7.7.2009 | Með silfurkúlulán í munninum

bjorgolfur gudmundsson

Varúlfarnir vilja að við gleymum bara slatta af þessum peningum sem þeir stálu.

Þetta finnst mér svo absúrt að ég fer bara að hlæja, enda löngu hættur að vera gramur eða taka þetta nærri mér á nokkurn hátt.

En sorry með mig samt...

Ef ég skil þetta rétt, þá er þetta á einhvern hátt sambærilegt því að kaupa bíl, langt undir gangverði, með lánsfé frá fyrri eiganda, taka svo úr honum alla varahlutina og bensínið og selja það fyrir fullt af pening (og kaupa sér m.a. fótbolta fyrir hluta af ágóðanum). Að lokum kveikja svo í strípuðu boddíinu sem eftir stendur og segja svo fyrri eiganda bílsins (og lánadrottni þínum) að fokka sér, af því að þú áttir náttúrega aldrei í raun fyrir bílnum.

Allavega þá er þetta allt einhvernvegin á skjön við það sem fyrir mér hefur verið haft sem eðlilegir viðskiptahættir.


1 comments
(Sveinbjörn)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 7.7.2009

Sveinbjörn

"segja svo fyrri eiganda bílsins (og lánadrottni þínum) að fokka sér, af því að þú áttir náttúrega aldrei í raun fyrir bílnum."

Og ekki má gleyma að pissa síðan framan í fyrrverandi eigandann.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment