27.5.2009 | Pedantic and shallow

Ofgnótt þrætugjarns fólks er á internetinu. Nú orðið er ég mikið til hættur að kippa mér upp við smásmugulegar athugasemdir í kommentakerfum og spjallborðum sem skipta engu máli, en stundum - stundum keyrir einfaldlega um þverbak.

Í athugasemdum við skopmynd Halldórs Baldurssonar um sykurskattinn alræmda hefur einn einstaklingur slegið ákveðið met í tilgangslausum besservisseraleiðindum.

Er B Ewing mögulega mest pedantic maður sem gengið hefur þessa jörð? Mikið held ég að hann sé leiðinlegur besservisser. Og mikið finnst mér Halldór tækla þetta af miklum elegans.


1 comments
(Eiki)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Eiki at 27.5.2009

Eiki

Ég hef annars þá kenningu að hver einasti einasti Íslendingur kunni eina stafsetningar- eða málfarsreglu. Það er merkilegasta regla í íslenskri málsögu, auðveld að temja sér og þekking á henni skilur mennina frá dýrunum.
En einhvern veginn virðist enginn nenna að leiðrétta hana (eða vita af henni) annar en viðkomandi Íslendingur.

Hverjum þykir sinn fugl fáviti.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment