Results for 2009-04

21.4.2009 | Evritt líf 4.20

Björn Bjarnason, alþingismaður, skrifar í gær þann 20. apríl, að honum finnist viðbrögð sendiherra ESB við hugmyndum Sjálfstæðisflokks um einhliða upptöku Evru í samstarfi við AGS vera "dólgsleg" og einkennast af yfirlæti í garð flokksins.

"Ástæða er til að vekja athygli á hinum makalausu viðbrögðum sendiherra Evrópusambandsins (ESB) gagnvart Íslandi við því stefnumiði Sjálfstæðisflokksins að leita samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um gjaldmiðilsskipti með augastað á evru. Fulltrúi ASG svaraði spurningu Stöðvar 2 um þessi mál á diplómatískan hátt og sagði, að málið yrði kannað, þegar það yrði tímabært. Percy Westerlund, sendiherra ESB, réðst hins vegar dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn og af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið."

Nú veit ég ekki alveg hvað Björn telur sig eða flokkinn vera, en mér finnst fullkomnlega eðlilegt að sendiherra ESB blási strax á allar slíkar hugleiðingar, enda hefur það verið margreynt og spurt hvort þessi leið sé fær, en svarið alltaf á eina leið. Aftur á móti finnast mér hálfgildingsleg og óræð viðbrögð AGS með öllu óskiljanleg.

Að Björn taki þessu sem einhverskonar persónulegri árás á sig eða flokkinn segir etv. meira um hann en nokkuð annað. Kannski engin tilviljun að þessi pistill hans er skrifaður 4.20.


11 comments
(Reverend Sveinbjörn)



20.4.2009 | Garðarshólmi eftir Hugleik Dagsson

Mig langar að benda áhugasömum, sem hafa lítið að gera, á þessa stórskemmtilegu og ótrúlega löngu teiknimyndasögu, Garðarshólma, eftir Hugleik Dagsson.

cart1

Mér skilst að sagan sé prentuð í símaskránna í ár, en hver veit það svosem, enda ekki bók sem nokkur maður tekur upp núorðið.

Ég er mjög sáttur við já.is/nei.is að hafa smellt þessu upp á síðuna sína, í svona þægilegum viewer líka. Kudos.


3 comments
(Sindri)



7.4.2009 | ME++

Mér verður nokkuð oft hugsað til þessar bókar sem ég las fyrir nákvæmlega fjórum árum.

Bókin er skrifuð af mannfræðimenntuðum arkítekt (sem er alls ekki vitlaust kombó) og er mjög lausleg mannfræðileg pæling um það hvernig byggingarlist og rýmisskipulag kemur til með að þróast á næstu árum með hliðsjón af auknu vægi upplýsingaflæðis, t.d. þörfinni að vera sítengdur.

Bókin er alveg frekar súr á köflum. En þó á skemmtilegan hátt. Fer samt oft alveg frekar langt yfir strikið.

Það sem mér þykir samt athyglisverðast að sjá er að mikið af þeim pælingum sem að Mitchell setur fram í bókinni virðast alltaf vera að fá meira vægi í hverskyns skipulagsdrögum og arkítektúr.

Æi, ég veit ekkert hvert ég er að fara með þetta. Mér bara datt þetta í hug... fokkitt...


4 comments
(Doddi)



2.4.2009 | Booze-áhalda byltingin

tappatogarar

Bylting hefur orðið á booze-áhöldum

7 comments
(Eiki)



2.4.2009 | Að tékka á booze-stað

prikidboozebubble

Spurning um að tékka á booze-stað um helgina?

3 comments
(Aðalsteinn)