Er búinn að vera að lesa usability pointera og CSS basics í allan dag, og hef þess vegna ekkert náð að pósta hérna, þó að af nógu sé að taka.
Ég hef nefnlinlega ákveðið á næstu vikum að revamp-a síðuna mína og endurbyggja hana nokkurnvegin frá grunni, enda orðinn frekar þreyttur á þessu look-i (og hef verið það lengi).
Núna fer maður að setjast niður og pæla í layouti og function-um og því kunna færslurnar hérna að verða eitthvað stopular á ný, þó að ég muni að sjálfsögðu reyna að henda hérna einhverju inn temmilega reglulega eftir bestu getu.
Annars er það innileg trú mín að um leið og maður er kominn með nýtt look og síðu sem maður er nokkurn veginn sáttur við, þá nenni maður frekar að setja inn efni, og lesendur manns frekar að skoða það...
RSS-mekanisminn er hluti af Mentat-kerfinu sem keyrir þessa síðu, og sem ég forritaði. Eru einhverjir vankantar á RSSinu?
Djöfull líst mér á þetta hjá þér, dawg. Hlakka til að sjá hvað kemur út úr þessu.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)