Jæja, þá er kominn mánuður síðan maður lét eitthvað frá fara sér hérna síðast. Ég gæti svo sem boðið haug af fairly valid afsökunum, en það nennir enginn að eyða tíma sínum í að lesa eða hlusta á svoleiðis píp og væl. Ég nenni því allavega ekki.
Látum það nægja að segja að í haust hóf ég störf hjá viðskiptablaðinu og kynntist þar dásamlegri stúlku, osfrv...
Núna fer maður að reyna að bomba inn nokkuð reglulega, og hef ég í því skyni gangsett ákveðið ferli með það að lokamarkmiði að ég verði almennilega internettengdur á heimili mínu. En ég hef búið við nokkuð krappan kost í þeim efnum undanfarið.
Handónýtt að vera ekki nettengdur dude. Þegar þú loksins reddaðir þessu á Laufásveginn flyturðu! Hlýtur að vera þrusukvennsa sem þú náðir þér í til þess að þú yfirgefir internettenginguna fyrir hana ;)
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)