Results for 2009-05

27.5.2009 | Hróarskelda 2009

Ég verð að viðurkenna að Hrói er frekar freistandi í ár. Nick Cave einn og sér í lagi þykir mér tiltrekkjandi. Hvað þá Madness í ofanálag.

Hér má sjá uppstillinguna fyrir leikana eins og er.

Nick Cave, Madness, NIN, Oasis, Malk De Koijn ofl. eru dálítið góð selling points. Svo eru meiraðsegja Soil and Pimp að spila, þótt ég myndi vilja hafa Árna með mér í það verkefni.

Nú væri gott að eiga mikinn gjaldeyri og frítíma...


4 comments
(Sindri)



27.5.2009 | Pedantic and shallow

Ofgnótt þrætugjarns fólks er á internetinu. Nú orðið er ég mikið til hættur að kippa mér upp við smásmugulegar athugasemdir í kommentakerfum og spjallborðum sem skipta engu máli, en stundum - stundum keyrir einfaldlega um þverbak.

Í athugasemdum við skopmynd Halldórs Baldurssonar um sykurskattinn alræmda hefur einn einstaklingur slegið ákveðið met í tilgangslausum besservisseraleiðindum.

Er B Ewing mögulega mest pedantic maður sem gengið hefur þessa jörð? Mikið held ég að hann sé leiðinlegur besservisser. Og mikið finnst mér Halldór tækla þetta af miklum elegans.


1 comments
(Eiki)



27.5.2009 | Búferlaflutningar

Sem stendur eru þjóðflutningar Arnaldíumanna langt komnir. Er það ósk sitjandi ríkisstjórnar Arnaldíu að hægt verði að bjóða erlendum þjóðhöfðingjum í opinberar kurteisiheimsóknir á allra næstu misserum. Til þess þarf þó samstillt þjóðarátak þar sem allir taka höndum saman í samsetningu mannvirkja samkvæmt 4 daga áætlun, og jafnframt hefur stjórnin íhugað að leggjast út í víðtækar hreinsanir


1 comments
(Sveinbjörn)



27.5.2009 | Server Drama

Arrakkis er að drepa mig. Hann er mega hægur. Ég nenni varla að pósta. Það tekur langan, langan tíma.


1 comments
(Sveinbjörn)



27.5.2009 | RESTART

Jæja, þá er kominn mánuður síðan maður lét eitthvað frá fara sér hérna síðast. Ég gæti svo sem boðið haug af fairly valid afsökunum, en það nennir enginn að eyða tíma sínum í að lesa eða hlusta á svoleiðis píp og væl. Ég nenni því allavega ekki.

Látum það nægja að segja að í haust hóf ég störf hjá viðskiptablaðinu og kynntist þar dásamlegri stúlku, osfrv...

Núna fer maður að reyna að bomba inn nokkuð reglulega, og hef ég í því skyni gangsett ákveðið ferli með það að lokamarkmiði að ég verði almennilega internettengdur á heimili mínu. En ég hef búið við nokkuð krappan kost í þeim efnum undanfarið.


2 comments
(Sveinbjörn)