Nú hefur Már Guðmundsson verið skipaður seðlabankastjóri og mun taka við embættinu þann 20. ágúst, en Már var áður aðalhagfræðingur Seðlabankans.
Nú vil ég ekki draga í efa hagfræðisnilld Más og fagna því að í bankann sé kominn maður sem veit hvað útflutningstekjur og erlend skuldastaða eru. Persónulega þykir mér þó undarlegt eitt við þessa skipun og það er að Már var AÐALHAGFRÆÐINGUR SEÐLABANKANS þegar skútunni var siglt í strand.
Er þetta ekki örlítið eins og að fá meðvirka eiginkonu krakkfíkils til að taka við heimilisbókhaldinu?
Sjálfum hefði mér nú þótt meira traustvekjandi að fá einhvern eins og Þorvald Gylfason til að taka við taumunum. En hann er maður sem að hefur bent á glæpsamlegt stjórnleysi bankans undanfarin tjah... 8 ár eða svo.
Þorvaldur þótti þó heldur ótraustvekjandi og ekki nógu hæfur til verskins. Enda hefur hann aldrei unnið fyrir Seðlabankann.
Ég veit ekki... Már er þó eins og segir hagfræðimenntaður. Babysteps... babysteps...
Naldó... Már var ekki aðalhagfræðingur seðlabankans þegar skútunni var siglt í strand, en hann var það til 2004 þegar hann var ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri og staðgengill framkvæmdastjóra peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss.
En Arnór Sighvatsson, nýr aðstoðarseðlabankastjóri, var hins vegar aðalhagfræðingur seðlabankans þegar öllu var siglt í strand.
Þorvaldur þótti vel hæfur til verksins en ekki mjög vel hæfur eins og Már og Arnór. Svo virðist sem seðlabankareynsla þeirra tveggja hafi riðið þar baggamuninn eða einhvers konar pólitík. Það var auðvitað löngu vitað að Már Guðmundsson yrði skipaður seðlabankastjóri.
Það var það sem flestir áttu von á. Ég veit ekki til þess að klúður undanfarinna ára sé hægt að rekja til Más. Erfiðara að segja með Arnór. Maður hefur svo sem heyrt orðróm þess efnis að bankastjórarnir hafi lítið hlustað á hagfræðideildina undanfarin ár...
The password to post a comment is:
(Aðalsteinn)