandi ákvað í ljósi þess að sýingin heitir Skuggadrengur að draga lýsinguna niður í drasl. Nú eru myndir Flóka allar frekar dimmar og mikið af detaljum í gangi og það bara er ófyrirgefnalegt að vera með einhvern dimmer í gangi þarna inni. For real, ég hvet ykkur til að draga niður í birtunni á skjánum ykkar um svona 50% og reyna að fá eitthvað út úr teikningunni hér að ofan!
Búúúúú, hollenskir safnfræðingar!
Já, þetta er hörkusýning og vel þess virði að sjá.
Ég fór á uppákomu nr. 2 í röðinni og fannst hún reyndar ekkert mjög áhugaverð. En e.t.v. var ég bara ekki í réttu stuði fyrir hana og get þá bara sjálfum mér um kennt. Hún virtist samt meira snúast um manninn sem rætt var við (sem ég kem ómögulega fyrir mig hvað heitir...) en Alfreð Flóka.
Býð þig annars velkominn aftur til bloggheima, Arnaldur minn, þín var sárt saknað.
The password to post a comment is:
(Arnaldur)