Mig langar að benda áhugasömum, sem hafa lítið að gera, á þessa stórskemmtilegu og ótrúlega löngu teiknimyndasögu, Garðarshólma, eftir Hugleik Dagsson.

Mér skilst að sagan sé prentuð í símaskránna í ár, en hver veit það svosem, enda ekki bók sem nokkur maður tekur upp núorðið.
Ég er mjög sáttur við já.is/nei.is að hafa smellt þessu upp á síðuna sína, í svona þægilegum viewer líka. Kudos.
Þetta var ágæt saga, margt fyndið í þessu. Þetta er í raun fyrsta sagan sem ég les eftir þennan ágæta mann.
The password to post a comment is:
(Sindri)