27.3.2009 | Vansvefta

Oh Lordy! Mikið svakalega er ég þreyttur. Ég veit ekki hvort að þessi föstudagur er til þess að halda hann út. Mig grunar að þetta detti í dott.

Man einhver eftir laginu Insomnia með tónlistarmanninum Faithless? Þetta þótti ofboðslega fínn pappír hér fyrir einhverjum árum. Ætli honum gangi ennþá eitthvað hálf illa að festa svefn?

Annars er góður fílingur fyrir helgarbrölti. Í ljósi þess hef ég ákvarðað að klipping, kaffi og Háteigskjör séu það sem koma skal, og hef neglt þeim niður á opinbera dagskrá. Ég ætla ekki einusinni að minnast á hlutdeild mjólkurbúðarinnar.

Hver ætlar svo að leika við mig um helgina?


Viðbót:
Þegar ég las þessa setningu sem ég hef nú skáletrað í textanum áttaði ég mig á því að þetta er einmitt svona setning sem ég á eftir að lesa aftur eftir 2 ár og fá massívan aulahroll yfir. Aulaleg fyndni og almennt glatað shit. Við leyfum þessu að standa og tékkum á reflexunum eftir einhvern tíma.


6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Grímur at 27.3.2009

Grímur

Vissulega man ég eftir Faithless. Við áttum góðar stundir saman á skólaböllum í grunnskóla. Mig minnir að á sama disk hafi verið alveg þónokkur ágætis lög í viðbót.

Þau eru reyndar enn að. Þegar þú minnist á það virka þau svolítið vansvefta...

http://en.wikipedia.org/wiki/File:UQ_Faithless_at_Coachella_%2707.jpg">http://en.wikipedia.org/wiki/File:UQ_Faithless_at_Coachella_%2707.jpg

[ Reply ]

Sindri at 27.3.2009

Sindri

Já, hver man ekki eftir hinni ódauðlegu línu : "I can't get no sleep..." ?

Ég syng þetta lag oft innra með mér á sunnudagskvöldum hérna í sveitinni þegar ég get ekki sofið. Það hjálpar oft að horfa á stjörnubjartan himininn eða bara fara í tölvuna og vafra fram á morgun.

[ Reply ]

Aðalsteinn at 29.3.2009

Aðalsteinn

Ég veit um einn mann sem sagði lélegri brandara en þetta í gær...

[ Reply ]

Arnaldur at 30.3.2009

Arnaldur

Hmmm... Þessi staðhæfing þín vekur forvitni mína.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 30.3.2009

Sveinbjörn

Mér þykir nú aðallega merkilegt að þú skulir ákalla finnska glam-metal-eurovision hljómsveit í þessari færslu.

[ Reply ]

Arnaldur at 30.3.2009

Arnaldur

Ég er allur í finnska euróvisjón glam-metalnum maður!


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment