Ég væri til í að eiga veiðifálka.
Burtséð frá öllu veseninu og umstanginu sem því fylgir líklega, og mjög svo takmörkuðu notagildi, þá er eitthvað ofboðslega elegant, fágað og hálf konunglegt við það að spóka sig um með svona rándýr á framhandleggnum.
Eina sem er mögulega ekki töff við fálka, er að þeir vekja óneitanlega upp hugrenningatengsl við ákveðinn misheppnanðan og hugmyndafræðilega gjaldþrota stjórnmálaflokk. Þessvegna væri það mjög mikilvægt að velja sér outfit við fálkann sem gengur þvert á þessi hugrenningartegsl, s.s. hettupeysu og derhúfu, verkamannasamfesting eða bara fullblown greifagalla í 17. aldar stíl.

Það væri nú ekkert alltof glatað að mæta til leiks á næsta rjúpnaveiðitímabili með brjálaðan fálka og glas af púrtvíni. Ég held að maður yrði klárlega röffaðasti gæjinn á svæðinu.
Haha, já, púrtvínið er alveg bráðnauðsynlegur fylgihlutur.
Hver veit, ef þetta verður lenska meðal rjúpnaveiðimanna þá er aldrei að vita nema Sjóklæðagerðin sjái sér leik á borði og setji á markað sérmerkt einglyrni og appelsínugula, regnhelda pípuhatta.
Já, tek undir með Grími. Síðan geturðu líka tekið með þér 50 punda eikarhandfangs-regnhlífina, ef hún er ekki varanlega týnd.
(Sveinbjörn)