|
Ég stenst ekki að rita aðeins um ákveðna grein sem ég las um daginn.
Í greininni "Lægri námskröfur til fulltrúa stúdenta" á Vefritinu, sem er nú annars oft ágætt að mörgu leyti, er þeirri mögnuðu hugmynd fleygt fram að ef til vill færi vel á því að lækka námskröfur til fólks sem að hellir sér af offorsi út í stúdentapólitík.
Þetta þykir greinarhöfundi nokkuð eðlileg skoðun, þar sem að aumingja fólkið sem "lendir í stúdentapólitíkinni" vinni þar mikið og brýnt, fórnfúst starf.
Ég veit ekki með þetta sko...
Látum það nægja að kröfurnar í HÍ eru kannski ekkert til að missa þvag yfir, án þess að ég fari að velta einhverjum vöngum yfir mótíverandi faktorum þeirra sem sækjast í þessa félagsstarfssemi (vonandi meðvitaðir um hvað þeim er að færast í fang fyrst þeir eru komnir á háskólastig á annað borð).
|