13.7.2009 | Milljónasvindl?

Ríkisskattstjóri er þeirrar skoðunar að það sé verið að hafa milljónir af ríkissjóð í gegnum díselolíu-svindl.

Þetta þykir mér fremur hæpið miðað við þær forsendur sem gefnar eru upp í fréttinni.

naldhoe

Nú er það svo að ég hef persónulega fengist við störf sem tengjast vinnuvélum á einn eða annan hátt og hef margoft unnið á slíkum vélum. Við slíka vinnu er eitt sem maður áttar sig mjög fljótlega á, og það er hversu óhagkvæmt það er að ætla að lulla á beltagröfu eftir vegum borgarinnar á næstu bensínstöð til að fylla'na. Ekki aðeins tekur það óhemju tíma, heldur er það beinlínis ólöglegt í flestum tilvikum, fyrir utan það hversu hættulegt og óþægilegt það er.

Því er það ekki lengi að renna upp fyrir manni, að hagkvæmast er að renna eftir olíu á bíl (gjarnan pallbíl, ef slíkur er við hendi) og taka olíu á dunka.

Þar sem >100 lítra dunkur væri ákaflega ómeðfærilegur fyrir meðalmanninn þá er olían yfirleitt tekin á 20-30 lítra dunka, og þykir flestum nóg um með það. Þá eru gjarnan teknir 2 dunkar eða allt að 60 lítrar af olíu, sem duga manni ágætlega yfir daginn á meðal beltagröfu eða hjólaskóflu, miðað við meðal vinnuálag. Ef vélin er svo notuð meira yfir daginn þá eru einfaldlega farnar fleiri ferðir til að mæta aukinni olíuþörf, eða pantaður olíubíll (einskonar færanleg bensínstöð) til að fylla á vélina.

Allan þann tíma sem ég vann á vinnuvél, gæti ég vel ályktað að ég hafi dælt innan við 100 lítrum í um 81% tilvika.

Ennfremur verð ég að segja að mér finnast 7m lítra af olíu á árs basis, fyrir allan vinnuvélaflota landsins, í allri þeirri framkvæmdagleði sem einkenndi árið 2008, ekki vera neitt sjúklega óhóflegt.

Þá finnst mér líka rétt að taka það til að ég hef aldrei heyrt neinn tala um það að svindla á litaolíunni vegna þess að:

  • a) Það eru dýr viðurlög við því.
  • b) Það er einfaldlega of auðvelt að bösta mann.
    (Liturinn verður eftir í tanknum og það er tiltölulega hægur leikur að sampla það hvort það hafi einhverntíman verið notuð lituð olía á tankinn.)

Hitt er svo annað mál, að ég skildi aldrei almennilega afhverju aðgangurinn að lituðu olíunni var ekki takmarkaður, og afhverju tankarnir voru ekki prófaðir á reglubundnum skoðunum þessa tækja.


2 comments
(Arnaldur)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 14.7.2009

Sveinbjörn

Þetta þótti mér klínísk analýsa hjá þér

[ Reply ]

Arnaldur at 14.7.2009

Arnaldur

Þakka þér.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment