Results for 2009-07

29.7.2009 | Einkunn miskunn sýnd!

Oft hef ég nú skrifað um hin óvönduðu vinnubrögð á mbl.is og haft gaman að vitleysunni sem vellur oft út úr þessari annars ágætu fréttaveitu.

Mér varð þó sérstaklega skemmt að sjá þessa dásamlegu mótsögn á forsíðu vefsins áðan og gat ekki annað gert en að smella af einu screenshot-i.

mblfaul
Sjálfsagt er fleira gagnrýnivert við þetta hjá þeim, en grófustu villurnar sem stinga í stúf eru lýstar á myndinni

Hér má lesa meira um mikilvægi réttar stafsetningar og svo geta menn velt vöngum yfir afdrifum Kongóbúans sem reyndist uppvís að vegabréfsfalsunununum.


5 comments
(Sveinbjörn)



27.7.2009 | Verslunarferð í Kringluna

Laust eftir hádegi stendur tilvonandi viðskiptavinur við sölubás í Kringlunni. Maðurinn er í hægðum sínum að skoða hatta og er ákaflega rólegur og sjálfum sér nógur, enda nýverið lokið við ríkulegan hádegisverð. Starfsstúlkan í sölubásnum er djúpt sokkin í samtal við vinkonu sína og er að maula risastóra smáköku með súkkulaðibitum. Skyndilega tekur sölustúlkan eftir viðskiptavininum og finnst hún þurfa að bregðast við.


Sölustúlka: Já! Ehhh, get ég aðstoðað þig?

Viðskiptavinur: Ha? Nei, nei, ég er nú bara að skoða. Eða, jú annars. Áttu nokkuð þessa til í grænu?


Sölustúlkan horfir eitt augnablik á manninn, ræskir sig svo og snýr sér að vinkonu sinni og heldur áfram að tala.


Viðskiptavinur: Ehhh... hérna... hvað segirðu? Áttu hana til eða ekki?


Sölustúlkan lítur aftur á manninn og svo á vinkonu sína, hálf ráðvillt. Á endanum kveður hún vinkonu sína fljótfærnislega og gengur nær manninum.


Sölustúlka: Ha? Hvað segirðu?

Viðskiptavinur: Ehhh... ég spurði hvort þú ættir þessa húfu til í grænu.

Sölustúlka: Nei, hún er rauð.

Viðskiptavinur: Já, ég veit að þessi húfa er rauð, en ég var sumsé að velta því fyrir mér hvort þú ættir til samskonar húfu, bara græna á litinn.

Sölustúlka: Já, nei. Það er bara þessi. Eða þessar. Sko, þessar sem eru hérna uppi.

Viðskiptavinur: Já, já, þannig. Jæja...

Sölustúlka: Hérna... hvað viltu eiginlega?

Viðskiptavinur: (undrandi) Ehhh... Ég vildi sumsé vita hvort þú ættir græna húfu til að selja mér. Ef hún hefði verið til, þá hefði ég keypt hana.

Sölustúlka: Jaaaaá...


Sölustúlkan lítur undan, og byrjar að narta í smákökuna sína og virkar töluvert ráðvillt. Hún gengur frá manninum að búðarkassanum. Maðurinn byrjar að ganga burt frá básnum.


Sölustúlka: Hérna, þetta er mjög algengt að fólk sé að spyrja svona!

Viðskiptavinur: Ha?

Sölustúlka: Nei, þetta er mjög algengt.

Viðskiptavinur: Hvað þá?

Sölustúlka: Það er mjög algengt að fólk sé að spyrja svona allskonar, um hvort að húfan sé til í allskonar litum og svona.

Viðskiptavinur: Ehhh, já, já... Allt í lagi...


12 comments
(Sveinbjörn)



22.7.2009 | Svefn G Englar

Mér finnst þetta geðveikt, og eiginlega bara frekar ótrúlegt.

Fréttin er um 13 ára stúlku sem keyrði frá Húsafelli til Keflavíkur á stolnum bíl. Það væri svosem í sjálfu sér nokkuð athyglisverð frétt, en litla stúlkan gerir gott betur og klárar dæmið sofandi. Sem er ótrúlegt.

Sjálfur hef ég upplifað það í örfá skipti að ganga í svefni og gera mjög bjánalega hluti, en ég held að ég eigi langt í það að afreka það að keyra heilu landshlutanna á milli í svefni.


1 comments
(Siggi)



21.7.2009 | RealPolitik

Eins og stendur er mikill taugatitringur í samfélaginu og þessa vikuna er það hinn alræmdi icesave-samningur sem veldur. Það hefur verið mikið um almennan titring í samfélaginu undanfarið og hver og einn með sína skoðun sem helst er ósættanleg við nokkra aðra skoðun allra þeirra sjálfsskipuðu sérfræðinga sem eru æstir í að tjá sig um málin. Umræðan hefur verið sár og bitur út af skattahækkunum, ESB, og hverju öðru sem nöfnum tjáir að nefna. Þar hefur icesave verið ýmist í bak- eða forgrunni en akkúrat núna á hann umræðuna einn.

Persónulega vona ég að icesave-samningurinn verði felldur á Alþingi. Þessi skoðun mín er þó ekki sprottin af sömu hvötum og hjá flestum öðrum, heldur er það hreinlega vegna þess að umræðan er orðin mér um megn.

icesave 203x150

Allt það væl, jarm og persónuárásir, svo og flokkspólitískar skotgrafir sem fólk hefur kosið að grafa sig niður í eru farnar að fara óendanlega í taugarnar á mér. Aragrúi einstaklinga héðan og þaðan hlaupa nú upp með hver sína klæðskerasniðnu og óraunhæfu lausnina á fætur annari: Endursemja á betri kjörum, setja útlendinga í samninganefndina, fá bara einhvern annan til að semja, ekki semja um neitt, fara dómstólaleið, kæra alla í spað, neita að atanda skil á skuldbindingum okkar o.s.frv.

Orðaskakið hefur oft á tímum orðið ansi ljótt á að líta, sem er nú svo sem gefin stærð í pólitík alla jafna, en einkum hafa árásir manna beinst í áttina að þeim sem koma hafa þurft að reddingu málsins eftir á, fremur en þeirra sem skitu á sig og skeindu sér með íslensku þjóðinni.

Nú er það einlæg skoðun mín, eftir að hafa skoðað flestar hliðar málsins sem ég hef getað áttað mig á, og fengið álit sérfróðra manna um hina og þessa fleti málsins, að íslenska ríkinu beri að gangast við þessari ábyrgð og að kjör samningsins séu með öllu boðleg, þó e.t.v. hefði mátt semja betur eða verr um einstök atriði. Slíkar vangaveltur eru þó ákveðin æfing í tilgangsleysi þar sem þær geta átt endalaust við.
(Hver yrðu viðbrögðin við niðurstöðum nýrrar samninganefndar? Hver ætti að skipa þá nefnd svo allir yrðu sáttir?

Tilfinningalega er ég staddur á mjög svipuðum stað og margt af því fólki sem tekið hefur þátt í skítkastinu undanfarið. Það virðist óréttlátt að þurfa að gangast að lélegum afarkostum í stað einhverra sem réttilega ættu að standa skil á sínum mistökum. Engu að síður voru reglurnar þannig í upphafi leiks, og þeim verður varla breytt eftir á. Við sváfum og rumskuðum varla þegar sjálfsmarkið var skorað.

Ég hef nokkuð vel rökstuddan grun um að verði icesave-samningnum hafnað, þá muni það hafa óafturkræf og lamandi áhrif á efnahagslega stöðu landsins til lengri tíma. Mun meira svo heldur en skuldbindingar icesave-samningsins.

Engu að síður vonast ég til þess að samningurinn verði felldur, engöngu til þess að þurfa ekki að hlusta á þetta píp og væl lengur. Þá getum við öll horft á landið okkar veslast upp og hugsað með okkur: "Kannski var þessi icesave-samningur ekkert svo slæmur þegar allt kemur til alls".


2 comments
(Sveinbjörn)



16.7.2009 | Páfinn á Íslandi fordæmir morð á lögreglumönnum

Ég ætlaði nú að pósta þessari skjámynd sem ég tók af fréttavef RÚV í gær, en gleymdi því.

innlendarfrettir2

Mér fannst það frekar sjokkerandi að sjá að það væri verið að pynda og myrða lögreglumenn á Íslandi.

"Búsáhaldabyltingin farin að éta börnin sín" hugsaði ég með mér.

Þá fóru að renna á mig tvær grímur þegar ég tók eftir því að páfinn hefði tekið sér sæti á landinu og væri að blessa Harry Potter héðan.


1 comments
(Sveinbjörn)



14.7.2009 | Fögur fyrirheit

Er búinn að vera að lesa usability pointera og CSS basics í allan dag, og hef þess vegna ekkert náð að pósta hérna, þó að af nógu sé að taka.

Ég hef nefnlinlega ákveðið á næstu vikum að revamp-a síðuna mína og endurbyggja hana nokkurnvegin frá grunni, enda orðinn frekar þreyttur á þessu look-i (og hef verið það lengi).

Núna fer maður að setjast niður og pæla í layouti og function-um og því kunna færslurnar hérna að verða eitthvað stopular á ný, þó að ég muni að sjálfsögðu reyna að henda hérna einhverju inn temmilega reglulega eftir bestu getu.

Annars er það innileg trú mín að um leið og maður er kominn með nýtt look og síðu sem maður er nokkurn veginn sáttur við, þá nenni maður frekar að setja inn efni, og lesendur manns frekar að skoða það...


4 comments
(Sveinbjörn)



13.7.2009 | Milljónasvindl?

Ríkisskattstjóri er þeirrar skoðunar að það sé verið að hafa milljónir af ríkissjóð í gegnum díselolíu-svindl.

Þetta þykir mér fremur hæpið miðað við þær forsendur sem gefnar eru upp í fréttinni.

naldhoe

Nú er það svo að ég hef persónulega fengist við störf sem tengjast vinnuvélum á einn eða annan hátt og hef margoft unnið á slíkum vélum. Við slíka vinnu er eitt sem maður áttar sig mjög fljótlega á, og það er hversu óhagkvæmt það er að ætla að lulla á beltagröfu eftir vegum borgarinnar á næstu bensínstöð til að fylla'na. Ekki aðeins tekur það óhemju tíma, heldur er það beinlínis ólöglegt í flestum tilvikum, fyrir utan það hversu hættulegt og óþægilegt það er.

Því er það ekki lengi að renna upp fyrir manni, að hagkvæmast er að renna eftir olíu á bíl (gjarnan pallbíl, ef slíkur er við hendi) og taka olíu á dunka.

Þar sem >100 lítra dunkur væri ákaflega ómeðfærilegur fyrir meðalmanninn þá er olían yfirleitt tekin á 20-30 lítra dunka, og þykir flestum nóg um með það. Þá eru gjarnan teknir 2 dunkar eða allt að 60 lítrar af olíu, sem duga manni ágætlega yfir daginn á meðal beltagröfu eða hjólaskóflu, miðað við meðal vinnuálag. Ef vélin er svo notuð meira yfir daginn þá eru einfaldlega farnar fleiri ferðir til að mæta aukinni olíuþörf, eða pantaður olíubíll (einskonar færanleg bensínstöð) til að fylla á vélina.

Allan þann tíma sem ég vann á vinnuvél, gæti ég vel ályktað að ég hafi dælt innan við 100 lítrum í um 81% tilvika.

Ennfremur verð ég að segja að mér finnast 7m lítra af olíu á árs basis, fyrir allan vinnuvélaflota landsins, í allri þeirri framkvæmdagleði sem einkenndi árið 2008, ekki vera neitt sjúklega óhóflegt.

Þá finnst mér líka rétt að taka það til að ég hef aldrei heyrt neinn tala um það að svindla á litaolíunni vegna þess að:

  • a) Það eru dýr viðurlög við því.
  • b) Það er einfaldlega of auðvelt að bösta mann.
    (Liturinn verður eftir í tanknum og það er tiltölulega hægur leikur að sampla það hvort það hafi einhverntíman verið notuð lituð olía á tankinn.)

Hitt er svo annað mál, að ég skildi aldrei almennilega afhverju aðgangurinn að lituðu olíunni var ekki takmarkaður, og afhverju tankarnir voru ekki prófaðir á reglubundnum skoðunum þessa tækja.


2 comments
(Arnaldur)



8.7.2009 | Vælukjóablús

Væl, væli skæl, skæl. Var drengurinn ekki með bróður sínum? Það var nú ekki einu sinni leyft að taka með sér hjól í strætó þegar ég var barn.

Börn eru ofvernduð í dag.


3 comments
(Aðalsteinn)



8.7.2009 | Jizzax

Jizzax hljómar vissulega eins og eitthvað sem Snoop Dogg myndi segja í textum sínum eða jafnvel kvikmyndunum sem hann framleiðir sjálfur.

Jizzax hefur þó víðtækari merkingu og er borg í Úzbekistan.

Ef ég væri pimpin' rappari, þá myndi ég kalla mig Jizzax


2 comments
(Sveinbjörn)



7.7.2009 | Með silfurkúlulán í munninum

bjorgolfur gudmundsson

Varúlfarnir vilja að við gleymum bara slatta af þessum peningum sem þeir stálu.

Þetta finnst mér svo absúrt að ég fer bara að hlæja, enda löngu hættur að vera gramur eða taka þetta nærri mér á nokkurn hátt.

En sorry með mig samt...

Ef ég skil þetta rétt, þá er þetta á einhvern hátt sambærilegt því að kaupa bíl, langt undir gangverði, með lánsfé frá fyrri eiganda, taka svo úr honum alla varahlutina og bensínið og selja það fyrir fullt af pening (og kaupa sér m.a. fótbolta fyrir hluta af ágóðanum). Að lokum kveikja svo í strípuðu boddíinu sem eftir stendur og segja svo fyrri eiganda bílsins (og lánadrottni þínum) að fokka sér, af því að þú áttir náttúrega aldrei í raun fyrir bílnum.

Allavega þá er þetta allt einhvernvegin á skjön við það sem fyrir mér hefur verið haft sem eðlilegir viðskiptahættir.


1 comments
(Sveinbjörn)



7.7.2009 | Blellbankastjóri

imwithstupid

Nú hefur Már Guðmundsson verið skipaður seðlabankastjóri og mun taka við embættinu þann 20. ágúst, en Már var áður aðalhagfræðingur Seðlabankans.

Nú vil ég ekki draga í efa hagfræðisnilld Más og fagna því að í bankann sé kominn maður sem veit hvað útflutningstekjur og erlend skuldastaða eru. Persónulega þykir mér þó undarlegt eitt við þessa skipun og það er að Már var AÐALHAGFRÆÐINGUR SEÐLABANKANS þegar skútunni var siglt í strand.

Er þetta ekki örlítið eins og að fá meðvirka eiginkonu krakkfíkils til að taka við heimilisbókhaldinu?

Sjálfum hefði mér nú þótt meira traustvekjandi að fá einhvern eins og Þorvald Gylfason til að taka við taumunum. En hann er maður sem að hefur bent á glæpsamlegt stjórnleysi bankans undanfarin tjah... 8 ár eða svo.

Þorvaldur þótti þó heldur ótraustvekjandi og ekki nógu hæfur til verskins. Enda hefur hann aldrei unnið fyrir Seðlabankann.

Ég veit ekki... Már er þó eins og segir hagfræðimenntaður. Babysteps... babysteps...


5 comments
(Aðalsteinn)



7.7.2009 | Beach Justice!

taxi driver taxi driver 9904613

Það er vissulega freistandi að velta fyrir sér réttlæti án dóms og laga á þessum síðustu og verstu tímum eins og ég hef reifað hér áður.

Ég held þó að menn megi alveg fara varlega í slíka hugarleikfimi þó þeim gangi gott eitt til. Það er frekar dýrkeypt að setja réttarríkið á pásu eins og sumir vilja stinga uppá og spurning hvort að menn geti hugsað sér slíkar aðfarir gegn sjálfum sér.

Er það virkilega mun skárra að fangelsa rangan mann í einhvern tíma en að gefa 30 þrjótum kost á að fela slóð sína?


1 comments
(Sveinbjörn)



7.7.2009 | Hugleiðingar um Icesave pt.3

Helga Vala Helgadóttir skrifar hér ágætis pistil um lagalegu hliðina á Icesave, og hversvegna það er semi-vonlaust að ætla að gera annað en að semja um þetta shit.

Ég held að það sé bara nokkuð góð ástæða fyrir því að menn ákváðu að gera þetta svona og hættu við að láta reyna á einhverja ómögulega dómstólaleið.

Ekki það að fólki er svo sem velkomið að öskra sig hást og kalla eftir einhverju sem ekki er í boði.




6.7.2009 | AMX = kúkur

AMX er svo mikið sorp...


3 comments
(Arnaldur)



6.7.2009 | Hugleiðingar um Icesave pt.2

Oddný Sturludóttir skrifar ágætis pistil á skynsömum nótum um Icesave klúðrið.

Þar finnst mér hún taka til flest þau atriði sem mér finnast gjarnan hafa verið útundan í umræðunni sem annars hefur gjarnan einkennst af reiði og gremju í stað skynsemi.


2 comments
(Arnaldur)



3.7.2009 | Fíkniefni og blautur hundur

kendohundur

Samkvæmt nýjustu fréttum frá Hornafirði standa Hornfirðingar nú fyrir söfnunarátaki til kaupa á fíkniefnum fyrir sveitarfélagið.

Reyndar sækjast þeir líka eftir hundspotti með í kaupunum, en ekki er vitað á hvaða hátt hundurinn á eftir að tengjast botnlausri fíknilyfjaneyslu íbúa Hornafjarðar. Uppi eru getgátur um að hundinum verði ætlað að halda utanaðkomandi "pakki að sunnan" frá því að seilast í góssið þegar fíkniefnin koma loks í hús.

Einnig hefur því verið fleygt fram að liðveisla geti verið í hundinum þegar kemur að því að finna aftur glötuð krakkbörn þegar þau eigra frá rúsuðum eða meðvitundarlausum foreldrum sínum.

Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið, og stuðla að áframhaldandi vímumóki Hornfirðinga, er vinsamlegast bent á að hafa samband við Ingu Kristínu Sveinbjörnsdóttur[sic] hjá Sparisjóði Hornafjarðar.


3 comments
(Sveinbjörn)



2.7.2009 | Fálkaveiðar

Ég væri til í að eiga veiðifálka.

Burtséð frá öllu veseninu og umstanginu sem því fylgir líklega, og mjög svo takmörkuðu notagildi, þá er eitthvað ofboðslega elegant, fágað og hálf konunglegt við það að spóka sig um með svona rándýr á framhandleggnum.

Eina sem er mögulega ekki töff við fálka, er að þeir vekja óneitanlega upp hugrenningatengsl við ákveðinn misheppnanðan og hugmyndafræðilega gjaldþrota stjórnmálaflokk. Þessvegna væri það mjög mikilvægt að velja sér outfit við fálkann sem gengur þvert á þessi hugrenningartegsl, s.s. hettupeysu og derhúfu, verkamannasamfesting eða bara fullblown greifagalla í 17. aldar stíl.

Wimbledon UK Rufus the ha 014
Fálkinn Rúfus sér um að stúta öllum skítadúfunum við Wimbleton svo þær séu ekki með neitt bögg við fína fólkið.

Það væri nú ekkert alltof glatað að mæta til leiks á næsta rjúpnaveiðitímabili með brjálaðan fálka og glas af púrtvíni. Ég held að maður yrði klárlega röffaðasti gæjinn á svæðinu.


2 comments
(Sveinbjörn)



2.7.2009 | Skýringarmynd 1

Halldór Baldursson hittir að venju naglann á höfuðið með þessari mynd frá því í janúar 2007.

Eina breytingin sem mætti gera á myndinni er ef til vill sú að í stað erlendra banka, mætti stærsti fiskurinn heita erlend ríki.


Ég leyfi mér að gerast hotlinking scumfuck og réttlæti það
með því að linka á upprunalegu myndina hér.

1 comments
(Sveinbjörn)



2.7.2009 | Icesave-faraldurinn

Ég vil biðjast afsökunar á þessum tilfinningaþrungna pósti hér að framan. Ég var bara búinn að óverdósa á svona kjaftæði.


1 comments
(Sveinbjörn)



1.7.2009 | Hugleiðingar um Icesave

Undanfarið hefur mikið púður farið hjá afskaplega mörgum í að fjargviðrast útaf Icesave-samningunum. Fólk keppist við að gubba út úr sér mis-gáfulegum skoðunum á málinu, fram og til baka, mis-vel framsettum og mis-vel ígrunduðum útfrá mismunandi forsendum.

Persónulega svíður mér það að þurfa að gangast undir þessa skilmála og mér svíður að byrðin lendi á meðaljóninum sem naut aðstæðanna sem sköpuðu Icesave sennilega að minnsta mögulega marki.

Mér finnst samt eitt blasa við í þessu máli öllu saman. Að ætla að gefa viðsemjendum okkar puttan í þessu máli er, held ég í hæsta máta óskynsamlegt, af svo mörgum fyrirséðum og ófyrirséðum ástæðum að það er næsta vonlaust að telja það upp.

Mér þykir Halldór Reynisson koma ágætlega að þessu orðum í pistli sínum hér, og endurspeglar hann þar að mestu leiti mínar eigin skoðanir.

Það má þræta um það endalaust, og öskra sig hásan yfir því hvort ef til vill hefði verið hægt að semja betur. Það má velta vöngum yfir því hvort dómstólaleiðin hefði verið fær. Það má fjargviðrast yfir því hvort raunveruleg ábyrgð eigi að liggja hjá ríkinu og þ.a.l. skattgreiðendum.

Ekkert af þessu breytir því að svona er komið fyrir hlutunum og þessi mál verður að leysa á temmilega sanngjarnan hátt svo að öllum sé sæmd af.

Ég er í engum vafa um það að, hversu vel sem okkur vegnar undir skilmálum Icesave-samningsins, þá verði samninganefndin úthrópuð um ókomna tíð vegna spekúlasjóna um að hægt hefði verið að semja betur. Fólk á eftir að rausa um það að fara hefði átt einhverja óljósa dómstólaleið og einhverjir eiga eftir að taka einhverja Bjarts-í-Sumarhúsum-afstöðu um aldur og ævi.

En eitt hefur mér fundist svo undarlegt í þessu öllu saman, og það er fullkomin vöntun á samkennd Íslendinga með þeim sparifjáreigendum sem misstu allt sitt í Icesave. Ég sé þessa sömu Íslendinga í anda taka því með léttúð, hefði þeirra sparifé gufað upp til Englands eða Hollands.

Sömuleiðis heyrir maður gjarnan tæpt á því að viðkomandi ætti ekki að þurfa að taka þátt í lausn málsins, þar sem viðkomandi hafi aldrei tekið þátt í bruðli góðærisins. Þetta þykir mér sömuleiðis eilítið skammsýn afstaða, þar sem að mikið ef þessum bruðl-peniningum fundu sér vissulega leið inn í hagkerfið okkar hvort sem það var í skattgreiðslum bankanna eða eftir öðrum leiðum.

Í nokkur ár höfum við notið þess að stórum hluta samneyslu okkar hefur verið haldið gangandi með skattgreiðslum banka sem lögðu stund á lánasukk með tilheyrandi þenslu.

Það að horfa til skattahækkana og skert ríkisútgjöld hlýtur að vera rökrétt þróun á þessu ferli.

Þegar allt kemur til alls, þá blöskrar mér að þurfa að taka þátt í tiltektinni, sem oft á tíðum er ósanngjörn, og mér blöskrar glæpurinn sem okkar eigið fólk framdi gegn þjóðinni með gjörningum eins og Icesave. Mér blöskrar það þó hvergi nærri eins mikið og ef að menn ætla að gangast undan ábyrgðum í stað þess að axla þær eins og menn og loka um leið landinu fyrir milliríkjasamskiptum.

Þeir sem vilja reyna að hlaupast undan merkjum lýðræðis, og samábyrgðinni sem henni fylgir, mega krefjast þess að samningar verði felldir eða að við einöngrum okkur hér heima eins mikið og þeir vilja.

Þá fyrst fer ég héðan þegar baki verður snúið við þessum samningum, því þá fyrst verður hér fullkomnlega ólíffvænt.


2 comments
(hrafnhildur)



1.7.2009 | White Collar Cops

Mig langar til að sjá svona "Cops" þátt á Íslandi, þar sem lögreglan, FME, sérstakur saksóknari, Samkeppniseftirlitið og Eva Joly bösta alla þessa gæja í skjóli nætur.

hanneshandtaka
Einhvernvegin svona gæti þetta lookað

Ég væri til í að sjá orðaskipti milli löggunnar og Hannesar Smárasonar, sem enda með því að hann fær meis í andlitið og sjá víkingasveitina bösta Sigurjón Árnason í ólöglegum pókerleik í skítakofanum sínum við Norðurá.

Þá held ég líka að fólk yrði aðeins rólegra yfir þessu öllu saman. Icesave yrði þá ekkert issue fyrir fólk, heldur bara dýrt hágæða sjónvarpsefni, sem væri þó virði hverrar krónu.

sigurjonhandtekin
I'll buy that for a dollar!

1 comments
(Sveinbjörn)