Results for 2009-06

24.6.2009 | Straight outta Landsbanki!

Icesavecover

Ice Save var líka lélegi hvíti rapparinn sem að var ekki með neitt proper street cred og endaði á því að vera stunginn í rassinn.


4 comments
(Arnaldur)



24.6.2009 | Duke Nukem

Ætli Tsutomu Yamaguchi sé mögulega óheppnasti maður í heimi?

Gaurinn tekur double trouble á bombuna, og græðir samt ekki neina ofurkrafta...




23.6.2009 | Lægri námskröfur til framapotara

Ég stenst ekki að rita aðeins um ákveðna grein sem ég las um daginn.

Í greininni "Lægri námskröfur til fulltrúa stúdenta" á Vefritinu, sem er nú annars oft ágætt að mörgu leyti, er þeirri mögnuðu hugmynd fleygt fram að ef til vill færi vel á því að lækka námskröfur til fólks sem að hellir sér af offorsi út í stúdentapólitík.

Þetta þykir greinarhöfundi nokkuð eðlileg skoðun, þar sem að aumingja fólkið sem "lendir í stúdentapólitíkinni" vinni þar mikið og brýnt, fórnfúst starf.

Ég veit ekki með þetta sko...

Látum það nægja að kröfurnar í HÍ eru kannski ekkert til að missa þvag yfir, án þess að ég fari að velta einhverjum vöngum yfir mótíverandi faktorum þeirra sem sækjast í þessa félagsstarfssemi (vonandi meðvitaðir um hvað þeim er að færast í fang fyrst þeir eru komnir á háskólastig á annað borð).


5 comments
(Arnaldur)



23.6.2009 | KaJak

Eins og einhverjir hafa eflaust tekið eftir þá tíðkast það að þingmenn fái skammstafanir sem eru svo notaðar til að auðkenna þá, til dæmis á hinni æsispennandi Alþingisrás í sjónvarpinu, eða á heimasíðu Alþingis.

Ég veiti því athygli að Katrín Júlíusdóttir er með skammstöfunina KaJúl en Katrín Jakobsdóttir er aftur á móti með skammstöfunina KJak.

Ég held að þið sjáið öll hvert þetta er að stefna...

Ég er að hugsa um að fara að drífa mig í háttinn.




23.6.2009 | Ofmat

Þetta finnst mér athyglisvert. Hér er maður sem virðist haldinn þeirri ranghugmynd að hann sé þingmaður.

Nú getur svosem verið að mér skjátlist en ég er nú samt nokkuð viss um að hann sé í bullandi ofmati. Allavega hef ég aldrei heyrt um þennan mann.




23.6.2009 | Bikeness

Ég var frekar impressed af þessu...




23.6.2009 | Ruslaralýður

David Mitchell 001

Ofboðslega fín og skemmtileg grein eftir David Mitchell. Ég linka nú bara á þetta vegna þess að sjálfum hefur mér verið mjög hugleikið undanfarið hvar samfélagsleg ábyrgð fólks liggur, og hvort það sé ekki sanngjarnt að fara fram á að fólk axli einhverja af þeirri ábyrgð sem hlýtur að fylgja því að búa í lýðræðissamfélagi.

Svo er Mitchell líka bara tussu fyndinn gæji...