21.4.2009 | Evritt líf 4.20

Björn Bjarnason, alþingismaður, skrifar í gær þann 20. apríl, að honum finnist viðbrögð sendiherra ESB við hugmyndum Sjálfstæðisflokks um einhliða upptöku Evru í samstarfi við AGS vera "dólgsleg" og einkennast af yfirlæti í garð flokksins.

"Ástæða er til að vekja athygli á hinum makalausu viðbrögðum sendiherra Evrópusambandsins (ESB) gagnvart Íslandi við því stefnumiði Sjálfstæðisflokksins að leita samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um gjaldmiðilsskipti með augastað á evru. Fulltrúi ASG svaraði spurningu Stöðvar 2 um þessi mál á diplómatískan hátt og sagði, að málið yrði kannað, þegar það yrði tímabært. Percy Westerlund, sendiherra ESB, réðst hins vegar dólgslega á Sjálfstæðisflokkinn og af því alkunna yfirlæti, sem sendimenn Evrópusambandsins telja sér sæma að sýna stjórnmálaflokkum og heilum þjóðum, ef menn beygja sig ekki þegjandi undir Brusselvaldið."

Nú veit ég ekki alveg hvað Björn telur sig eða flokkinn vera, en mér finnst fullkomnlega eðlilegt að sendiherra ESB blási strax á allar slíkar hugleiðingar, enda hefur það verið margreynt og spurt hvort þessi leið sé fær, en svarið alltaf á eina leið. Aftur á móti finnast mér hálfgildingsleg og óræð viðbrögð AGS með öllu óskiljanleg.

Að Björn taki þessu sem einhverskonar persónulegri árás á sig eða flokkinn segir etv. meira um hann en nokkuð annað. Kannski engin tilviljun að þessi pistill hans er skrifaður 4.20.


11 comments
(Reverend Sveinbjörn)




11 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sindri at 22.4.2009

Sindri

Hehe, 420, meinarðu að hann sé orðinn svo "nojaður" og veruleikafirrtur af spliffreykingum?

[ Reply ]

Arnaldur at 22.4.2009

Arnaldur

Hmmm... Eitthvað í þá veruna. Vitum við eitthvað hvað varð um allt þetta gras sem var gert upptækt þarna um daginn?

Þess utan er hann nú frekar glákulegur á að líta...

[ Reply ]

Sveinbjörn at 22.4.2009

Sveinbjörn

Björn var nú einu sinni dómsmálaráðherra um tíma, hann getur eflaust togað í einhverja strengi til þess að redda sér í skalla.

[ Reply ]

Eiki at 23.4.2009

Eiki

Hvernig var aftur sagan um Megas og Björn Bjarnason að fá sér í pípu saman?
Var ekki einhver frétt um þá tvo á sínum tíma, og þótti voða fyndin?

[ Reply ]

Anonymous Coward at 24.4.2009

Unknown User

Ekki kannast ég við þetta, en hljómar spicy.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 29.4.2009

Sveinbjörn

It's the Final Countdown, Naldó!

[ Reply ]

Sveinbjörn at 9.5.2009

Sveinbjörn

Dauð.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 12.5.2009

Sveinbjörn

Vá hvað þessi vefsíða er orðin gay.

[ Reply ]

Sindri at 18.5.2009

Sindri

Eg held eg verdi ad taka undir thessa athugasemd.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 21.5.2009

Sveinbjörn

Ætli þetta endurspegli nýfundna samkynhneigð Arnaldar?

[ Reply ]

Reverend Sveinbjörn at 23.5.2009

Unknown User

In sure and certain hope of the resurrection to eternal life through our Lord Jesus Christ, we commend to Almighty God our website arnaldur.org; and we commit its body to the ground; earth to earth; ashes to ashes, dust to dust. The Lord bless it and keep it, the Lord make his face to shine upon it and be gracious unto it and give it peace.

In nomine patri et filii et spiritus sanctii.

Amen


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment