3.7.2009 | Fíkniefni og blautur hundur

kendohundur

Samkvæmt nýjustu fréttum frá Hornafirði standa Hornfirðingar nú fyrir söfnunarátaki til kaupa á fíkniefnum fyrir sveitarfélagið.

Reyndar sækjast þeir líka eftir hundspotti með í kaupunum, en ekki er vitað á hvaða hátt hundurinn á eftir að tengjast botnlausri fíknilyfjaneyslu íbúa Hornafjarðar. Uppi eru getgátur um að hundinum verði ætlað að halda utanaðkomandi "pakki að sunnan" frá því að seilast í góssið þegar fíkniefnin koma loks í hús.

Einnig hefur því verið fleygt fram að liðveisla geti verið í hundinum þegar kemur að því að finna aftur glötuð krakkbörn þegar þau eigra frá rúsuðum eða meðvitundarlausum foreldrum sínum.

Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið, og stuðla að áframhaldandi vímumóki Hornfirðinga, er vinsamlegast bent á að hafa samband við Ingu Kristínu Sveinbjörnsdóttur[sic] hjá Sparisjóði Hornafjarðar.


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 3.7.2009

Sveinbjörn

Argh! Svein*bjarnar*dóttir!

Philistines.

[ Reply ]

Arnaldur at 6.7.2009

Arnaldur

Þetta var nú bara copy-paste djobb með smá tilfærslum hjá mér, þessi síðasta málsgrein.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 6.7.2009

Sveinbjörn

Ég veit, var að ergjast út í beygluna.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment